Lesbók Morgunblaðsins - 18.04.1943, Blaðsíða 3

Lesbók Morgunblaðsins - 18.04.1943, Blaðsíða 3
LESBÓK HORGUNBLAÐSINS 115 Síra ólafur Ólafsson. safnaðarins, en jafnframt vori innheimt fjárframlög, er lofað hafði verið til kirkjubygging- arinnar og stjórninni falið að veita framhaldssamskotum við- töku í sama skyni. Seint í ágústmánuði var svo kiirkjusmíðin hafin. Hafði ver- ið tekið tilboði frá s.f. Dverg- ur í Hafnarfirði um smíðina og var þar lofað að gera sjálfa kirkjuna og bekki í hana og leggja til efni, hvorttveggja fyrir kr. 7.900.00, en undan- skilin var múrsmíð, málning, leiðslur og hitunartæki. Aðalumsjón með kirkjusmíð- inni hafði trjesmíðameistarinn Guðmundur Einarsson, Davíð Kristjánsson trjesmíðameistari gerði teikningu af kirkjunni. — Báðir þessir menn voru meðal stofnenda safnaðarins. Kirkjusmíðinni miðaði vel á- fram og var henni lokið að öllu snemma í desembermánuði sama ár. Kirkjan var vígð af presti safnaðarins, sr. Ól. Ólafssyni, 14. des. 1913, eða rúmlega ári fyr en þjóðkirkjan í Hafnar- firði. Var fjölmenni mikið við- statt vígsluathöfnina og þótti hún mikill viðburður í sögu bæjarfjelagsins. Árið 1931 fór fram gagngerð viðgerð á kirkjunni. Var kór- inn þá stækkaður að mun og turninn hækkaður og honum breytt verulega. Þess utan var kirkjan máluð utan og innan. Teikningar af hinum nýja kór cg turni gerði Guðmundur Ein- arsson trjesmíðameistari, en smíðið framkvæmdi Haukur Jónsson trjesmíðameistari í Hafnarfirði og fjelagar hans. Málningu alla framkvæmdi Kristinn J. Magnússon, mál- arameistari í Hafnarfirði. Eftir þessa miklu aðgerð og breytingar var kirkjan sem ný orðin. Einn af safnaðarmönn- um, Jóhannes J. Reykdal verk smiðjueigandi á Setbergi, gaf alt timbur sem fór í stækkun kórsins og Kvenfjelag safnað- arins kostnaði málningu á kirkjunni að innan að öðru cn kórnum. Um sama leyti gaf það fjelag kolaofn í kirkjuna, Síra Jón Auðuns. ítóran og fullkomin, er mun hafa kostað um kr. 1.100.00. Vegna þessarar miklu við- gerðar á kirkjunni varð söfn- uðurinn að taka lán, 6000 kr., þrátt fyrir mikinn fjárhagsleg- an stuðning frá Kvenfjelagi safnaðarins og einstökum safn- aðarmönnum. Sunnudaginn 27. september 1931 var svo kirkjan endurvígð af presti safnaðarins, sr. Jóni Auðuns, að viðstöddu fjöl- menni. Vígslan fór fram með miklum hátíðleik. Stærð kirkjunnar er -sem hjer segir: Lengd 11,40 m. Vegghæð 6.00 m. Breidd 10,20 m. Hæð frá gólfi til hvelf- ingar 9.80 m. Lofttsvalir eru með báðum hliðum og loftpall- ur milli þeirra, utast fyrir söng flokk og hljóðfæri. Kórbygg- ingin við austurgafl kirkjunnar er 3.15x3.15 m. að stærð, hæð af kórgólfi til hvelfingar er 6.50 m.Við vesturgaflinn er for- kirkja, þrílyft með turni, stærð 3.50x3.50. Hæð frá grunni og upp á turntopp er 19.50 m. — Undir kórgóifi er kjallari, sem notaður er sem líkhús og til geymslu. Kirkjan rúmar í sæti um 350 manns. Raflýst er hún og í henni eru 4 fagrar ljósakrónur, gerðar úr glerkristöllum, auk annara ljóstækja. Um leið og kirkjan var reist var lögð í hana rafmagnsleiðsla enda þótt að litlar líkur væru fyrir því, að raforka væri þá fáanleg til lýsingar kirkjunni, því um þær mundir gat raf- magnsstöð Hafnarfjarðar ekki fullnægt þörfum bæjarbúa. En safnaðarmenn sáu ráð til þess að bæta úr þessu. Þeir tóku sig saman um að spara ljós á heimilum sínum, þegar mest var þörf á ljósi í kirkjunni. Með þeim hætti fengu þeir næga orku til þess að lýsa hana. Mun hjer vera að ræða um fyrstu kirkjuraflýsingu hjer á landi. Og þess má ennfremur geta, að frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði, barst landsmönn- um fyrst guðsþjónusta á öld- um útvarpsins. Lengi var það miklum erf- Jón Þóröarson kaupmaður.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.