Lesbók Morgunblaðsins - 22.05.1927, Side 5

Lesbók Morgunblaðsins - 22.05.1927, Side 5
.LESBÓK MOBöUNBLAÐSINS 157 slá ryki í augu manna með bar- lómi og vífilengjum; þeir verða -að borga, ef Prakkland á að greiða nokkurn eyri af því, sem það hefii* sjálft til láns tekið hjá bandaþjóð- um sínum. Já, þeir verða að borga. A því er enginn efi. Það sýndi sig í liið eina skifti sem þeir gátu ekki fvililega staðið í skilum. En hafa Frakkar nokkuð meira upp úr því að koma frarn með jafu ómannúðlegri og tilgangslausri hörku og Kuhrtakan bar vott um? Loks er það öryggismálið, sem gefur haturspólitík Frakka byr i seglin, ekki síst nú, þegar Þjóð- verjar eru orðnir sessunautar þeirra í Þjóðabandalaginu og sátt- ir að mestu við ítali og Englend- inga. Tilraun Frakka til að sund- urlima Þýskaland liefir mishepn- ast, tilraun þeirra til að hnekkja atvinnuvegum Þjóðverjuin, vin- sældum og áhrifum þeirra út á við hepnast heldur ekki vel, þó að rotla megi, að Þjóðverjar geti enn þá lítt, staðist samkepni þeirra á heimsmarkinum, nje sóað gengd- arlaust fje, eins og Frakkar, til oð vinna málstað sínum fylgi í öðr- um löndum. Mönnum er í fersku minni, hvað franska stjórnin var æf, er það sannaðist að Þjóðverjar hefðu end urbætt gömul virki, nálægt Kön- igsberg og á landamrorum Pói- iands. Ut af fyrir sig var það rjettmætt, þar sem *líkt tiltæki Þjóðverja kom í bág við Versalar samninginn. En þegar að því er gætt, að samtímis verja Frakkar sjálfir óhemju peningafúlgum til að endurbæta víggirðingar sínar á austur-landamærunum, hlýtur manni að virðast franski málstað- urinn miður rjettlátur. Stjórnmálamenn hjer skrifa greinir á greinir ofan um hinn leynilega herbúnað Þýskalands, um skotæfinga- og skylmingafjc- lög, sem telji hundruð þúsunda meðlimi og standi í sambandi við hið þýska Reichswehr, um vopna- birgðir, sem haldið sje leyndum, um vopnaverksmiðjur í Rússlandi, sem reknar sjeu fyrir þýskt fje. Ollu þessu hefir verið einbeittlegi mótmælt af þýsku stjórninni og þó halda blöðin hjer áfram að stað- hæfa það, eins og ekkert hafi ískorist. Hverju á maður að trúa ?* Altaf er það víst, hvað sem líður bessum leynilega herbúnaði í Þýskalandi, að herbúnaður Frakka hefir aldrei verið eins ákafur og nú, hervarnirnar auknar gríðar- iega í lofti, jörð og sjó, einmitt nú, þegar verið er að rœða um afvopnun, sættir og samvinnu. — •Jafnaðarmaðurinn, Paul Boneour, fulltrúi frönsku stjórnarinnar á áfvopnunarþinginu, dirfist eigi að síður að ákæra Þjóðverja fyrir undirferli og ófriðarhug, um leið og hann hrósar sinni þjóð fyrir. einlrogan friðarvilja. Er það lcann- ske til að vinna fyrir friðinn, að Frakkar hafa alveg nýslceð neitað að taka þátt í ráðstefnu þeírri, er Uoolidge Bandaríkjaforseti boðaði til í því skyni að rroða um tak- mörkun herskipastóls stórveld- anna ? Stresemann hefir krafist þess, að setulið Bandamanna fari sem fyrst burt úr Rínarhjeruðunum, og íært það til stuðnings kröfu sinni,- ’ að Þýskaland œtti að vera jafn- rjetthátt og aðrir meðlimir. Þjóða- bandalagsins, en