Lesbók Morgunblaðsins - 14.01.1934, Blaðsíða 1

Lesbók Morgunblaðsins - 14.01.1934, Blaðsíða 1
2. tölublað. Sunnudaginn 14. janúar 1934. IX. árgangur. i« h f 1 ■ 1 1 ■ - ----- - r. 11 .=s» ■ - 1 ■1 ■■■■'■'' ■ "" ■ Alfred Nobel Friðarvinurinn §em framleiddi drápstoekin. Bernskuár í Svíþjóð — æskuár í Rússlandi og Ameríku. Stofnandi Nobelssjóðsins, sem helstu vísindamönnum, skáldum og friðarvinum, eru árlega veitt verð- laun úr, skapari dynamitsins, reyklausa púðursins og ótal margra síður kunnra efna, Alfred Nobel, var fæddur í Stokkhólmi 21. október 1H33. Emanuel Nobel, fað- ir hans, var húsameistari, en sökti sjer þegar leið á æfina, niður í efnafræði, einkum þá grein henn- ar, sem sonur hans varð síðar heimsfrægur maður fyrir og milj- ónamæringur, sem sje sprengiefna- fræðina. Hafði Emanuel Nobel far- ið víða og aflað sjer reynslu, sem honum tókst að gera sjer arðbæra. Þegar Alfred var fjögra ára flutt- ist faðir hans til Petrograd, en þaðan hafði hann fengið tilhoð um stöðu hjá stjórninni, sem gjarna vildi nota sjer kunnáttu hans í hergagnasmíði. í Petrograd gerði Nobel eldri fyrirmynd að tundurkeyti, sem stjórnin keypti af honum fyrir 25.000 rúblur og fyrir þetta fje kom hann sjer upp vjelsmiðju í borginni og fluttist fjölskylda hans þá til hans. Var Álfred þá níu ára gamall og er talið, að þessi vistaskifti hafi mót- að skap drengsins og alið í hon- um heimsborgaraeðli það, sem jafnan loddi við hann síðan. En annars segir fátt af bernsku No- bels annað en það, að hann fylgd- ist meið áhuga með starfi föður síns og atvinnu, sem þandist út á næstu árum, svo að úr vjelsmiðj- unni varð stór verksmiðja er fram leiddi tundurskeyti og tundurdufl. Alfred Nobel hætti skólanámi 16 ára og fór þá að vinna hjá föður sínum. En hann sendi hann von bráðar til Ameríku, til »hins fræga sænska hugvitsmanns John Ericsson og þar fullnumaðist hann í vjelaverkfræði. Kunnátta hans kom í góðar þarfir er hann kom aftur til Petrograd rúmlega tví- tugur, því að þá unnu um þúsund manns í verksmiðju föður hans, og eingöngu að hergagnagerð. — Áttu Rússar þá í styrjöld við Tyrki og nokkru síðar við Frakka og Bre.ta. Þegar Nobel bjargaði Petrograd. A.uk þess að framleiða hergögn hafði Emanuel Nobel verið falið að verja Petrograd gegn enska

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.