Lesbók Morgunblaðsins - 19.07.1931, Blaðsíða 1

Lesbók Morgunblaðsins - 19.07.1931, Blaðsíða 1
* 28. tölublað. Sunnudaginn 19. júlí 1931. VI. árgangnr. Haralö Höfföing. Höffding við skrifborð sitt. — In memoriam — Eftir ðr. Agúst H. Bjarnason prófessor. Motto: Du kerkerst den Geist in ein tönend Wort; Doch der Preie wandelt im Sturme fort. Schiller. Þriggja danskra manna, sem báru höfuð og herðar yfir sam- tíð sína, þeirra Troels Lunds, Ge- orgs Brandes og Haralds Höff'- dings, minnist jeg sjerstaklega frá námsárum mínum í Kaupmanna- höfn. I>eir gerðu mjer veru mína þar verðmæta og eftirminnilega, Troels Lund fyrir göfugmannlegt viðmót og glæsilega ritmensku, Georg Brandes fyrir eldlegan á- huga á mönnum og málefnum og óslökkvandi gremju yfir öllum smásálarskap • og þröngsýni, og Harald Höffding sem hinn fæddi fræðari og óþreytandi eljumaður. Allir voru þeir æskuvinir og um nokkurt skeið ævi sinnar her- teknir af heimspekilegum áhuga. Allir urðu þeir forgöngumenn, hver á sínu sviði bókmentanna, og að sumu leyti víðfrægir menn. Allir vöktu þeir landa sína og raunar öll Norðurlönd til nýs lífs og nýs sltilnings á sjálfum sjer og öðrum. Allir reyndu þeir að færa út veraldleg og andleg landa- mæri lands síns og þjóðar. Það var ekki síst áliti þeirra og áhrif- aftur Norður-Sljesvík í ófriðar- lokin síðustu. En enn miklu meiri varð þó vegur Danmerkur fyrir andlega starfsemi þeirra. Nú virð- ist mjer sem vegur Danmerkur hafi aftur minkað að þeim látnum. Troels Lunds hefi jeg þegar minst í smáriti einu, sem dansk- íslenska fjelagið gaf út hjer á árunum, Georgs Brandes í grein í „Iðunni“ (1921—22). En nú er að minnast þess mannsins, sem jeg átti persónulega mest upp að unna, kennara míns um mörg ár, prófessors Haralds Höffdings, og er mjer þó mjög markaður bás í Lesbókinni til þessa. — Harald Höffding var fæddur í Kaupmannahöfn þ. 11. mars 1843 um að þakka, að Danir hrepptu og skorti því rjptta tvo vetur í nhætt, er hann ljest þ. 2. þ. m. Var hann af góðum kaupmanna- ættum kominn, hlaut ágætt upp- eldi, {>annig að hann þegar á stú- dentsárum sínum las gríska og latneska höfunda sjer til gagns og skemtunar. Um eitt skeið var hann samkennari Björns M. Olsens við Borgerdydskólann í Khöfn og hrósaði mjög gáfum hans og at- gervi. Höffding ætlaði sjer að verða guðfræðingur og lauk háskóla- prófi í þeim fræðum. En mjög snemma varð hugur hans eins og tvíbentur milli heimspeki og trú- ar og átti hann lengi í hugarstríði við sjálfan sig um það, hvora leið- ina.hann ætti heldur að stefna. Á öðru leitinu var Sören Kirke- gaard með hinar hörðu og óbil-

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.