Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 26.08.1934, Qupperneq 1

Lesbók Morgunblaðsins - 26.08.1934, Qupperneq 1
JMor0íWinMsu>0Íw0 35. tölublaS, Suimudaginn 26. ágúst 1934. IX. árgangur. íoafoldarprentamiðja h.f. DRANGEY. EFTIR Gl'BNA JÓIMSSOX. MAQISTER. Eins og skýrt hefir verið frá í Morgunblaðinu þ. 22. þ. m. var að tilhlutun blaðsins farin rann- sóknarför út í Drangey þ. 18. ágúst síðastliðinn. í neíanritaÖri grein skýrir Guðni Jónsson magister frá ferð þessari og árangri hennar, en rekur um leiÖ nokkrar sögulegar minningar, er við Drangey eru tengdar. Drangey er hin mesta undra- smíð frá náttúrunnar hendi. Hún gnæfir eins og rambyggi- leg klettaborg eða kastali upp úr hafinu úti á miðjum Skaga- firði, sjest víða að, skörp í lín- unum, traustleg og ábúðarmikil. Hvaðan sem á hana er litið, rísa lóðrjettir hamraveggir við loft, 120—140 m. háir, og verða því geigvænlegri sem nær þeim er komið. En þegar að eynni kem- ur, færist líf í hina köldu og stirðnuðu kletta, alt iðar af sí- kvikum sjófuglum, sem flögra fram og aftur um björgin, tylla sjer á tæpustu nafirnar eða ör- mjóstu sillurnar, gargandi og skríkjandi, stinga sjer á kaf eft- ir síli og öðru æti, sem krökt er af í sjónum. í smáhvömmum og tóm í björgunum, þar sem klettablómin hafa náð táfestu, er alt kafið í gróðri, stórvöxnu melgrasi, baldursbrá og tún- gresi, en uppi á sjálfri eynni er meira gras en á nokkuru túni, tekur upp fyrir hnje, þjett og þroskamikið eða liggur í legum af ofvexti. í sjónum kringum eyna sveima selir og kópar, skjóta upp kollinum við og við og horfa hátignarlegir í kring- um sig. Þama er þeirra ríki og þarna eiga þeir líka oftast frið- land og nóg til að bíta og brenna. Öll þau náttúrugæði, sem Drangey hefir að bjóða hafa verið nytjuð öldum saman og eru það enn í dag. Þangað sækja menn egg og fugl á vor- in, heyföng á sumrin, en á vetr- um hafa menn þar sauðfé og gengur það sjálfala og þrífst vel. — Vigi Grettis. En auk þess, sem nú var talið, er Drangey merkilegur sögu- staður, og fyrir það er hún frægust. Eins og kunnugt er hafðist Grettir við í Drangey þrjú síðustu árin, sem hann lifði og var drepinn þar ásamt 111- uga bróður sínum. Hefir höf- undi Grettis sögu tekist svo vel að lýsa hinum dapurlegu örlög- um Grettis, síðustu árum hansog dauða í þessari eyðiey, að í vit- und manna er Grettir og Drang- ey svo saman tvinnuð, að naum- ast verður annað nefnt án þess að minst sje hins. Samkvæmt tímatali Grettis sögu fór Grettir út í Drangey haustið 1028. Segir sagan, að Guðmundur ríki hafi ráðlagt honum að fara þangað, en það getur ekki verið rjett, því að Guðmundur dó árið 1025. Það hefir því verið Eyjólfur halti, sonur Guðmundar, sem benti Gretti á að fara út í eyna. Til fylgdar með sjer fekk Grettir Illuga bróður sinn og þrælinn Glaum, sem þeir bræður hittu á leiðinni til eyjarinnar. Voru þeir þar síðan í þrjú ár, þar til Þorbjörn öngull drap þá með svikum og fjölkyngi, að því er sagan segir. Það var seint um haustið 1031. 1 sögunni eru talsvert góðar lýsingar á eynni, landkostum þar og lífsskilyrðum. Fyrst og fremst var eyjan óvenjulega ör- uggur staður. ,,Hon er svá gott vígi, at hvergi má komask upp á hana, nema stigar sje við látnir. Gætir þú þangat komizk, þá veit ek eigi þess manns ván, er þik sæki þangat með vápn- um eða vélum, ef þú gætir vel stigans“, segir Guðmundur ríki (eða Eyjólfur sonur hans) við Gretti. Þegar þeir fjelagar komu I eyna, „þótti Gretti þar gott um at litask, því at hon var grasi vaxin en sjábrött, svá at hvergi mátti upp komask, nema þar sem stigamir váru. Ok ef upp var dreginn inn efri stiginn, var þat einskis manns færleikr at komask upp á eyna.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.