Lesbók Morgunblaðsins - 18.04.1943, Page 4

Lesbók Morgunblaðsins - 18.04.1943, Page 4
116 LESBÓK MORGUNBLA'ÐSINS iðleikum bundið að fá viðun- andi hljóðfæri í kirkjuna og urðu um skeið nokkur mistök hjá söfnuðinum í því efni. En að lokum tókst, rnieð tilstyrk Kvenfjelags safnaðarins og ríflegum samskotum safnað- armanna o. fl., að fá ágætt hjóðfæri í kirkjuna. Er það harmonium, er kostaði nálægt 12 þúsund krónum. Það er með fótspili og 28 registrum. Mun það vera stærst þeirrar teg- undar hjer á landi. Var það keypt í kirkjuna árið 1933, fyrir milligöngu Elísar Bjarna- sonar kennara í Reykjavík. Auk þess á kirkjan ýmsa verðmæta og góða gripi, svo sem: Altaristöflu, er sýnir mynd af Kristi. Hefir Ágúst listmálari Lárusson málað hana. Umgerð er um altaris- töfluna, mjög sjerkennileg og fögur. Mun í engri kirkju hjer lendri vera um svipaðan um- búnað að ræða um altaristöflu. Er umbúnaður þessi' smíðaður af Guðmundi Einarssyni trje- smíðameistara í Hafnarfirði, eftir fyrirsögn og teikningu fríkirkjuprestsins sr. Jóns Auð- uns. Nýlega var kirkjunni gef- in stór og fögur eftirmynd af hinu fræga málverki Rafaels, Madonna del cedia. Er mynd- in í vönduðum ramma. Gef- andinn vill ekki láta nafns síns getið. Skírnarfontur kirkjunn- ar og prjedikunarstóll eru skrautmálaðir eftir safnaðar- konuna frú Jóhönnu Davíðsson og þykir það gert af mikilli list. Kirkjan á tvennan skrúða, fjölubláan, sem notaður er um föstutímann árlega og purp- urarauðan, sem notaður er alla aðra tíma við messugerðir. Alt- arisdúkinn hefir gert ungfrú Fetrína Halldórsdóttir, hann- yrðakennari, og er hann talinn eitt af fegurstu verkum þeirr- ar tegundar. Tvenn tjöld á kirkjan, sem höfðu eru fyrir kórdyrum, önnur hvít en hin rauð og eru þau notuð til skift- is, eftir því sem þykir við eiga. Ennfremur á kirkjan 6 altaris- stjaka og tvo háa stjaka, til þess að stnda á gólfi. Eru all- ir þessir stjakar sjöarmaðir. Auk þess á kirkjan nokkrar súlur, er ljósastjakar eru látn- ir standa á, svo og 4 blómstur- vasa. Loks á kirkjan fagurt reykelsisker. Munir þessir eru allir hinir veglegustu. Eins og áður er getið eru 4 ljósahjálmar í kirkjunni, gerð- ir úr glerkristöllum. — Tveir þeii-ra eru stórir og hanga í miðskipi kirkjunnar, en hinir eru minni og er annar þeirra í kór en hinn hangir yfir söng- palli. Loks á kirkjan fagurlega gerðan kaleik úr silfri og ob- látudisk úr sama efni. — Voru munir þessir gefnir kirkjunni af safnaðarkonunni, frú Sól- veigu Benjamínsdóttur 1 Hafn- arfirði til minningar um eigin- mann hennar, Eirík Jónsson og þrjá syni þeirra hjóna, Benja- mín, Bjarna og Jón Ágúst, er allir fórust í sjó. Gólfteppi er á öllu kórgólfi og tepparenningar á göngum kirkjunnar. Eins og fyr segir tók síra ólafur ólafsson fríkirkjuprest- ur í Reykjavík við forstöðu safnaðarins strax í upphafi og þjónaði honum til ágústloka árið 1930, eða 1 rúmlega 17 ár. Messaði hann annan hvern sunnudag auk kvöldsöngva og hátíðamessugerða. Hann rækti prestsstarf sitt fyrir söfnuðinn af mikilli samviskusemi og al- úð. Þar sem hann var búsett- ur í Reykjavík og samgöngur erfiðar áður en bifreiðar komu til sögunnar. Var oft örðugt fyrir hann, þá aldran orðinn, að rækja starfið. En hann ljet aldrei veður nje ófærð hefta för sína, enda var líkamlegu atgerfi hans; eigi síður en þvl andlega, viðbrugðið. Er síra Ólafur ljet af störf- um fyrir söfnuðinn, kvaddi söfnuðurinn sjer til prests cand. theol. Jón Auðuns frá ílsafirði. Var hann valinn samkvæmt safnaðarlögunum, með þeim hætti, að stjórn safnaðarins, ásamt 4 þar til völdum mönn- um úr söfnuðinum, samdi við hann að taka að sjer prests- þjónustustarfið og var sú ráðn- ing samþykt á lögmætum safn aðarfundi. — Var hann síðan vígður til safnaðarins af bisk- upi, dr. Jóni Helgasyni, þann 17. ágúst 1930. Síra Jón Auðuns er fæddur á ísafirði 5. febrúar 1905. Er hann sonur Jóns Auðuns Jóns- sonar, fyrv. alþingismanns, og konu hans, Margrjetar Jóns- dóttur. Stúdentsprófi lauk hann vor- ið 1924 og guðfræðisprófi vor- ið 1929. Var hann*síðan eitt ár við framhaldsnám við háskól- ann í Marburg í Þýskalandi. Síra Jón Auðuns settist að í Hafnarfirði um sama leyti sem hann tók við prestsþjónustu- starfinu, eða í ágústlok 1930, eins og fyr segir. Var þá litlu síðar hafist handa um að reisa honum hús til íbúðar. Er þess nánar getið síðar í frásögn um stofnun og starf Eræðrafjelags safnaðarins. ’ Síra Jón Auðuns er gáfaður maður, frjálslyndur í skoðun- um og mjög snjall ræðumaður. Er hann mjög vel látinn í söfn uðinum. Hefir hann rækt prests þjónustustarfið með ötulleik og alúð og látið sig miklu skifta velgengni safnaðarins. Tekið hefir hann jafnan virkan þátt í öllu því, er söfnuðinum mátti til gagns verða í öllum efnum. Sjerstaklega hefir hann látið sjer hugarhaldið um kristin- dómsfræðslu ungmenna safn- aðarins og stutt ötullega að því,.^ að kirkjuhúsið og allir munir þess væru að útliti og í því ástandi, er samboðið væri hinu göfuga hlutverki kirkj- unnar. Hann kvæntist í febrú- armánuði 1937 ungfrú Dag- nýju Einarsdóttur kaupmanns Þorgilssonar í Hafnarfirði. 1 marsmánuði s.l. fluttu þau hjón til Reykjavíkur þar eð sr. Jón hefir tekið að sjer forstöðu Frjálslynda safnaðarins þar og þess utan starf við Þjóðskjala- safnið. Á stofnfundi safnaðarins 20. apríl 1913 voru kosnir í stjórn hans. þeir: Jóhannes J, Reyk-

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.