Lesbók Morgunblaðsins - 12.07.1942, Síða 8

Lesbók Morgunblaðsins - 12.07.1942, Síða 8
224 LE88ÖK MORGUNl AtrmNS vtraBiniminiiniiiiinitMimuiMiiiiuiiiiiiiiiiHiiiiMiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiuiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiifiiHiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiitiktnii FJ AÐ RAFOK | iiiiiiiiinnninniiiiiiiiiiiiiiiiiiimmiHn JiiinninnnnniinnininnnnnnniniiiÍ Winston Churchill í flugforingjabúningi. Churchill er flugfor- ingi að nafnbót og hjer á myndinni sjest hann í flugforingja- búningi í breskri sprengjustöð. Með honum eru Dr. H. V. Evatt ástralskur ráðherra og Mr. Attlee varaforsætisráðherra. Óþolinmóður maður (fyrir ut- an almenningssímklefa) : Heyrið þjer, frú, get jeg ekki fundið símanúmerið fyrir yður? Unga frúin (blíðlega): Ó, jeg er alls ekki að leita að númeri. Jeg er að reyna að finna fallegt nafn handa yngsta barninu mínu. ★ Upprennandi rithöfundur; Hef- urðu heyrt nokkuð um almenn- ingsálitið á nýju bókinni minni? Útgefandinn; Já. Maður nokk- ur, sem heitir sama nafni og þú, kom til okkar og bað okkur að auglýsa, að það væri ekki hann, sem hefði skrifað bókina. ★ Bílstjóri (sem var nýbúinn að aka yfir mann í litlu þorpi úti á landi): — Hversvegna fer ekki einhver ykkar og sækir læknirinn í stað þess að standa þarna og glápa eins og naut. Einn áhorfendanna (bendir á manninn, sem liggur á götunni): — Þarna er læknirinn. ★ í miðdagsveislu sat prófessor- inn við hlið mjög fallegrar konu. — Manstu ekki eftir mjer, pró- fessor, sagði hún brosandi: Fyrir nokkrum árum baðstu mig að giftast þjer! — Ójá, nú man jeg eftir þjer, sagði prófessorinn. — En gerðir þú það? ★ Spítalalæknir nokkur var að binda um handlegg konu, sem hafði verið bitin hættulega. Meðan hann var að binda um sárið, sagði hann: — Jeg skil skil ekki, hvaða skepna það getur hafa verið, sem beit yður. Bitið er of lítið til þess að geta verið hestbit og of stórt til þess að geta verið hundsbit. Hvaða skepna var það? Konan: — Það var annar kven- maður! ★ Afar feitur maður var að vigta sig á almenningsvigt og múgur og margmenni safnaðist sanjan til að liorfa á. En vigtin var biluð og vísirinn hreyfðist ekki. Þá varð lítilli telpu, sem stóð nálægt, að orði: — Hamingjan góða! Hann hlýt- ur að vera holur að innan. ★ Englendingur einn var í fasta svefni í loftvarnabyrgi sínu, er sprengja fjell til jarðar skamt frá með brauki og bramli. Hann hent- ist fram úr fleti sínu og sagði: — Já, góða mín, jeg skal koma með teið rjett strax. ★ — Finst yður, að jeg ætti að hafa meiri eldmóð í sögunum mín- um? — Nei, en þú ættir heldur að setja fleiri sögur eftir þig í eld- inn. ★ — Hvað kostar fargjaldið, mað- ur minn? sagði kona nokkur við bílstjóra. — Þrjár krónur, kona góð, svar - aði bílstjórinn. — Hjor eru trvær krónur, mað- ur minn. Jeg er ekki eins vitlaus og jeg lít út fyrir að vera. — Því miður, kona góð, því miður. ★ Ferðamaður ók eftir veginum í bíl sínum með 100 kílómetra hraða. Lögregluþjónn stöðvaði hann. Maðurinn sagði: „Ók jeg of hratt?“ „Nei, hamingjan góða. En þjer fáið sennilega sekt fyrir að fljúga of Iágt“. ★ Sigga: Mikið hefir þú falleg augu. Jóna: Það er fallegt af þjer að segja þetta. Sigga: Það er bara verst, að þau skuli ekki vera bæði eins. ★ — Mamma, byrja öll ævintýri á orðunum „einu sinni var“? — Nei, barnið mitt. Sum byrja á orðunum „jeg er hræddur um að jeg verði að vinna á krifstof- unni þar til seint í kvöld.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.