Lesbók Morgunblaðsins - 09.08.1942, Blaðsíða 1
JHorBttnbl&fatnð
25. tölublaS. Sunnudagur 9. ágúst 1942. XVII. árgangur.
i ■ iii*!*»■»>■ ii«—u.
Bjarni Ouðmundsson:
STRATFORD VIÐ AVON
\ Avon-fljótinu synda jafnan
mjallhvítir svanir, og því er
trúað, að þar hafi þeir jafnan
dvalið. Bakkar fljótsins eru sljett
ar grundir, þar sem krókuslaukar
blómstra árla vors, en skömmu
síðar vaxa þar villtar liljur. Þetta
er einn fegursti staður Englands,
og snemma vors, hinn 23. apríl
ár hvert er þarna haldin vegleg
minningarhátíð um skáldið Shake
speare, sem fæddist þennan dag
árið 1564.
Stratford við Avon er fyrst
getið í heimildum árið 691, þegar
Aðalráður konungur af Mercia af-
saiaði sjer hjeraðinu í hendur
hiskupsins í Worchester. Er þá
getið klausturs, sem þar hafi stað-
ið frá fornufari. Borgin kemur
að öðru leyti lítið við hina róstu-
sömu sögu Englands fram á 16.
og 17. Öld. Innanlands styrjaldir
og óeirðir sveigðu jafnan fram
hjá borginni, og má vera að
þetta sje að einhverju leyti á-
stæðan til þess, hve forn hún er
að byggingarlagi og hve mjög þar
andar unaði og friðsæld. Hjálp-
ast bæði náttúrufegurð og forn
mannvirki að því að gera liana
einn hinn mest aðlaðandi stað á
öllu Englandi.
Svo er að sjá helst í fljótu
bragði, að borgin sje mikið til
óbreytt, síðan á tímum Shake-
speares. Sum húsin eru svo æva—
gömul, að það er engu líkara eni
vVVvVVVV V V vVV''.*4*'
IWilliam Shakespeare er oft kallaður „Svanurinn frá Avon“,
af því að hann er fæddur og uppalinn í smábænum Strat-
ford við Avon-fljót. — í stratford-on-Avon er mikið minnis
merki um skáldið. Það er minningarleikhúsið, sem á ári
hverju byrjar sýningar á afmæli Shakespeares, 23. apríl og
starfar fram í miðjan september.
X
x
'k
:
k
X
Ý
x
k
x
Shakespeare-minningarleikhúsið í Stratford on Avon. Myndin
er tekin frá ánni Avon.
að þau hangi uppi af gömlum
vana, miklu fremur en af nokk-
urri skynsamlegri ástæðu. Er þetta
einkum eftirtektarvert með þau
hús, isem byggð eru þannig að
4 efri hæðin, eða rishæðin, skagar
lítið eitt fram yfir neðri hæðina,
sem virðist alveg svigna undir of-
urþunga þaksins. Þarna má enn
sjá hús með moldar- og steingólf-
um, víða er útflúr gert af hinui
mestu trjeskurðarlist, en öllu er