Lesbók Morgunblaðsins - 18.04.1937, Blaðsíða 1
15. tölublað.
Sunnudaginn 18. apríl 1937.
XII. árgangur.
ínkfuláarprentamiflja h.f.
vornn
VIKIVAKI EFTIR JAKOBINU JOHNSON.
Nýjung þessa Fróni frá
frostgolan mjer bar:
Áður ókunn vofa
er á ferðum þar.
Sást hún óvænt og ein
út’ á Húsavík.
— Sveimar þar um sand og
höfða sæfugli lík.
Sagt er heim í Hólmavað
hafi ’ún leitað fyrst.
Út’ á grænum engjum
öldung nokkrum birst.
Tíndi fífil úr flekk
— fólk að slætti var.
Gekk svo inn í Grýlubæ og
geymir sig þar.
Sást hún næst á Sjávarborg
— sagfði frá því mær —
þar sem þrílit fjóla
þjett við klettinn grær.
Festi blóm sjer í barm,
— björt var nótt 0£ heið.
Sólin rann — og dreglað ský
til Drangeyjar leið.
Grindavík er henni höfn,
heyrist fagfurt lagf.
Leikur ljett um garðinn
við læknis hörpuslag:.
— En ef opnuð er hurð, eða
borið ljós
sjest þar hvítur þokuhnoðri
hverfa til sjós.
Þegar tignir svanir sjást
sigla á Víkur Tjörn,
— út í hólma æður
með ótal syfjuð börn, —
hafa sjáendur sjeð sumar-
kvöldum á
bjartri vofu bregða fyrir
björkunum hjá.
Kynt er þar á nýjársnótt
næsta fagurt bál.
Unga ísland dansar
með eld og fjör í sál.
— Læðist vofan í leik, ljúf-
lings klæði ber.
Álfkonu engpnn nema 'lnd-
riði sjer.
Desember 1936.
Jakobína Johnson.