Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 09.09.1934, Qupperneq 5

Lesbók Morgunblaðsins - 09.09.1934, Qupperneq 5
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 293 „Móðurkirkjan“ í Boston. Þegar maður nálg'ast Boston, Massachusetts, sjest gnæfa yfir þök og turna borgarinnar, hinn mikli hvolfturn á „The First Cliurch of Christ Scientist“. Á kirkju þessari hafa þeir svo mikl- ar mætur, að þeir kalla liana „The. Mother Church“. „Christian Scien- ce“ hreyfingin var fyrst stofnsett í Boston og stjórn hennar situr þar. Kirkjur, sem tilheyra „Móð- ur kirkjunni“, eru næstum um allan hinn mentaða heim. Hin upprunaleg'a „Móður kirkja“, sem var vígð 1895 og hafði sæti fyrir hjer um bil þús- und manns, varð brátt of lítil til að rúma alla þá, sem óskuðu að vera við guðsþjónusturnar. Tíu árum seinna, var því bætt við hana, og á þessum viðbæti er þessi fagri hvolfturn, sem er 224 fdt. frá jörðu, að þvermáli 82 fet. 1 áheyrendásalnum eru sæti fyrir hjer um bil fimm þúsund manns^ Tvö ár var verið að byggja þennan viðbæti og kostaði hann tvær miljónir dollara. Þessi liluti kirkjunnar var vígður í júní 1906, ,og skuldaði kirkjan þá ekki cent, því að „Christian Scientistar“ vestan hafs og austan liöfðu með gleði lagt fram, það sem hvin kostaði. Þeg'ar ársfundur Móðurkirkj- unnar er lialdinn í júní, er kirkj- an oft þröngt skipuð, því að marg- ar þúsundir af meðlimum henn- ar sækja fundinn. I þessum við- bæti við Móðurkirkjuna eru guðsþjónustur haldnar á sunnu- dögum og fundir á miðvikudags- kvöldum, þar sem gefin eru vott- orð um lækningar með „Christian Science“; einnig eru þar haldnir „Christian Science" fyrirlestrar. Engar jarðarfarir, eða giftingar fara þar fram og heldur ekki neinar veislur, eða skemtanir, t: að safna fje fyrir kirkjuna. Kirkjunni er aðallega haldið uppi með frjálsum tillögum. Viðbætirinn er bygður úr kalk- steini frá Indíana og granit frá New Hampshire. En í New Hampshire er höfundur og stofn- andi Christian Science, Mary Baker Eddy, fædd. Veggirnir í áheyrendasalnum eru úr kalk- steini, en sætin úr mahog'nitrje frá Domingo. Orgelið er mjög stórt og eftirtektarvert, og sjást hinar gyltu pípur þess á bak við hinn veglega ræðustól, en á honum standa tvö lesborð, fyrir þá, sem stýra guðsþjónustunni. Mjög er áberandi, hve þarna er bjart og rúmgott. Bæði innra og ytra er kirkjan eftirtektarverð og fögúr, enda er hún ein af stærstu kirkj- um heimsins. (Anna Ó. þýddi). ---------------- Krosagátan í „Times“. Englendingar hafa ynd: af smá- munum og allskonar képni. Það er nú t. d. það hver snjallastur er að ráða krossgáturnar í „Tjmes“. Helstu menn landsins sendi blað- inu greinir urn nve lengi þ?ir hafi verið að levsa gáturnar og einn kemur öðrum meiri. Sir Josia’i Stamp, einn aí for- stjórunum í línglandsbanka skrif- aði nýlega, að hann liefði ráðíð tilnefnda krossgátu „með — cða þrátt fyrir — afskiftasemi fjöl- skyldunnar, á 50 mínútum“. Svo kom sir Louis Jackson, generalmajor og kvaðst hafa leyst gátuna á 49 mínútum og það þótti honum vel af sjer vikið. Þá kom eftirfarandi brjef: — Sir, — Sir Josiali Stamps verður að reyna aftur. Fimtíu mínútur (með eða án lijálpar) duga ekki. Jeg athugaði hve lengi jeg var að leysa þessa krossgátu, og það voru 41 mínúta og átti jeg þó lengi að stríða við eitt orð. En spyrjið prófastinn í Eton. Mjer hafa sagt sannsöglir menn, að hann ráði hverja krossg'átu á meðan morguneggið hans er að soðna — og hann vill ekki sjá harðsoðið egg. Yður einlægur Austin Chamberlain. Brjefritarinn áitti ekki metið í því, að ráða þessa krossgátu. Margir höfðu ráðið hana á styttri tíma, t. d. Russel lávarður af Killowen á 12 mín. og 59 sek. a

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.