Lesbók Morgunblaðsins - 28.08.1938, Side 5

Lesbók Morgunblaðsins - 28.08.1938, Side 5
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 269 ÖRÆFAFERÐ FERÐAFJELAGSINS V. Skeiðar ár sandur Morsárjökull, eins o, Eftir Arna Ola. Skeiðarárjökull blasir vel við frá Skaftafelli. Haun tekur miklum breytingum við. hvert iilaup. Á undan lilaupunum liækk ar hann, og segja Oræfingar, að hann bólgni upp. En hversu miklu sú hækkun nernur, verður ekki sagt, Jjví að frá Skaftafelli verð- ur ekki miðað við neitt nema Lómagnúp, hvað mikið sjest á hann yfir jökulinn. Oddur í Bölta sagði mjer að jökullinn hefði lækkað injög mikið eftir hlaupið í vor. Jeg spurði hann að því, hvar hlaupið hefði komið undan jökl inum,*en hann svaraði því, að það hefði komið undan honum öllum, aðeins misjafnlega mikið. Þetta mátti vel sjá heiman frá bænum. Þar sem stærstu útrásirnar höfðu verið, voru skörð framan í jökul- inn, því að þar hafði brotnað úr honum. Þetta sáum vjer þó alt betur, þegar vjer fórum yfir sand inn, og að það var rjett, sem Odd ur sagði, að hlaupið hafði konnð undan öllum jöklinum. Nti er jökullinn um 25—-30 km. breiður þar sem hann flest frani á sandinn, og geta menn nokkuð af því markað, hve geisilegt vatnsmagn hefir ldaupið fram und an honum. Og þó skilja þeir það enn betur, er þeir athuga það, að flóðið var víða svo djúpt, að það bar langt fram á sand borgar- ísjaka, sem voru eins og stærstu hús. Hvernig stendur nú á því, að Skeiðarárhlaupin haga sjer þann ig, að þau koma ekki fram á viss- um stöðum, heldur alls staðar und- an jöklinum? Þegar jeg heyrði að jökullinn hækkaði á undan hlaupunum, en lækkaði eftir þau, fanst mjer svar- ið liggja nærhendis. EinhVers staðar lengst norður dálkur tilsýndar. í Vatnajökli (ef td vill í Gríms- vötnum) er jarðhiti, svo að jök- ullinn bráðnar að neðan, og smám saman ejrkst vatnið í þeirri hvelf ingu, sem myndast. Það leitar á hallann og eftir því sem vatns- þunginn verður meiri, þjappast neðsta vatnið saman, og fær marg falt lyftiafl, líkt og dúnkraftar, og lyftir jöklinum upp. Á undan sjer ekur það sandi, möl og lausa- grjóti, sem jökullinn hefir molað undir sig, og notar það sem meit il til þess að losa jökulinn frá jarðveginum. Þannig heldur það áfram á hallann, uns það kemst undir Skeiðaráf'jökul og lyftir honum bókstaflega öllum upp, svo að hann er á floti. Og um leið og jökulsporðurinn lyftist, brýst hið ægilega flóð fram undan honum öllum. Hvað vatnsmagnið er mik- ið, getur enginn sagt. Ef til vill er það álíka sopi og er í Þing- vallavatni, ef til vill miklu meira. Ymsir munu nú ætla, að skrið- jökullinn ætti allur að hlaupa fram, ef hann væri á floti. En á- stæðan til þess, að hann gerir það ekki, er sú, að undir honum eru ýmsar mishæðir og klettar, sem hann hangir á. Þessar mishæðir og kletta sverfur jökullinn jafnt og þjett, og þess vegna getur far- ið svo einhvern tíma, að ekkert Upptök Skeiðarár. Jökulfell til hægri.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.