Lesbók Morgunblaðsins - 09.09.1934, Side 2

Lesbók Morgunblaðsins - 09.09.1934, Side 2
29Ö LESBÓK MORQUNBLAÐSINS þetta. Einni*!: á að taka klukk- urnar af stafni kirkjunnar og byggja klukknaport í sáluhliði. Er það vel farið að hlynt sje að þessari kirkju, því að það er ein- hver merkilegasta kirkja á land- inu, og stendur við þjóðbraut. Prá Víðimýri til Sauðárkróks er 30 km. vegur. Þjettbýlt er á þeirri leið, en yfirleitt eru bygg- ingar slæmar. Þar er hver torf- bærinn við annan, aliir hlaðnir úr klömbruhnausum (þ. e. hnaus- um, sem liggja skáhallir á rönd sitt á hvað í hverju lagi). Þessir veggir gróa aldrei, og eru bæirn- ir því ljótir tilsýndar, en veggirn- ir standa von úr viti, einkum ef þeir eru bundnir með torfstreng milli laga. 0 Höfuðborg Skagfirðinga. Sauðárkrók má kalla höfuðborg Skagfirðing'a, enda er hann aðal- verslunarstaðurinn þar. Á Sauð- árkrók eiga nú heima um 800 íbúar og er bærinn því ekki stór, en mikil verslun er þar, því að þangað sækja menn utan af Skaga, framan úr Goðdölum og austan úr Blönduhlíð og á öllu svæðinu þar á milli. Sauðárkiókur stendur á dálít- illi eyri undir háum mel, inst við fjörðinn að vestanverðu. Ekki er staðurinn sjálfur fallegur, en fag- urt er útsýni þaðan. Bærinn hef- ir stækkað mikið seinusitu árin og vaxið suður á bóginn. Er þar nú komið nýtt hverfi af skipu- lega bygðum steinhúsum, en eldri hluti bæjarins er óskipulega bygð- ur eins og mörg önnur kauptún hjer á landi, og er þar hvað inn- an um annað bæir, smákofar og stórhýsi. Sildarverkun á Sauðárkróki. Stækkun bæjarins stafar af því, að fólk hefir þyrpst þangað úr sveitunum, enda þótt um litla at- vinnu hafi verið að ræða. En þar er ódýrt að byggja hús, ríkið á lóðirnar og leigir þær fyrir sama sem ekki neitt, efni til húsbygg- inga er rjett við hendina og kaup- gjald hefir verið lágt, miðað við kaupgjald hjer í Reykjavík. Fyrir nokkrum árum var bygð hafskipabryggja í Króknum, og' eftir það var byrjað að salta síld þar. En ekki komst neinn skriður á það fyr en í sumar. Þá lögðu mörg skip þar upp afla sinn, og hafa verið saltaðar þar um 11.000 tunnur. Hefir því verið líf og fjör þar í sumar, ólikt því, sem verið hefir á undanförnum árum. Þeg- ar sem mest barst að af síldinni voru allir, sem vetling gátu vald- ið og' ekki höfðu öðrum störfum að gegna, kallaðir í síldarvinnu, alt frá smástrákum og telpum að gömlum kerlingum og körlum, Og' það var varla um annað talað þar en síld — síld — síld. Hafa þorpsbúar fengið mikið fje í vinnulaun og eru nú betur undir vet.urinn búnir en nokkru sinni áður. Og þessi síldarútgerð hefir hleypt fjöri í alt viðskiftalíf og gert menn stórhug'a. Nú vilja þeir fara að byggja höfn og gera Sauðárkrók að þeim síldarstað, sem kept geti við sjálfan Siglufjörð. Og víst er um það, að ýms skilvrði eru ti] þess að þetta sje luegt. Rjett fyrir norð- an bæinn er dálítill tangi og s*tór, sljett eyri upp af honum vestur að Gönguskarðsórósi. Eyrin hefir myndast af framburði úr ánni. Nú er ætlunin að byggja heljar mik- inn hafnargarð fram af tang’anum og láta iiann sveigjast inn á við. En vegna þess að þarna er sand- botn, hefir mönnum komið það snjallræði í liug að breyta ósi Gönguskarðsár og láta hana renna austur með tanganum. Ætlast menn ti| að grjót og möl, sem hún ber fram í stórum stíl, hlað- ist upp með hafnargarðinum að noi-ðan og verði lionum hlíf og styrkur. Á eyrinni er landrými nóg fyrir marg'ar síldverkunar- stöðvar og síldarbræðslur, ef vill. Vatn fæst úr Gönguskarðsá og svo má líka virkja ána og fá nóg- an kraft til ljósa, verksmiðju- rekstrar og hegra, ef vill .Er ekki að vita nema að innan fárra ára rísi þarna upp eitt hið stærsta síldarver hjer á landi, því að oftast er síld á Húnaflóa og Skagafirði og þykir sú síld betri, stærri og feitari, heldur en síld, sem veiðist austar. Og þegar svo er komið, fer Sauðárkrókur að verða skæður keppinautur Sig'lufjarðar, Norðmenn hafa gert tilboð í hafnarbygginguna og' talsvert fje er þegar til þess að byrja á henni, og mun því bráðlega verða byrjað á framkvæmdum. Sauðárkróksmenn eru líka mikl ir búmenn, og er þar ræktun mikil, kálgarðar og tún. Þorpið er hrepp- ur út af fyrir sig, og keypti hann fyrir nokkrum árum jörðina Sauðá. Hefir hxin verið brytjuð Eyrin hjá Göngu- skarðsárósi, þar sem á aO rlsa upp hin nýja slldarstöð. Hafnar- garöinn á aö byggja fram af tanganum bak við húsiö til hœgri.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.