Lesbók Morgunblaðsins - 19.04.1942, Blaðsíða 3

Lesbók Morgunblaðsins - 19.04.1942, Blaðsíða 3
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ' 123 skjálfa og brosti sællega. Þa segir hann snögglega alvörugef- inn: „Guðmundur, mjer er orðið ilt, jeg er að fá óráð,-----mjer er ilt í höfðinu — mjer finst jeg vera að hólgna allur á höndum og fótum“. Skömmu seinna var sá iiægláti og þegjandi maður farinn að syngja „slagara11 og „úr allri iiættu“. í annað sinn, er tjöld vor rifn uðu á þessum slóðum, var Luise Ullrich með í förinni. Upp við há jökulinn í 36 tíma ofsahríð urð- um við að dvelja 4 í 2ja manna tjaldi eftir að aðaltjaldið rifnaði. Uó var rúm til að elda margrjett aðan afmœlisveislukost í tjaldinu, enda stóð gildið alla nóttina og til hádegis næsta dag, en þá var komið fagurt veður. Slíkar hugsanir heimsækja mig, er jeg hlusta á veðurgnýinn á þak- inu. Kl. 5 um morguninn koma 2 Uienn fannbarðir í skálann. Tjald þeirra er rifið, en farangur ó- skemdur. Kl. 7 koma aðrir tjald- t*úar úr tjaldi nr. 2, en þriðja tjaldið hefir skemst lítilsháttar skarafoki. Til þess að ljetta á skálanum byrjum við því að grafa snjóhús ofan í hjarnið norðan við skálann. Veðurhæðin er ennþá uiikil og snjóborgirnar, sem við öygðum um kvöldið, hafa eigi staðist skarafokið og veðurofs- ann, samskeytin milli snjóköggl- anna opnast og áveðurshliðin jest upp af ísplötum og skara, er sífelt dynur á húsunum. Hvelfingar grafnar í hjarnið eru öruggar vistarverur. Við höf- Um sjerstök tæki til að grafa þær jun' í hengju, svo að gólfið er lág- Ðraumadal. rjett, íssagir, íshakar og stungu- skóflur ganga mann frá manni. Verkfræðingar og hagleiksmenn mynda hvelfingar, er hvíla á súl- um, í veggjunum eru auk þess skápar og skot fyrir hvaðeina. Nú tók að kólna í veðri, mælirinn sýndi -f- 19 stig og var því kulda- legt um að litast hjá snjóhúsabu- um. Voru þær vistarverur því kall aðar Norðurvígstöðvar eða Mur- mansk. 9 stúlkur bvgðu sína eigin hvelfingu, og er það ábyggilegn fyrsta snyrtistofa, sem gerð hefir verið á íslandsjöklum. Kölluðum við þar Donetsvígstöðvar, en tjald- búðirnar Staraya Russa, sökum þess að þær yoru mest aðþrengd- ar, en hinsvegar vildu kappar þar eigi gefast upp. Við Krímbúar í skálanum olíu- litlir og kolalausir, tókum þó við þeim. er gáfust upp á öðrum stöðvum. Laugardag fyrir páska var fag- urt um að litast, er út var komið um nóttina. Má gera ráð fyrir að frostið hafi komist upp í 25— 27 stig, því kl. 7V2 var 20 stiga frost. Nú var fólk árla á fótum, því völ var á margháttuðum ferðalög- um um jöklana. Vigfús Sigurgeirsson hafði nóg að starfa við kvikmyndatökur, enda ljetu „stjörnurnar“ eigi standa á sjer. Þarna voru ýrvals- kappar úr ýmsum íþróttafjelögum og meyjaval. Um daginn var farið um Goðalandsjökla og Heljar- kamb, enginn taldi eftir sjer að gína yfir 300 metra hengiflugi eða.íenna sjer á glerhörðum skara 400 metra snarbratt ofan að upp- tökum Skógár fyrir Vigfús. Á gígasvæðinu austanvert við skal- ann var fljúgandi færi, laus mjöll á harðfenni. LTm miðjan dag opnaðist útsýn- ið til norðurs og Tindafjalla, Torfa- og Kaldaklofsjökull blik- uðum við sjóndeildarhring, var nú alt andstrevmi og hrakningar úr sögunni. Hátíðisdagarnir voru skínandi bjartir. Sumir notuðu þá tækifær- ið til að ganga á Mýrdals- og Eyjaf jallajökiil, en aðrir *voru að basla í hengjum og jökulgjám fyr- ir filmuna með ísaxir, línur, 8- ydda brodda, ísfleina og öryggis- lása. Kappar þessir a la Trenker Framh. á bls. 126. Snjóhengjur á

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.