Lesbók Morgunblaðsins - 04.04.1926, Side 6
LÉSBéK MORGUNBLASSINS.
4. apríl 19á6.
tí
Kvenvargur.
Uugverska kvikmyndakonan
Lya de Putti, sem er einhver
frægasta leikkona í Þýskalandi,
er hið mesta forað í skapi eftir
þvi sem erlend blöð herma. Einu
sinni fann hún upp á því að
henda sjer út um glugga á þriðju
hæð — bara af því að einn af
kunningjum hennar vildi eigi
fara mcð hana til St. Moritz.
Nú heíir húu aftur vakið um-
tal almennings rneð framkomu
sinni, því að hún hefir höfðað
mál gegn ráðsmanni sínum. Hann
er amerískur og heítir Sam Rach-
mann. Samkvæmt samningi þeirra
á hann að fá í sinn hlut 25 %
af fyrstu 100 þús. mörkunum,
sem hún fær á ári fyrir leik sinu,
en 50 % af því sem þar er fram
yfir. Lya krefst þess nú, að
samningur þe3si verði feldur úr
gildi, því að hann sje mjög ó-
sanngjarn Rachmann þurfi ekki
annað en tala í síma svo sem
tvær mínútur og á þeim tíma
ræður hann hana til þess að leika
í fjórum myndum fyrir 100 þús.
maika kaup. Og fyrir það eigi
hann að fá 25 þús. mörk. En
hún verði að vinna baki brotnu
í marga mánuði fyrir sínum
hluta. Og ef samningurinn sje
um meiri laun þá hirði Rach-
mann nær alt af því — Lögmað-
ur Rachmanns heldur því fram
að hún þurfi ekki anuað en neita
að skrifa undir leiksamningana
ef hún sje óánægð.
Rhodymenia palmata.
Eftir Halldór Kiljan Laxness.
(Eftirprentun bönnuð).
I. (Aftan á nafnspjald).
Þú ert seni söngur í sefi
eða seimur í gömlu stefi,
og mjer gleymast aldrei, aidrei
þín ástblíðu sorgarhót ....
Blessi nú Guð þína lituðu lokka
og ljái þjer nýja bómullarsokka,
vefji sál þína silki
og signi þinn tæpa fót,
að hann steyti ekki framar við — 1 -.. 2 .. 3 — grjót!
— og geymi þig helst í hylki.
II. (Einsöngur með þremur harmonikum).
Komdu og skoðaðu í kistuna mína
í kærleikans aldingörðum á jeg þar nóg,
sem mjer hafa gefið í minningu sína
meyjarnar allar sem jeg rak út í skóg.
(Blandað kór gervimanna (marionnettes):
Hvílíkar myndir
og hvílíkar syndir
og hvílík blekking
og hvílík þekkking .... !
(Recitativ):
Hve djúpir voru þeir dalir.
En á traustari súlum standa tignari salir.
Víðvappið.
A fundinum í Genf átti að víð-
varpa öllum ræðum fundarmanna,
en það mistókst algerlega. Nú
á að reyna nýja víðvarpsaðferð
þegar Þjóðabandalagið heldur
fund sinn í haust.
Eignip þýsku fupstanna.
Erkibyskupinn í Possau hefir
nýlega látið það boð ú%anga, að
hann muni bannfæra alla, er
gangi til atkvæða um hvað gera
skuli við eignir þýsku furstanna.
Lýsir hann yíir því, að það sje
hið hróplegasta brot á 7. boðorð-
inu. Skorar hann á alla sann-
kristna menn að sitja heima er
atkvæðagreiðsla á að fara fram.
III. (Niðurlag).
Vökru lileypa járngráir víkingar
vindum skygnda slóð;
einatt framdi jeg undirferli og svíkingar,
ástin mín góð,
af því jeg kunni annarar gráðu líkingar
eins og magurt jóð.
IV. (Undirskrift.)
O, ástkæra unga kven!
þú veist jeg heiti Salómonsen,
allra manna minstur á liæðum,
kunnur af nýtískukvæðum,
klerkar tala um mig í ræðum
og segja: Ja, sá er nú ekki pen,
mörg eru á honum missmíðin sjeú,
Amén. Amen.