Lesbók Morgunblaðsins - 03.09.1944, Page 7

Lesbók Morgunblaðsins - 03.09.1944, Page 7
LESBÓK MOROTJNBLAÐSINS '391 gerði ekki ráð fyrir því að þurfa að greiða neinn framfærslueyri. — Málinu er frestað, sagði Benja; Widdup, til morguns, en þá mæt- irðu og framkvæmir skipanir rjett- arins. Síðan verður skilnaðarúr- skurðurinn út gefinn. Hann sett- ist á þröskuldinn og fór að reima frá sjer skóna. — Það er best fyrir okkur að fara til Eiah frænda, sagði Ransie, og vera þar í nótt. Ilann klifraðist öðru meginn upp í vagninn, en Ariela hinum megin. ' Litli rauði tarfurinn sniglaðist áfram, þegar Ransie gaf honum drag í rassinn með kaðalspotta, og vagnhjólin; þyrluðu upp rykinu. Benaja Widdup fógeti reykti pípu sína. Þegar langt var liðið á daginn, tók hann vikublaðið sitt og las það, þangað til hann hætti að sjá til. Þá kvéikti hann á tólgarkerti og las, þangað til tunglið kom upp, en þá var kominn kvöldverðartími. Á leiðinni heim til sín þurfti hann að fara gegnum dálítið skógarkjarr. Þegar hann var kominn inn í kjarr- ið, gekk að honum skuggalegur mað ur og miðaði á hann riffli. Hatt- urinn slútti niður í augu hans, svo að mestur hluti andlitsins sást ekki. Komdu með peningana þína, sagði skuggalegi maðurinn, orða- laust. .Teg er taugaveiklaður, og hver veit nema jeg komi óvart við gikkinn. — Jeg á ekki nema f-f-f-fimm‘ dollara, sagði fógetinn og tók seð- ilinn upp úr vestisvasanum sínum. — Vefðu seðilinn upp og settu hann inn í hlaupið á rifflinum. Seðillinn var nýr, og það var auðvelt fyrir hvaða klaufa, sem var að vefja hann upp og stinga hon- um inn í hlaupið. -— Nú geturðu háldið áfram, sagði ræninginn. Fógetinn hjelt áfram og fór ekki hægt. 'k Daginn eftir dró litli rauði tarf- urinn vagninn að skrifstofu fóget- ans. Benaja Widdup fógeti var með skóna á fótunum, því að hann hjóst við heimsókn. I viðurvist hansi rjetti Ransie Bilbro konu sinni fimm dollara seðil. Fógetinn athugaði seðilinn vandlega. Ilann virtist vefj ast dálítið upp, eins og honumj hefði verið stungið inn í byssu- hlaup. En hann sagði ekkert, þvi að vel gat verið, að aðrir seðlar hefðu tilhneigingu til að vefjast upp. Hann rjetti hvoru hjónanna um sig skilnaðarúrskurðinn. Þau þögðu bæði og voru dálítið skrítinn. Konan leit feimnislega á Ransie. — Nú ferðu víst aftur upp eftir, sagði hún, í vagninum. Brauðið er í dunkinum á hillunni. Jeg setti svínakjötið í pott, svo að hund- arnir næðu ekki í það. Gleymdu ekki að draga upp klukkuna í kvöld. — Þú ætlar til Ed, bróður þíns? spurði Ransie og reyndi að vera kæruleysislegur. — Jeg ætlaði að reyna að kom- ast þangað fyrir kvöldið. Jeg býst nú varla við, að það verði slegið upp stórveislu til þess að bjóða mig velkomna, en jeg get ekki far- ið neitt annað. Það er annars best að fara að koma sjer af stað. Jeg ætla að kveðja þig, Ransie, ef þú annars vilt það. — Jeg veit ekki hvaða ástæðu jeg ætti að hafa til þess að vilja ekki kveðja þig, sagði Ransie, nema þjer liggi þá svo lífið á að komast burt. Ariela þagði. Hún kreisti fimrn dollara seðilinn í lófa sjer og stakk honum svo í vasann á kjólnum sínum. Benaja Widdup horfði á seðilinn hverfa með sorgarsvip. — Verður nú ekki daufleg vist- in hjá þjer, Ransie? spurði hann. Ransie Bilbro horfði út um glugg ann í áttina til heimilis síns. Hann, leit ekki á Ax-ielu. — Það verður líklega dálítið dauflegt, sagði hann. En þegax\ manneskjur verða reiðar og vilja skilja, þá er ekki hægt að halda aftur af þeim. — Það voru aðrir, sem vildu skilja, sagði Ariela. Svo kærði sig enginn um, að nokkur yrði kyrr. — Enginn sagði nokkurn tíma, að hann vildi það ekki. — Enginn sagði nokkurn tímaj að hann vidi það. Það er best fjrrir mig að leggja af stað til Ed brúður. —• Enginn getur dregið upp gömlxx klukkuna. — Viltu, að jeg komi heim með þjer í vagninum, Ransie, og dragi hana upp fyrir þig. Það var ekki mikið um geðshrær- ingar hjá fjalabúanum en hann rétti út stóra hendina og huldi litlu hend ina á Arielu í henni. — Jeg vil vera í kofanum hjá þjer, Ransie, sagði hún, og hvergi annars staðar. Jeg ætla aldrei að verða reið aftur. Nú skulum við leggja af stað, Ransie, svo að við verðum komin heim fyrir sólsetur. Nú skarst Benaja Widdup fógeti í leikinn. Hjónin höfðu gleymtl nærverix hans. — T nafni Tennessee-ríkis, sagði hann, fyrirbýð jeg ykkur að hafa lögin að engu. Það er rjettinum sannarlega gleðiefni að sjá ský sundurlyndis og misskilnings greið- ast frá tveim elskandi hjörtum, vn lögin verða að hafa sinrr gang. Rjetturinn vill minna ykkur á-, að þið eruð ekki lengur hjón, en eruð skilin samkvæmt lagalegum xxr- skurði og njótið því ekki rjettinda hjúskaparlaganna. Ai-iela tók í handlegginn á Ransie

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.