groti ekki kallast það, meðan nokkur hluti landsins væri í útlendum hershöndum. ■ - Franska stjórnin hefir hummað þetta fram af sjer og vitanlega, vitnað í Versalasamninginn, seni ákveður, að setuliðið skuli ekki verða burt úr Rínarhjeruðunum fyr en 1935. Bretar eru fúsir til að fara strax, ef Frakkar gerðu það líka. Á síðarnefndum strandar eingöngu og þykjast þeir senni- lega ekki ugglausir, ef þeir grofu Þjóðverjum alveg lausan tauminn. En verður öryggi þeirra betur borgið eftir 1935, ef þeir sitja kyrrir þangað til og auka með því óvild til sín og beiskju? Áreiðan- lega ekki. Því að það byggist ekki einungis á því, að þeir hafi ógur- legan herstyrk og hervarnir, held- ur líka og einkum á mannúðlegri framkomu gagnvart Þjóðverjum, svo að þeir yrðu fúsari til sátta og friðsamlegra viðskifta við hina frönsku nágranna sína. Hr. Páll Sveinsson, formaður Allianee Francaise í Reykjavík, hefir skrifað athugasemd við fvrri kafla þessarar greinar. Hann á- krorir mig fyrir illgirni í garð Frakka og héfir um þau mörg stóryrði, sem mjer hefði ekki komið til hugar, að jafn stiltur og gáfaður maður Ijeti frá sjer fara. Þessum ummadum lians verð jeg að mótmrola afdráttarlaust, það því fremur, sem lmnn gerir ekki einu sinni tilraitn til að rökstyðja þau að neinu'leyti. Skrif mín hafa fyrst og fremst aldrei fjallað um frönsku þjóðina í heild sinni, heldur um ýms at- riði t titanríkLspóli.tík Frakka, feinkum ófriðarhttg þeirra og fram- komu gagnvart Þjóðverjum yfir höfuð að taia. Mjer er óhrott að fullyrða, að jeg hafi fylgst með þeint málum fult eins vel og h". P. Sv., enda hefi jeg staðið miklu betur að vígi en liann, þar sem hann hefir ekki verið ltjer í Frakklandi og verður að sætta sig við alltakmarkaðan blaða- og bókakost um greind málefni. Haim fer þannig óhjákvæmilega margs á inis, sem er nauðsynlegt að vita til að hafa glögga og rjetta hug- mvnd um hlutina (eigi að síður dettur mjer ekki í hug að væna hann þekkingarleysis). Ilitt er annað mál, að mjer eru nrosta ó- skiljanlegar þatr ástæður, sem hann frorir fyrir því, að skrif mín nái ekki nokkurri átt. Hann segir að íslendingar megi ekki setja sig á háan hest gagnvart stórfrrogum menningarþjóðum. Er það ósvífni af mjer, af því að jeg er íslend- ingur, að segja hreinskilnislega skoðun mína á máli, sem snertir Frakka og finna að því, sem mið- ur fer hjá þeim? Vrori það ekki stjórnlaust Frakkadaður og hlut- drægnisleg hótfyndni að stökkva upp á nef, ef einhver hefði ástroðu til að segja annað en lof og skjall um Frakka? Síðan talar hr. P. Sveinsson um, livað Frakkar sjeu mikil sæmdar- þjóð, hvað þeir sjeu góðir við okk- ur Islendinga, hvað við sjálfir sje- um miklir eftirbátar þeirra í öll- um greinum. — Mjer hefir aldrei dottið í hug að bera móti því, al- drei minst á það einu orði. Það eru bara vöflur og útúrsnúningar, sem stafa eflaust nokkuð af mis- skilningi eða fljótum yfirlestri greina minna. Jeg la*t það að sjálf- sögðu sem vind um eyrun þjóta. Þ,

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.