Lesbók Morgunblaðsins - 03.05.1931, Blaðsíða 1

Lesbók Morgunblaðsins - 03.05.1931, Blaðsíða 1
17. tölublaS. VI. árgangur. Sunnudaginn 3. maí 1931. Ástand oe horfur í Þýskalandi. Eftir Jón Gíslason, stud. philol. i. Það er kalt og hráslagalegt, — Þoka grúfir yfir húsamergð stór- borgarinnar. Ryk og kolareykur hafa myndað þjett ský, sem vefja sig um turna og húsaþök. Mig langar til að fá mjer göngu, eftir langa innisetu, anda að mjer svölu útilofti, en það er sem þokan og reykskvin kæfi þessa löngun í fæð- ingunni. Jeg reyni samt að verjast þessum lamandi áhrifum umhverf- isins. Strákhnokkar tveir ganga hlæjandi fram hjá. Þá er sem þróttur færist, í mig á ný. Jeg greikka ósjálfrátt sporið í áttina til Tiergartens, þar sem helst er að leita nokkurs næðis fyrir há- vaða götulífsins í Berlín. Brátt sje jeg hilla undir hávaxin trje garðsins. Þau eru til að sjá sem svartur veggur, er á víð og dreif er rofinu af götum og strætum. Jeg held inn í Siegesallee, þá götu, «em lýst hefir verið sem sögu Brandenburg og Prússlands, höggvinni í marmara. Á báðar hendur eru standmyndir þjóðhöfð- ingja þessara landa frá elstu tím- um fram til loka síðustu aldar, og á hvora hönd þjóðhöfðingjan- um getur að líta myndir tveggja mestu manna hans stjórnarára. — Hjer ríkja í sannleika minningar liðins tíma. I dag er sem þokan varpi einhverjum töfrahjúp yfir þessar sögulegu kempur, engu lík- ara en þær sjeu reiðubúnar að stíga upp úr djúpi fortíðar, í þann veginn að ganga út í barátt.u nú- tímans. Nei, þokan blekkir og kem ur ímyndunaraflinu á flug. Fortíð sleppir því ekki, sem hún hefir einu sinni gleypt. Vandamál nú- tímans verða einungis leyst af hans eigin börnum. — En hvað er þetta? Standmynd eða lifandi vera? Nei, þessi fátæklega kona er í mótsögn við heildaráhrif Sie- gesallee. Hjer á hún ekki heima. Jeg virði gömlu konuna fyrir mjer, um leið og jeg geng fram hjá. Tannlaus og kinnfiskasogin er hún og andlitið rist djúpum rúnum mæðu og mótgangi. Hún stendur í djúpri lotningu fyrir framan mynd Lúthers. Varir henn- ar bærast eins og í bæn. Að end- ingu signir hún sig og hverfur mjer sjónum í þokunni. — Jeg hefi gengið Siegesallee á enda og kem fram á Platz der Republik. Það glampar dauflega á gylt skrautið á þaki ríkisþingsbygging- arinnar, handan við torgið. Um húsið heldur Bismarck vörð, það er að segja risavaxið minnismerki hans. Hefir það sem sje reist verið beint fyrir framan ríkisþingið. — Þykir sumum sem þar eigi það tæplega heima, þar eð fáir hafi beitt þingræðið meira gerræði en einmitt Bismarck. En hvað sem Bismarck kann að hafa gert í fyrndinni, þá er eitt víst: Hann lætur ekki framar neitt á sjer bæra, þótt hann sje í allvígalegum stellingum þama uppi á fótstall- inum. Það er á bak við Bismarck, í húsinu á bak við hann, þar sem nú er háð barátta um örlög þýsku þjóðarinnar, að sumu leyti harðari og tvísýnni en nokkru sinni áður. II. 1 ríkisþinginu þýska eiga nú sæti um 550 fulltrúar. Kemur einn fulltrúi á hver 100 þúsund kjós- enda, er neyta atkvæðisrjettar síns. — Áður en við virðum fyrir okkur flokkaskiftinguna verðum við að líta um öxl, til þess að kynn ast að nokkru orsökum þeim, sem skapað hafa núv. afstöðu flokk- anna hvers til annars, síðan „sósíal demokratar“ komust til valda, eft- ir að keisarastjórninni var steypt af stóli í ófriðarlok. Báru þeir og sigur af hólmi í viðskiftum sínum við kommi'mista, er stofnað höfðu til uppreisna víða í Þýskalandi. Aðalstyrkur flokksins eru verk- lýðsfjelögin. Flokkur þessi setti sjer það markmið, þegar er hann var kominn til valda að koma á þjóðnýtingu framleiðslutækjanna. í desember 1918 fórust Ebert, er seinna varð fyrsti forseti þýska lýðveldisins, svo orð: „Sósíaldemo- kratar“ eru staðráðnir í að koma á þjóðnýtingu framleiðslutækj- anna, svo ítarlega og skjótt og mögulegt er. Hjer mega samt ekki neinir skýjaglópar nærri koma. Aðeins starf skipulagsbundinnar, vísindalegrar nefndar getur fært oss að marki í þessum efnum“. — Álit fyrstu þjóðnýtingamefndaj:

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.