Lesbók Morgunblaðsins - 14.11.1937, Blaðsíða 1
44. tölublað.
jmorgamMaðstns
Sunnudaginn 14. nóvember 1937.
XII. árgangur.
íatfoU&rpraoteml*}* k.f.
• .’VVVV * VVVVVVVVVWVVV%’W
VTmGÖLD.
|
Eftir Guðmund Friðjónsson.
I
Að jarðriki Kmverja Japani snýr
þeim járnhólk, sem eldi og brennistein
þeytir.
Um heimskringlu víðlenda heyrist
gnýr,
er herskái aðiljinn vopnum beitir.
Sá ylfingur fer um allar sveitir í eft-
irleitir.
Og Stalin þursinn með bústýru býr,
er bölvun holdgaða mætti nefna.
Sem nærri má geta, er hún ekki hýr.
í hljóði og opinskátt þau vilja efna:
norður og niður að stefna
í nótt, sem er dekkri en hrefna.
I Hitlers ríki er hugsun frjáls
að höggstokk leidd. Hvflík firn og und-
ur!
Og víðsýnum anda er varnað máls;
í verksmiðjum nífaldað sprengitundur;
að stálhúfum gerður meyja mundur,
í messu stað kominn hermálafundur.
>*
í veröld Mussolins viðrar svo:
að vábrestir þrymja yfir Miðjarðar-
unni.
Einn páfastólsnágranna þyrfti að þvo
og þræla hans alla með kefli í munni.
Ef menningin drykki úr Mimis brunni:
hún myndi byggja á traustum grunni.
lTm Franco og hina má fella þann dóm:
þeir fá sjer hjá úlfi og hýenu vini.
Frá Síberíu og suður í Róm
þeir samneyta, glottandi, nöðrukyni
á villibráð ala sína syni.
Aðalsmenn bara að yfirskini.
Á hertogum þessum er hárbragð til
marks
um hugarfarið og breytni alla.
Þeir hringsóla á kveldin frá Hrappi til
Karks
og handleika morðvopn, um laumuspil
fjalla
og hver annan skrumríkir skjalla;
á skurðgoð til fulltingis kalla.
Á vargöld, sem ríkir á vesalli jörð,
er vonin í hnípri og trú á flótta.
í brjóstvörnum Drottins blasa við
skörð.
Á blóðvelli hermanna er faraldur sótta.
En litverp af blygðun þau Aftann og
Ótta.
Hin synduga jörð vor í svaðilferð er
og sýpur hveljur í næturveldi,
og naumast hjeðan af barr sitt ber,
verður brend að fölskva í taumlausum
eldi,
því að við lögmáli skoll’eyrum skeldi.
»»»»»»»»»»»»♦»»»»»»»»♦♦»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»«»»»»»»»»»»»♦»»»»»»»♦»♦»♦♦♦♦♦
M~x~x~x~x~x~:~x~x~x~x~x~x~:~x~c~x~x~x~x~x~x~x~x~x~x**x~x~:~x*