Lesbók Morgunblaðsins - 19.07.1931, Side 8
224
LESBÖK MORG-TJNBLAÐSINS
Heimsmeistari
í hnefaleik.
Fyrir nokkru börðust þeir
Stribling og Schmeling um heims-
meistaratigninga í hnefaleik í
]>yngsta flokki.
Schmeling.
Stribling.
Schmeling vann þessa tign í
fyrra, en nú skoraði Stribling
á liann og var talið algerlega
ósýnt hvernig fara mundi. Var
því gríðarleg aðsókn að hnefa-
leiknum og veðmál mörg, eins og
títt 'er í Ameríku.
En þannig fóru leikar, að
Schmeling vann frækilegan sigur.
Hafði hann jafnan betur í hverri
lotu, en að lotum sló hann Stribl-
ing í rot, og bar hann sjálfur iit
af pallinum.
Sigur hans vakti mikinn fögnuð
í Þýskalandi og verður lionum án
efa fagnað einS og konungi þegar
liann kemur lieim.
Smælki.
Hjartslætti útvairpað. í Amer-
íku hafa menn fundið upp áhald
til þess að útvarpa hjartslætti, og
var það gert í fyrsta skifti í há-
skólanum í Pensylvaníu. Ung
stúlka var látin sitja á stóli og
svo var hjartslætti ihennar út-
varpað um öll Bandaríkin og
hundruðum þúsunda saman hlust-
uðu ungu mennirnir á liann með
fjálgleik.
f lyftu. Góðlátleg gömul kona
er nýstigin inn í lyftu og segir
vig lyftudrenginn.
— Leiðist þjer það ekki að vera
svona á ferðinni upp og niður
allan daginn?
— Jú.
— Leiðist þjer að fara upp?
— Nei.
— Leiðist þjer að fara niður?
— Nei.
—- Hvað leiðist þjer þá?
— Hinar heimskulegu spurning-
ar, sem fyrir mig eru lagðar.
Næturdrotning New York borg-
ar heitir Texas Guinau. Hún fór
fyrir skemstu til Parísap og ætl-
aði að stofna þar náttklúbb, en
yfirvöldin bönnuðu henni það og
vísuðu henni úr landi. Varð hún
því að hverfa heim til New York
aftur. En hún segir að franska
stjórnin skuli fá að súpa seiðið
af því hvernig hún hafi farið
með sig. Ekki er þó kunnugt á
hvern hátt hún ætlar að hefna sín
á stjórninni.
— Æ, livað hann rignir. Það er
eins og helt sje vatni úr fötu. Jeg
er hræddur um konuna mína. Hún
fór regnhlífarlaus inn í borgina.
— Þú skalt ekki vera hræddur
— hún stendur af sjer skiirina
inni í einhverri búð.
— Já, það er einmitt það sem
jeg er hræddur um.
— Hvað á jeg að gefa Ellu í
afmælisgjöf ?
—• Gefðu henni bók.
—• Hún á bók.
Bernhard Shaw var einu sinni
spurður að því í veislu hvernig
honirm litist á Stúlku, sem allir
dáðust að þar.
— Hún er bæði ung og fögur,
svaraði liann, og ef hún væri
líka heimsk, þá væri hún full-
komin kona.
IsafoldarprentamiTSja h.f.