Lesbók Morgunblaðsins - 31.10.1937, Side 1
Kín ver j ar---------------
Lifnaðarhættir þeirra og menning
Frásögn íslenskr-
ar konu, frú
Oddnýjar Sen.
Frú Oddný Sen er íslensk
kona, gift í Kína, sem ný-
lega er komin í heimsókn til
íslands. Maður hennar er pró-
fessor í sálar- og uppeldisfræði
við háskólann á Amoy, lítilli
eyju (110 km" — íbúar 300
þúsund) í Fu-Kien-hjeraðinu,
skamt frá Formosa. Frú Oddný
hefir dvalið 15 ár sarfifleytt í
Kína ,og hefir aldrei hitt landa
allan þann tíma, nema fyrsta
árið, er þau hjónin bjuggu í
Shanghai. Þá hitti hún íslenska
konu, Mrs. Hayes, er var gift
enskum trúboða. Er aðdáunar-
vert, að heyra, hve vel frú
Oddný hefir haldið við móður-
málinu, talar hún lýta'laust ís-
lensku og með mjög litlum út-
lendum hreim. Tvö börn þeirra
hjóna eru með móður sinni hjer,
Jón 13 ára og Signý 9 ára.
Frjettaritari Lesbókarinnar
hitti frúna að máli á heimili
bróður hennar, dr. Jóns Vest-
dal, hjer í bæ, rjett eftir að
hún kom.
— Verðið þjer lengi heima að
sinni?
— Við verðum að núusta kosti
oitt ár. Börnin eru farin að kunna
vel við sig, þó að þau skilji ekki
málið. En þau ætla sjer að læra
íslensku, og eru byrjuð á því þeg-
ar. Þau höfðu aldrei á æfi sinni
sjeð snjó, og vissu ekki livað frost
var, þegar þau lögðu af stað að
lieiman. Og þau urðu afar hrifin,
þegar þau sáu „málverkin" á
rúðunum, þegar þau vöknuðu, en
þannig nefndu þau hjeluna, og
norðurljósin fi.i't þeim töfrandi.
Síðan bars talið ,ð