Lesbók Morgunblaðsins - 31.01.1943, Qupperneq 6
30
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
Hvað 20.
öldin átti að færa
mannkyninu
Spádómar um síðustu aldamót
|7 itt af stórblöðum Ameríku
spurði marg-a vísindamenn
um síðustu aldamót hverjar yrðu
helstu breytingar á kjörum
manna og daglegu lífi á 20. öld-
inni. Birti blaðið síðan yfirlit
yfir spádóma þessa. Útdráttur úr
þeim var svohljóðandi:
Vísindamennirnir spáðu mörg-
um og miklum breytingum.
Árið 2000 á mannfjöldinn í
Bandaríkjunum að vera orðinn
500 miljónir og af því heilsu-
fræðinni og læknavísindunum hef
ir þá farið svo fram, verður með-
al mannsaldurinn þá 50 ár, í
stað þess sem nú er 35 ár, og
meðalhæð karlmanns verður þá
1—2 þuml. meiri en nú.
Meiri hluti mannkynsins mun
þá tala ensku; næst verður þá
rússneska.
Þá munu reykháfar ekki verða
á húsum, heldur munu öll hús
hituð með miðstöðvarhitun. Ekki
þarf annað en snúa krana, þá
streymir hitinn inn.
Heimilin fá tilbúinn matinn frá
stórum matgerðarhúsum, eins og
menn fá nú brauð frá baksturs-
húsum. — Þessi matreiðsluhús
kaupa matvælin í stórkaupum,
og tilbúningurinn verður svo ó-
dýr, fyrir aðstoð rafmagns og
ýmissa vjela, að maturinn verð-
ur þannig langtum ódýrari, en
væri hann búinn til á heimilun-
um. Maturinn er sendur í loft-
reyrum (loftpípum) eða sjálf-
. hreyfivögnum á heimilin, og borð
búnaðurinn er síðan sóttur og
hreinsaður með vjelum. Það þyk-
ir ókleifur kostnaður, að hafa
eldhús heima hjá sjer.
Kol verða ekki höfð til suðu
eða hitunar. Kolanámur verða
nálega tæmdar, og það sem til
verður af kolum verður afar
dýrt. Rafkraftur, sem fenginn
verður með vatnsafli, verður
langtum ódýrari. Allar ár og
lækir, sem hafa nægan halla,
munu ganga í þjónustu mann-
anna. Með ströndum fram verða
safnvjelar, sem safna flóðöldun-
um, og verða þær á þann hátt
notaðar til að hreyfa hjól. Á
járnbrautum má þá fara 200
kílómetra á klukkustundinni (yf
ir 26 mílur). Þá má fara á sól-
arhring þvert yfir Ameríku frá
New York til San Francisco. —
Eimvagnamir verða eins og tó-
baksvindlar í laginu, til þess að
loftið veiti þeim sem minsta mót-
stöðu.
Hestar verða ekki hafðir til
aksturs, en í stað þeirra koma
sjálfhreyfivagnar. Á þeim verða
bæði fluttir menn og vörur. —
Jafnt plógurinn sem líkvagninn
verður knúður með sjálfhreyfl-
um.
Úthafsskipin verða knúð á-
fram af rafskrúfum, sem vinna
bæði í sjónum og loftinu. Skipin
liggja á einskonar hreyfilegum
hlunnum, eða meiðum, á sjónum,
sem valda því, að núningsfyrir-
staðan verður mjög lítil. Þá
má fara milli Englands og Ame-
ríku á tveimur dögum.
Loftskipin verða þá algeng*
og verða þau mjög hættuleg, ef
til ófriðar kemur landa í milli.
Þau byrgja sig í reyk, ef þörf
þykir, svo að þau verða ósýni-
leg og koma að öllum óvörum,
og geta þá steypt stórhríð af
sprengikúlum yfir heri og borgir.
Telefónar og telegrafar verða
um allan heim og þráðlausir. Þá
getur sá sem staddur er á miðju
Atlantshafinu talað við konu
sína heima hjá sjer, hvar sem er
í Evrópu eða Ameríku.
Villidýr munu þá verða út-
dauð og ekki finnast annarsstað-
ar en í dýragörðum. Búfjenaður
verður alinn á vísindalegan hátt
og allur fjenaður verður þá koll-
óttur, því menn munu sjá svo
um, að skepnurnar framleiði
ekki neitt að óþörfu.
Garðávextir verða ræktaðir
með rafmagni og verða afar
stórir. — Menn hætta að „taka
inn“ læknislyf á þann hátt, sem
nú er gert. Menn eiga ekki að
láta í magann annað en matinn,
eða það sem eingöngu er til
að styrkja magann. Ef önnur hin
innri líffæri eru veik, verður
lyfinu veitt gegnum skinnið og
vöðvana með rafstraumum.
★
Mannfjöldi í Bandaríkjunum
var árið 1900 75.994.565, en árið
1940 var hann orðinn 131.669.272
Láta mun nærri, að meðal
dánaraldur ' manna í Bandaríkj-
unum sje nú um 65 ár.
Mestur hraði jámbrautar, sem
náðst hafði árið 1940, er 120
mílur á klukkustund, en meðal-
hraði járnbrautarlesta, sem
hafa áætlunarferðir í Banda-
ríkjunum, er nú orðinn 84 míl-
ur á klukkustund.
Mestur flugvjelarhraði, sem
náðst hafði 1939, var 655 kíló-
metrar á klukkustund. Síðan hef-
ir hraði flugvjela verið hemaðar-
leyndarmál. En fullyrða má, að
hann sje orðinn meira en 800 km.
á klst. - - -
Hvaða maður er það sem allir
menn taka ofan fyrir?
Svar: Hárskerinn.
★
Hvaða tveggja atkvæða orð
inniheldur 35 stafi?
Svar: Staf-róf.
★
Hvaða dýr er það, sem hefir
höfuð eins og köttur, rófu eins
og köttur og alla siði kattar, en
er þó ekki köttur?
Svar: Ketlingur.
Leiðrjetting. Undir myndinni
af Hafnarstúdentum í síðustu
Lesbók fjell niður nafn Sigurðar
Magnússonar prófessors, sem
átti að koma næst á eftir nafni
dr. Helga Péturss.