Lesbók Morgunblaðsins - 12.11.1933, Síða 5
LESBÓK MORGTJNBLAÐSÍNS
349
Hersýning í Prag. Fyrir skemstu átti Tjekkóslóvakía 15 ára
sjálfstæðisafmæli. Var }>á mikið um dýrðir í liöfuðborginni Prag og
sjest hjer á myndinni hersýning, sem þá fór fram fyrir utan þing-
höllina.
vertíðina. Var þá góður fiskafli
fyrir Suðurlandi, lestarhlutir eða
meira. Jón f-ór norður um vorið,
sótti elsta son sinn, og settist að
á Suðurlandi. Um drenginn, sem
geklc að norðan um hávetur á 7.
árinu, er sagt að hann liafi mann-
ast vel, orðið þjóðhagasmiður, og
um eitt skeið ráðsmaður Rann-
veigar á Háeyri.
Rannveig Jónsdóttir á Háeyri
var sonar sonar dóttir Jóns bisk-
ups Airasonar. Ber öllum sagna-
riturum saman um mannkosti
hennar, göfuglyndi og hjálpsemi.
Rannveig ól upp 25 munaðarlaus
börn, og sá vel fyrir ráði þeirra.
Þar að auki annaðist hún um
lengri og skemri tíma mörg börn
frá fátækum heimilum. Rannveig
tók mikinn þátt í sveitarmálum,
leituðu menn til hennar hópum
saman í raunum sínum og nutu
samúðar liennar og fyrirhyggju.
Eitt sinn rak mikinn fisk, sem
karfi er kallaður, á Háeyri. Báru
tveir menn upp úr flæðarmáli á
lítilli stundu 16 hundruð karfa,
og fengu helming þar af fyrir
ómakið. A Háeyri var stórt grinda
hús fult yfir bita milli gafls og
gáttar af karfakös, skemdist þó
eigi vegna kælu og frosta. Rann-
veig gaf þetta mest alt upp um
sveitir, því víða var matarlítið.
Rannveig Jónsdóttir hafði á
Háeyri mikmn sjávaraútveg, en
ekki hefi jeg getað fundið í ann-
álum nema einu sinni getið um
skiptapa henni viðkomandi, og er
á þessa leið: Mörg skip fórust
fyrir Suðurlandi og Vestmanna-
eyjum. Forgekk áttæringur með
öllum mönnum á Eyrarbakka, það
skip átti Rannveig á Háeyri, spán-
nýtt og- sterkt. Til samanburðar
má geta þess, að á einum degi
fórust á Stafnesi 7 skip, var þar
á hið valdasta verfólk, 60 menn
að tölu, og formennirnir nafn-
greindir dugnaðarmenn, allir á
konungsins skipum. Rak þá upp
47 lík nóttina eftir. Einn mann
rak upp vestur á Mýrum, hafði
hann bundið sig við trje og kom
svo upp með því á viku fresti, þá
nýandaður. Af þessu má marka
það, að Rannveig á Háeyri hefir
vandað mjög td út-gerðar sinnar,
enda haft ágæta skipasmiði í þjón-
ustu sinni, þegar Brynjólfur
Sveinsson biskup í Skálholti ljet
smíða og byggja stórt farmskip;
i því var yfir 20 álna langur kjiil-
ur. Það skip var smíðað á Háeyri
meðan Rannveig bjó þar. Hefir
hún verið langt á undan samtíð
sinni í öllum framkvæmdum. Er
það jafnan svo að hvar sem Rann-
veig Jónsdóttir er nefnd, er ljúfur
ómur við nafn hennar.
Um Halldóru Guðbrandsdóttur
á Hólum taka annálaritarar það
fram, að hún hafi aldrei verið
við mann kend. Má í því sam-
bandi minna á, að þegar Ari
Magniisson í Ogri, var nýorðinn
sýslumaður 22 ára að aldri (hann
var tveimur árum eldri en Hall-
dóra) fór Ari til Hóla að biðja
Halldóru sjer til eiginkonu. Hafði
Ari ineð sjer átján sveina alla
átján ára gamla, og alla um og
yfir þrjár álnir á hæð. Ari var
mjög skrautbúinn og sveinar hans.
Var allnr búnaður fararinnar með
miklum kostnaði og hinn prýði-
legasti. Þeir Ari komu að Hólum
í Hjaltadal um miðjan dag. Guð-
brandur Þorláksson biskup var úti
staddur, var hann jafnan ljett
búinn heima fyrir og oft, lasinn.
Leist sveinum Ara biskup alt
annað en tilkomumikill, og voru
glénsmiklir nokkuð.
Guðbrandur biskup bauð þeim
Ara ekki í stofu, en í biskupsstofu
.voru þær dætur biskups, Halldóra
og Kristín, og gægðust út á bak
við gluggatjöldin, og aðgættu
komumenn. Ari lýsti )>á erindi