Lesbók Morgunblaðsins - 13.06.1937, Side 1
or<wȒ>Iai>sitis
23. tölublað.
Sunnudaginn 13. júní 1937.
XII. árgangur.
um BJÖRN JÓNSSON
stofnanda Isafoldarprentsmiðju
Björn Jónsson.
SAMTAL VIÐ
EINAR H. KVARAN
Einar H. Kvaran er einn af
þeim fáu mönnum sem enn
eru á lífi og verið hafa samverka-
menn Björns Jónssonar ísafoldar-
ritstjóra. Tíðindama$Sur blaðsins
hefir haft tal af Einari og hefir
hann sagt ýmislegt um starfshætti
þessa merka blaðamanns og samtíð
hans.
— Það sem einkendi Björn Jóns-
son ritstjóra fyrir samtíðarmönn-
um hans var hin dæmalausa starfs-
orka og vinnuþrek, segir Einar H.
Kvaran. Þarna sat hann í skrif-
stofu sinni í Isafoldarprentsmiðju
lon og don dag eftir dag.
Hann átti það til að vinna 18
klukkustundir í sólarhring. Það
gerði hann til dæmis er hann var
að gefa út orðabókina dönsku, er
síra Jónas á Hrafnagili var aðal-
höfundur að. Hann hafði keypt
handritið af síra Jónasi. En þegar
hann var að byrja að láta prenta
það, sá hann að það þurfti mikilla
endurbóta við. Og þá tók hann
sjer fyrir hendur ^ð endurbæta
handritið undir prentun og hafa
undan prenturunum. Með öðru
sem hann liafði að gera varð úr
því 18 klukkustunda vinna á sól-
arhringnum.
— Bókaforlag Björns og starf-
ræksla öll var mikil á þeirra tíma
mælikvarða.
— Já, vissulega. Björn kom fyr-
irtækjum sínum snemma vel fvrir.
Hann keypti Landsprentsmiðjuna
af Einari Þórðarsyni og allmikil
bókaútgáfa fylgdi með í kaupun-
um. Þar á meðal bækur, sem ákaf-
lega mikið voru seldar, svo sem
Biblíusögur síra Olafs Pálssonar
og Mannkynssaga Páls Melsted, sú
mijini.
Mikið af starfstíma Björns fór í
að hugsa uni forlagið. En hann
annaðist um allar greinar fyrir-
tækis síns, hafði umsjón með verki