Lesbók Morgunblaðsins - 06.06.1937, Side 1
orgratMa$sMi9
22. tölublað.
Sunnudaginn 6. júní 1937.
XII. árgangur.
/•afuluarprtiatamiðja h.f.
Þegar Caballerostjórnin
flúði um miðja nótt frá
Madrid til Valencia — .
PESSI saga hefst í hermála-
ráðuneytinu í Madrid. Largó
Caballero og ráðlierrar hans voru
á ráðuneytisfundi, sem reyndist
vera síðasti ráðuneytisfundur
þeirra í höfuðborgiuni. Mánaðar-
dagurinn var: Föstudagur 6. nóv-
ember 1936.
Jeg hafði mælt mjer mót við
utanríkismálaráðherrami del
Vayo. Jeg gat. talað við hann í
nokkrar mínútuv — jeg man hve
veiklulegur hann var ásýndum —
en þar sem ráðuneytisfundurinn
var að byrja, bað hann mig
að koma aftur klukkan þrjú.
Þetta var um hádegisbilið.
*
tyrjöldin var nú komin inn
á götur Madrid. Uppreisnar-
menn höfðu rutt sjer braut inn
í úthverfin, aðeins 5 km. frá þeim
stað, þar sem Caballero-ráðuneyt-
ið hjelt fund sinn, og ráðherrarn-
ir gátu heyrt skothvellina inn í
fundarherbergi til sín. Stundum
heyrðust hærri hvellir en venju-
lega — alveg eins og Franeo væri
að berja hnefanum í borðið inni
hjá ráðherrunum.
Þegar jeg kom aftur klukkaii
3, stóð fundurinn enn yfir, og
þegar jeg hafði heðið í hálfa
klukkustund, hjelt jeg aftur í
burtu.
#
I
Þegar byrjað var að rökkva
lagði heil fylking af bifreiðum af
stað frá Madrid og fór sem leið
liggur eftir veginum sem liggur
til Valeneia. Þenna veg er farið
um borgina Tarancon, þar sem
anarkistar höfðu um þessar mund-
ir eftirlit með þjóðvegunum.
I fyrstu bifreiðinni var Caball-
ero. Hann komst leiðar sinnar um
Taraneon án þess að nokkur reyndi
að stöðva hann, en þegar hinar
bifrefðarnar komu hver á eftir
annari, og ráðherra í hverri bif-
reið, fór anarkistana að gruna
ýmislegt. Ráðuneytið var að flýja
frá Madrid!
Bifreiðarnar voru stöðvaðar,
spurningar voru lagðar fyrir ráð-
herrana og þeim síðan skipað að
smia aftnr til Madrid. Del Vayo
og báðir ráðherrarnir úr kommún-
istaflokknum, Hernandez og
Uribe, sem voru í sömu bifreið,
reyndn í liálfa aðra klukkustund
að fá anarkistanefndina, sem
þarna var ráðandi, til þess að
„hleypa þeim í gegn“. En allar
rökræður og hótanir komu fyrir
ekki. Þeir urðn að snúa aftur.
Jafnvel anarkistaráðherrarnir
fjórir, sem komu í bifreið sinni
nokkru síðar, fengu ekki að halda
áfram.
Þessi skilningur, sem anarkist-
arnir lögðu í slagorðið: „No Pas-
aran“ (þeir skulvr ekki komast í
gegn) kom ráðherrunum alveg á
óvart.
#
Eftir
William Forrest
breskanblaðamann
sem dvaldi í Madríd
í nóvember síðastl.
Ein af bifreiðum ráðherranna
reyndi að halda áfram. Það
var bifreið Senors Bugeda, skrif-
stofustjórans í fjármálaráðuneyt-
inu. Þegar hann sá fram á, að
hann myndi ekki fá að halda á-
fram, sagði hann bílstjóra sínum
að „stíga á bensínið“. Bílstjórinn
gerði eins og fyrir hann var lagt,
en anarkistar tóku á rás á eftir
og liófu vjelbyssuskothríð á bif-
reiðina. Skrifstofustjórinn var
fluttur heim aftur — fangi.
Þarna voru þá allir ráðherrar
spánska ráðuneytisins, að Caball-
ero undanskildum, innikróaðir á
hinni lirjóstrugu Castillíu-há-
sljettu á hrollköldum nóvember-
degi, með Franco-hersveitirnar að
baki, en þær virtust í þann veg-
inn að halda innreið sína í Mad-
rid, og framundan anarkistar, sem
vildu ekki leyfa þeim að flýja
í skjól. Þeim fylgdi þó sú hepni,
að hægt var að komast aðra leið
til Valencia en um þorpið Taran-
con. Krókavegir eru norðan og
sunnan við þjóðveginn, og með
því að beygja af inn á þessar hlið-
arbrautir og halda áfrarn ferð-
inni alla nóttina, gátu ráðherr-
arnir náð fundi foringja síns í
Valencia næsta morgunn.