Lesbók Morgunblaðsins - 07.12.1941, Blaðsíða 7

Lesbók Morgunblaðsins - 07.12.1941, Blaðsíða 7
LE8BÓK MORGUNBLAÐSTNm 423 FLOGIÐ NIÐUR f GRJÓTNÁMSGJÁ. EGAR hjer var komið, var loftið fult af loftvarnaakot- um. því Þjóðverjarnir höfðu sett alt, sem þeir gátu nefnt bvssur, í gang. Um leið og jeg beygði til hœgri, til að komast út úr loft- varnahríðinui, sá jeg að flugvjei nr. 2 í minni flugsveit hrapaði niður i ljósum loga, en svo vi'rt- ist, sem flugmaðurinn hefði þó enn stjórn á vjelinni. Við fund- um vjelina okkar kippast við, er loftvarnakúlnabrot hittu hana. Bakskyttan mín fjekk kúlubrot í höfuðið, en til allrar liamingju var hann með stálhjálminn sinn á höfðinu og kom dæld í hann, til minningar um ferðina. En nú var komin ringulreið á sveit mína og hver hugsaði um sig. Flugvjel nr. 3 var líka horfin. Skygnismaður minn, sem var aó reyna að taka myndir, hrópaði til mín að aðrar tvær Me. stefndu á okkur. Við vorum yfir gríðar- mikilli sandgryfju eða grjótnáms- gjá og jeg tók alla sveit mína, eða það, sem eftir var af henni, ofan í þessa gjá. Við vorum minsta kosti 30 fet undir yfirborði jarð- ar — sennilega það lægsta, sem nokkur flugvjel hefir flogið. En við ljekum á Þjóðverjana, og er við komum upp aftur, voru þeir horfnir. .Jeg revndi að koma skipu lagi á sveitina aftur, til þess að safna saman sem mestu af byssum í' einn hóp og tókst loks að ná saman sex vjelum. Ein flugvjel- anna hvarf frá sveitinni, senni- lega vegna vjelbilunar og við sá- um eina Me. ráðast á hann. Hann lenti prýðilega „magalendingu“ í lundi einum. („Magalendingu*' kalla breskir flugmenn, er þeir lenda á skrokk vjelarinnar, en geta ekki einhverra hluta vegna, notað hjólin). Síðan rjeð- ist Me. vjelin á okkur. Bakskytt- an mín gat ekki miðað á hana vegna þess að hún flaug beint fyrir aftan okkur, og ef okkar maður hefði skotið, hefði hann hitt beint í stjelið á sinni eigin vjel. Vjelin við hliðina á mjer var í vanda stödd, vegna þess að sjálfvirka kerfið hennar var bilað og gat skytta hennar ekki hreyft skotturninn. Jeg ljet vjel okkar falla til hliðar, til að ná betra skotfæri og skyttan mín hóf skothríð. Einnig var skotið frá öðrum flugvjelum. Við sáum Þjóð- verjann hrapa til jarðar. Við vorum nú komnir svo lágt, að jeg heyrði skygnismann minn hrópa, og mjer tókst að halla vjelinni og forða því á síðasta augnabliki, að stjórnborðs væng urinn okkar lenti á kirkjuturni, en við það að hallast, lenti hak- borðsvængurinn á trjetoppi. og mjer datt ekki annað í hug en að við myndum lenda á torgi í smá- þorpi einu. En vjelin rjetti sitr aftnr í tæka tíð. Það var hepni', aö við höfðum losað okkur við sprengjurnar. Er við komum nær ströndinni á bakaleið, hurfu Me. orustuflug- vjelarnar frá okkur aftur og við sameinuðumst stórri sveit Blen- heim flugvjela. Fyrir ofan okkur komum við auga á stóra Ju. 52, þýska flutningaflugvjel, sem var á hægu flugi. Flugmaðurinn í henni vissi augsýnilega ekkert um okk- ur fyrir neðan sig. Við beygðum allir upp og allir skutu á hana. Seinast sáum við til hennar þar sem hún hvarf niður í skóg. Jeg þori að veðja að Jerry hafði ekki hugmynd um hvaðan skotin á hann komu. ★ Fyrir utan Hollandsstrendur lentum við í viðureign, sem átti sjer stað milli Me. orustuflugvjela og „Whirlwind“ vjela, sem höfðu verið sendar til móts við okkur. Þjóðverjarnir höfðu augsýnilega verið sendir til að ráðast á okkur. Það virtist svo, sem okkar or- ustuflugvjelar stæðu sig vel, því það kom aðeins ein Me. til árásar á okkur. Hann rjeðist á fremstu sveitina frá hlið og í fvrstu skot hríðinni frá honum hrapaði ein af okkar flugvjelum í sjóinn, en þeir okkar, sem eftir fylgdu, skutu Me. vjelina niður hjer um bil á sama augnabliki, svo báðar flug- vjelarnar fjellu í sjóinn rjett hjá hvor annari, svo að segja á sama tíma. Það var sannarlega ánægju- legt fyrir okktir að sjá, að „Whirl wind“ vjelarnar tóku að sjer að afgreiða Me. vjelarnar. Við höfð-( um búist við átökum við Hollands strendur, en okkur hlakkaði sann- arlega ekki neitt til þess. Yfir Norðursjónum lentum við í mikilli rigningu, sem varð okkur einskonar hlíf. Það varð til þess að við gátum safnast saman á ný. Er við komum heim, sáum við að mikill mannfjöldi beið okkar. Jafnvel vegirnir, sem lágu að flug vellinum voru þaktir fólki. Það var eins og á flugsýningu á frið- artímum. Sennilega hefir fólkið orðið vart við, er við lögðum af stað og getið sjer til að eitthvað væri á seiði. Við hjeldum þarna ágæta sýningu fyrir áhorfeudur okkar, vegna þess að sumir pilt- anna höfðu orðið fyrir því að hjólin voru skotin undan flug- vjelum þeirra, eða ólag var á, svo ekki var hægt að lenda á þeim. Það voru því nokkrir, sem þurftu að lenda „magalendingu“, sem sýnist vera hættuleg, en er það þó ekki, ef alt er í lagí með vængi og stjel. Síðasta flugvjelin okkar kom heim kl. 13.13. Flestir okkar voru dálítið utan við sig fyrstu klukkutímana á eftir. Það var einna líkast því að hafa „timbur- menn“. Á leiðinni höfðum við ekki tíma til að hugsa mikið um ferða- lagið — altof fjárans uppteknir. Nú er ástæðulaust að hugsa um það. Þetta var í raun og veru ekki neitt sjerstakt. — Hjerna eru skórnir þínir, pabbi minn. Jeg reimaði þá fyrir þig, því jeg sá hvað þú ert mikið að flýta þjer! ★ — Ef jeg mætti ráða, væru 265 frídagar á ári. — Ertu frá þjer maður — þá væri unnið fjórða hvert ár. ★ —• Jeg hafði einu sinni dverg í vinnu hjá mjer. Það var nú sann- kallaður dvergur. Þegar hann fjekk líkþorn á tærnar, hjelt hann að hann væri með höfuðverk. ★ Þegar Nevil biskup var gerður að erkibiskup í Kantaraborg, árið 1467. var haldin veisla mikil og skorti þar ekki fæðu. Alls voru jetin 1000 lömb, 2000 svín, 12 hnísur og 12 selir.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.