Lesbók Morgunblaðsins - 18.04.1943, Blaðsíða 11

Lesbók Morgunblaðsins - 18.04.1943, Blaðsíða 11
LBSBÓK M0RGUNBLAÐSIN8 123 legri, línurnar enn. voldugri og beinni, en auk þess hefir hann mótað aðra glímu, „Jakobsglím- una“, ;glímu mannsins við Guð^ glímuna, sem mannssálin háir hverri andvökustund, glímuna, sem aldrei verður glímd til úr- slita á þessari jörð. Hversvegna var þetta listaverk ekki sýnt nú eins og tröllið 1908? Það var svo margt af gestum þarna á sýningunni, að jeg fór hjá mjer, en þegar fólkið tíndist út, reyndi jeg að átta mig á mál- verkunum. Tók jeg þá eftir því, að elsti málarinn og .yngsti — Þórarinn Þorláksson og Jón Engilberts — suúa saman bökum og fanst mjer fara vel á því, enda sýnist sitt hverjum. Fyrir framan málverk Þórarins stóð tíguleg, öldruð kona, hárið silfrað. hrukkur nokkt-ar í and- liti, sem einu sinni hefir hitað piltunum. Hún horfði, með mildu brosi þess, sem man og skilur, á málverkin og tók fram, að sjer hefði altaf þótt málverk Þórarins fíngerð og sönn, sjer líkaði best við hann. Mjer fanst jeg skilja haua svo vel. Fyrir sjónum sá hún, um leið og hún leit á málverk þessi, myndir úr eigin lífi — fallegar myndir. * Svo gekk jeg snögt „fyrir horn- ið“, og þarna hinumegin, í jafn mikilli hrifningu yfir Engilberts, stóð yngsti gesturinn, unga stúlk- an með bjart hár og blá augu, og hún rökstuddi smekk sinn bara furðu vei og mjer lá við að öf- unda listamanninn. Alt í einu fanst mjer jeg vera þreyttur, ekki í augunum, en í fótunum, og jeg settist. Þá seig á mig einhverskonar höfgi og mjer þótti sem gamli kunninginn minn og skólabróðir. málarinn Jón Stéfánsson kæmi til mín og byði mjer í ferðalag eins og 1908. Le’iddi hann fram þrjá skagfirska gæðinga, og svo var haldið ó harða stökki yfir þursa- skegg, mela og sanda alla leið upp á Mælifellshnúk, sem blasti við mjer í blámóðu fjarskans, og þeg- ar upp var komið, benti hann mjer á „KetillaugarfjalT' eftir Ásgrím og sagði á þá leið, að með vatnslitina væri Ásgrímur meist- ari allra íslenskra málara. Og ekki fatast honum að heldur með olíu- litina. Líttu á Grábrókarhraun og á Krókabotna, en stingdu þjer ekki i vatnið, það er ekki eins djúpt og þjer sýnist, það er málað. Jeg sting upp á því við Jón, að við förum á togarana hans Ás- gríms á Hafnarfirði og „stingum af“, en þá bregður listamaðurinn upp fyrir mjer málverki sínu „Frá Þingvöllum“ og þessir fögru flet- ir, hver með sínum lit eða litblæ, hver ein heild eða fegiirð xitaf fyrir sig, en sem allir renna þann- ig saman, að þeir skila heilsteyptu listaverki, heilla mig svo, að jeg hætti við sjóferðina, og fyr en varir bregður Jón upp fyrir mjer „Sumarkvöldi“ Kjarvals og það íiggur við, að jeg fái ofbirtu í augun af þessari litadýrð, og ekki verður hún minni um „Sólarupp- rás“ hjá þessum litsnilling ís- lenskra málara, sem einnig á sil sjerstæða tækni í meðferð lita. Mig langar til þess að hverfa inn á undralöndin Kjarvals, en jeg veit, að þetta eru sjónhverf- ingar snillingsins, svo jeg held mjer við jörðina og sest í fallegu stofuna hans Þórarins Þorláksson- ar og þigg hjá honum lostætt epli. Sólin skín svo vinalega inn um gluggann, jeg get ekki stilt mig um að líta út og þá er mjer litið beint framan í frönsku stúlkuna hans Blöndals, stúlkuna með stóra hattinn „á skjön“, með dökku aug Tm og ryðrauðu hanskana. Mjer er sagt, að listaverk þetta, sem varð til í Frakklandi, hafi verið sent þaðan alla leið til Japan sem sýnishorn nýtísku listar, og jeg trúi þessu vel, því altaf líst mjer betur á stúlkiuia, því oftar sem jeg sje hang. Skammt frá henni. er stallsyst- ir hennar, ljómandi á litinn, en, „agalega“ állsber. Feiminn maður fer hjá sjer, fórvitinh maður glápir. Þá mvm hann þykja vel málað- ur báturinn hans Blöndals, en jeg er ekki viss um, að hann sje að sama skapi sjóskip. Jeg þori ekki að bjóða dömunum á sjóinn, svo mjög sem mig langar. — Það er komin í mig heimþrá, jeg vil komast norður og jeg hitti á óskastundina. Það er nú, sem svo oft fyrr, vinur minn, Sveinn Þórarinsson, þessi óvenju duglegi, litsnjalli öræfamálari, sem þekkir þjóð sína engu síður en land sitt, lýsir fólkinu álíka vel og fjöllum ög fossum —, sem bregður upp fyrir mjer heiðarlöndunum þing- eysku í stóru, fögru listaverki, þar sem gangnamenn á góðhest- um sínum hreinsa löndin og smala sauðf jenu til rjettar. Þarna þekki jeg mig, öllu er meistaralega til skila haldið, alla leið frá birtingunni yfir heiðar- brúninni til litskrúðans í kjarri, lyngi og laufi. Það er hljómkviða haustsins í litum, sem þarna er lcidd fram á ljereftið, síðasti dansinn í sumri, áður eu Vetur kemur með makt og miklu veldi og hylur hvítum hjúp landið góða. En Sveinn þekkir og „stemningu“ vetrarins íslenska í myndinni „Vetur við hafið“. Jeg horfi á rekaldið, skil, að svona getur það farið, þegar sól- in er gengin til viðar og vetur kominn í sálina. Og það liggur við, að mig langi til þess að leggja til sunds á hið djúpbláa haf, þreyta sundtökin, uns komið er að skörinni hinumegin, ef þar skyldi vera „nýtt land“. „En hvar er konan þín?“ kalla jeg til Sveins, „þið eruð vön að hanga ætíð saman“. Nú brosir Sveinn og bendir mjer á þvervegg, og þarna þekki jeg frú Karen Agnethe með tvö ágæt málverk frá ættjörð sinni Danmörku og tvær myndir af konum í peysufötum. „Molasop- inn“ þarf engra skýringa við, gróusagan segir sig sjálf og lit- skrúðinn í kerlingunum öllum er svo mikill, aÓ jafnvel Kjarval má vára sig, Og hætt er við, að sum- um þyki „Gunka“ • í græna sjálinu helst til „máluð“,- éh því veldur hvortveggja, hrifning hetuiar yfir nýju sjali grænu og svó niun hún verá nýkomih úr „Nýborg“ og hefir fengið sjer hressingu á leið- inni'*heim. Getur líka verið, að hún sje að fara í „ástandið“. En jeg, sem þekki Karen Agn- ete, spyr í mesta meinleysi: „Hvar er „Ólafur liljurós^, hvar er

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.