Lesbók Morgunblaðsins - 17.11.1929, Blaðsíða 5

Lesbók Morgunblaðsins - 17.11.1929, Blaðsíða 5
LBSBÓK MOBGUNBLAÐSINS 365 þj er og þeim gjöra. — Það, sem þjer gjörið eínum af mínum minstu bræðrum, það hafið þjer gjört mjer. — Það eru kenningar og líf Jesú Krists, sem starfsemin styðst við. Það verður ávalt hlýtt og bjart á heimilunum, sem hlýða boðum hans. Á meðal verksmiðjustúlkna í stórborgum hefir fjelagið víða leitast við að koma á fót ýmis- konar starfsemi, sem öll miðar í kristilega átt, bæði með ókeypis kvöldskólum, fræðandi fyrirlestr- um, söngsamkomum, handavinnu- námsskeiðum o. s. frv.; en aðaltil- gangurinn er þó sá, að leiða ungu stúlkurnar til Krists, og kenna þeim í návist hans að meta sitt rjetta manngildi. Sumstaðar hefir fjelagið stofn- að vistráðningastofur. Þangað snúa sjer stúlkur, sem vilja vera sjer úti um góðan samastað, sömu- leiðis húsfreyjur, sem óska eftir góðum stúlkum. Jeg hefi átt tal við unga stúlku, sem starfaði á þess háttar skrifstofu í Parísar- borg. »Vandalaust verk var það ekki«, sagði hún, »en oft var það verulega ánægjulegt, þegar við sáum starfið bera góðan árang- ur«. Hvarvetna þar sem fjelagið hef- ir kynt sig og starf sitt, hefír það eignast óskift traust allra góðra manna, og eigi ber það ósjaldan við, nú orðið, að stúlkur, sem ætla sjer utan, biðji um áritan eða heimifisfang K. F. U. K. í því landi, sem þær ætla til, og jeg veit ekki betur en að þeim hafi gefist það vel. Þá hefir fjelagið ætið og al- staðar, þar sem það starfar, reglu- bundna'fjelagsfundi, þar sem Guðs orð er haft um hönd, og eru all- ar konur, bæði utan fjelags og innan, hjartanlega velkomnar á þá fundi, ekkert síður hjer í bæ en hvarvetna annarstaðar þar sem K. F. U. K. er að verki. Vitanlega er starfsemi fjelags- ins ofur smávaxin vor á meðal, og þolir engan samjöfnuð við starf K. F. U. K. í öðrum lönd- um. Samt sem áður telur fjelagið hjer í bænum marga meðlimi; er þeim skift í tvær deildir, aðal- ífeild fyrir stúlkur frá 16 ára aldri, og yngri deild, en hana skipa stúlkur frá 12—16 ára. — Deildirnar halda báðar uppi reglu- bundnum fundum með prjedikun, bæn og sálmasöng. Þar að auki eru saumafundir, þar sem fjelags- konur koma saman með handa- vinnu sína, en hana leggja þær að jafnaði til hins árlega bazars, sem fjelagið heldur nokkru fyrir jólin. Reykjavíkurbúar kannastallir við bazar K. F. U. K., og hafa fyrir löngu viðurkent, að þar verð- ur komist að góðum kaupum á Iientugum og snotrum jólagjöfum. Bazarinn er aðal tekjugrein fje- lagsins, enda leggja margar fje- lagskonur mjög að sjer fyrir hann. Fjelagið hefir upp á síðkastið stutt kristniboð á meðal heiðingja og stúlkurnar i yngri deild hafa gefið með »fósturbarni«, munað- arlausu stúlkubarni í Kína og kostað það á skóla þar. í Hafnarfirði er og all fjölmenn fjelagsdeild, sem starfar með svip- uðu fyrirkomulagi; einnig í Vest- mannaeyjum. Þótt framkvæmdirnar sjeu í smá- um stíl vor á meðal, langar K. F. U. K. til þess að styðja eftir mætti kjörorð fjelagsins, en það er alstaðar eitt og hið sama: - - »Allar angar stúlkur fyrir Krist«! ——-<-Mr>- í sjdvarhdska. Níu menn flæktust í heila viku á Atlantshaf- inu í smábát. Potter skipstjóri, sem þá leysti mikið verk og hetj laginu. — Það er nú orðið hálft annað ár síðan við lögðum af stað frá Fíladelfíu með „Horatio Foss.“ Það er lítil fjórsigld skúta, 846 tonn. Við höfðum hlaðið kolum, eiginlega heldur mikið, og ætluð- um til Guadelope á eynni Martini- que'. Mjer hefir altaf þótt vænt um Horatio gamla, enda þótt hann væri ekki annað en gamall og skít- ugur kolabarkur. Þann 20. október lentum við í stormi. Hann var svakalegri en nokkur stormur, sem jeg hefi lent í þau 35 ár, sem jeg hefi siglt. Tveim dögum síðar rak skipið hjálparlaust á Atlants- hafinu. Þegar þar við bættist að stýrið brotnaði, varð mje'r það ljóst, að við yrðum að yfirgefa skipið, enda var það farið að hall- ast ískyggilega mikið. Við höfðum smábát um borð. Hann var með bensínhreyfli, en þar sem við þurftum allir níu að komast í bátinn, var hreyfillinn of þungur fyrir hann. Við tókum því hreyfilinn úr bátnum-og út- bjuggum hann sem seglbát. Þrátt fyrir storminn gátum yið unnið af hendi, skýnr hjer frá ferða- óhikað og rólega að þessu verki. Arar og rær notuðum við fyrir siglu, en sængurver og presenn- ingar notuðum við fyrir segl. Bill — negrakokkurinn — sem e'igin- lega hjet Jósep Notice, sá um að nóg væri i bátnum af vistum, lax og nokkrir kassar af kexi. Síðan tókum við 125 lítra af vatni, það urðu um 14 lítrar á mann. — Að þessu loknu ljetum við bátinn siga niður. Jeg var á þiljnm til að gæta þess, að báturinn kæmi ör- ugt niður í sjóinn, en síðan kast- aði jeg mjer á sund og synti eftjr bátnum. Þetta var í afturelding, og nokk- urri stundu eftir að báturinn var kominn á flot, sökk ,Horatio Foss' hægt, og rólega, og nokkrum mín- utum síðar var e'kkert annað til marks um, að hann hefði nokk- urn tíma verið til, en nokkrar loft- bólur, sem komu upp úr hringið- unni, sem myndaðist í kringuin staðinn, þar sem hann hafði sokkið. Nú vorum við úti á Atlantshaf- inu, 400 sjómílur eða 720 kíló'

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.