Lesbók Morgunblaðsins - 24.12.1944, Blaðsíða 3

Lesbók Morgunblaðsins - 24.12.1944, Blaðsíða 3
LESBÖK MOR0UNBLAÐSINS 51.1 Dr. Magnús Jónsson próíessor: JÓN BISKUP ARASON EF JEG ÆTTI að hefja til önd- vegis einhvern þeirra manna, sera uppi hafa verið á Íslandi,íþví skyni, að hann væri nokkurskonar full- trui íslensku þjóðarinnar, eða eins og það væri nú orðað sumstaðar: „íslendingur nr. 1“, þá veldi jeg Jón Arason biskup, að vel huguðu ráði. • Kostir hans og gallar virðast mjer furðulega vel steyptir í ís- lensku móti, og kostirnir þó gnæf- andi yfir. Skapferlið allt er ís- lenskt, og verður það frekar fund- ið en frá því skýrt, því að það eru ekki hæfileikarnir einangraðir eða eðlisþættirnir, sem þar koma einir til greina, heldur einmitt samleik- ur þeirra eða það munstur, sem út kemur þegar ofið er úr þráðum þeini öllum. Stórkarlaháttur hans samfara hlýju, ofsi hans samfara fyndni og gamansemi og embætt- isleg fornfesta samfara sjálfstæði og frumkvæði athafna og áljrktana, allt þetta er svo fast samanbundið í persónu hans, að hvergi kennir klofnings. Lærdómur hans er í með- allagi og þjóðlega mótaður frekar en alþjóðlega þrátt fyrir kirkju- áhrifin, tryggð hans við trú og föðurland, óskeikul skáldgáfant bæði mikil og rammíslensk að forn- um hætti. En mikillar drottnunar- girni gætir og miskunarlauss kaldr- anaháttar þegar skap hans hefir verið ýft til fulls. Og mikill þáttur er það í mynd Jóns Arasonar, hví- líkum dæmafáum vinsældum hann' nær og takmarkalausri lotningu þeirra, er hann átti við að skipta í biskupsdæminu. Mynd Jóns Arasonar hefir mótast skýrt og fast í hugum Islendinga. GRÝTA f EYJAFIRÐI (fæðingarstaður Enginn getur hugsað sjer Jón Ara- son lítinri væskil, kvikan á fæti og snarkringlulegan. Ilann hlýtur að' hafa verið stór maður, höfðingleg- ur í fasi og málrómi. Svo vill til, að fundist hefir lýs- ing af Jóni Arasyni, og getur hver vefengt hana eða trúað henni, eft- ir skapferli og viíjft. Ilún er í gam- alíi lýsíngu presta á VÖllum í Svarf- aðardal, er llálfdán Eínarsson safn- aöi. Klausan er þannig: „Jeg hefi talað við gamla og skynsama kerl- ingu; sagði hún að langamma sín hefði sjeð Sigríði (frú Ólafs bisk- ups Hjáltasonar) og hefði hún ver- ið mikill skörungur. Þessi kerling sagði líka, að þessi langumma sín( hefði 10 vetra sjeð Jón Arason vígja prest, og hefði kápan (lík- lega kórkápan, sem enn er til) tek- ið honum rjett á knje; hann hefði Jóns Arasonar) skamt frá Mungaþverá. verið langleitur og sljettleitur, hvít- ur af hærum á hár og skegg og lotinn á herðar; mikið fyrirmann- legur.“ Mjer sýnist engin ástæða til þess að rengja þessa „gömlu og skyn- sömu kerlingu“, og hafi hún hjart- ans þökk fyrir sín orð. ITún stað- festir alveg það, sem ætla mátti. Lýsingin segir auk annars, að Jón Arason hafi verið skeggjaður að ís- lenskum sið, en annars voru klerk- ar oftast rakaðir þótt ekki væri það nein föst regla. ★ SAGNIR GERA sjer títt um það, hve þröngt hafi verið um Jón Ara- son í æsku, og er helst svo að skilja, sem hann hafi verið hreinn og beinn kotungur. Þau mæðgin eru nærri dauð úr hungri, og sveinninn. lifir á bónbjörgum þeirra í Þverár-

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.