Lesbók Morgunblaðsins - 10.05.1942, Blaðsíða 8

Lesbók Morgunblaðsins - 10.05.1942, Blaðsíða 8
152 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS Fjaðrafok Stjórn Flugfjelags íslands við hin a nýju flugvjel fjelagsins, TF-ISL. Talið frá vinstri: Kristján Kristjánsson forstjóri, Agnar Kofoed Hansen lögreglustjóri, Örn Johnson flugmaður, Bergur G. Gísla- son fulltrúi (formaður fjelagsins) og Jakob Frímannsson forstjóri. (Ljósm. Edw. Sigurgeirsson á Akureyri). Loftvarnaeftirlitsmaður sá ljós í glugga og kallað: „Hœ, þið þarna, slökkvið ijósið strax“. Gömul kona leit út um glugg- ann og sagði önuglega: „Hvað viljið þjer?“ „Það er loftvarnamerki", var svarið. „Látið þjer það í póstkassann, góði maður. Jeg má ekki vera að því að koma niður“. ★ Gamall prestur var að gifta sig í fjórða skifti og var að útskýra það fyrir vini sínum. — Jeg er orðinn gamall maður, eins og þú sjerð og það er ekki langt eftir hjá mjer. Jeg vil hafa einhvern til að loka augunum mín- um þegar stundin kemur. — Já, sagði vinurinn. — Jeg hefi nú átt tvær konur á lífs- leiðinni og þær opnuðu báðar mín augu. ★ Maður nokkur í Köln átti flösku af brennivíni, sem hann geymdi í skáp í loftvarnabyrgi. Hann setti miða á flöskuna, sem á stóð „eitur“. Nokkru seinna ætlaði hann að hressa sig á innihald- inu eftir harða loftárás, en þá var flaskan tóm og búið að skrifa til viðbótar á miðann: „Með bestu þökkum frá sjálfs- morðingjanum og kveðjum frá landinu handan hafsins mikla“. ★ — Hittið þjer oft konuna yðar? — Svona klukkustund á dag, herra dómari. — Það var slæmt.- — Jæja. Klukkutími er ekki svo lengi að líða. ★ Börn kvikmyndaleikara tala saman: — Jæja, hvernig kantu við nýja pabban þinn? — Svona og svona. Hvernig líkaði þjer við hann, þegar hann var pabbi þinn? ★ Tveir bændur voru að tala sam- an um ógagn það, sem kanínurnar gerðu þeim, einkum drykkju þær alla brunna þurra. Annar bóndinti sagði að hann kæmist hjá þessu með því að girða brunnana með vírneti, og hinn ákvað að gera hið sama. Viku seinna hittust bændurnir á ný og annar sagði: „Jæja, hvernig gengur það með kanín- urnar ?“ „Bölvanlega, blessaður vertu“, svaraði hinn. „Jeg girti brunninn, en komst að því, að bannsettar kanínurnar höfðu ráðist á hey- stakk, sem var þar nálægt, sett stráin gegnum netið og drukkið brunninn þurran á þann hátt“. ★ Sam, gamall negri, var að segja vini sínum draugasögu: — Það var alveg agalegt. Jeg var að koma út úr fjósi með mjólkurfötu í hendinni, er draug- urinn skaust framhjá mjer af voða krafti. — Varstu hræddur, spurði vin- urinn. Skalfstu af hræðslu? — Jeg veit ekki hvort jeg skalf af hræðslu, jeg veit satt að segja ekki, hvort jeg skalf. En þegar jeg kom inn í eldhús var engin mjólk í fötunni, bara tvö pund af smjöri. ★ Það var haldið happdrætti uin nýtísku bíl í bæ einum í Skot- landi og Sandy keypti tvo miðd. Sandy vann bílinn, en er vinir hans komu til að óska honum ti! hamingju, var hann mjög áhyggju fullur á svipinn. — Hvað gengur að þjer, mað- ur? — Æ, sagði Sandy. Jeg get ekki fyrirgefið mjer að vera svo vitlaus að kaupa tvo happdrættis- miða, úr því einn nægði. ★ Saga er sögð um uppfinninga- mann, sem reyndi að selja Musso- lini nýja aðferð til að mála her- skip svo þau sæjust ekki. Musso- lini vildi ekki kaupa. Svaraði því til, að hann vissi ekki betur en að hingað til hefði ítalska flot- anum tekist að vera óvininum ósýnilegur, felumálningarlaust. ★ Forstjórinn sá eftirfarandi setn- ingu skrifaða með krít fyrir ofan innganginn í einkaskrifstofuna morgun einn er hann kom til vinnu: „Laun syndarinnar er dauðinn, en launin, sem greidd eru í þessu fyrirtæki, eru helmingi' ljelegri". ★ „Sigurður, getið þjer sagt mjer hver bygði Sphinxinn í Egypta- landi? „Jeg veit, það kennari, en það er bara alveg stolið úr mjer núna“. „Það var afleitt, Sigurður, — eini lifandi maðurinn, sem veit það, og hann hefir gleymt því“.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.