Lesbók Morgunblaðsins - 24.12.1944, Blaðsíða 10

Lesbók Morgunblaðsins - 24.12.1944, Blaðsíða 10
LESRÓK MORGUNT.LAÐSINS í Reyk.javíkuikirkju, sat .Jónasscu landlæknir á fremsta hekk. til }>ess að heyra hvernig rödd mín væri: Undanteknins frá reglunni OFT IIEFI jegr verid veill í hálsi. llafa læknar, hæöi erlendir o" inn- lendir. skýrt mjer svo frá, að frá l.eknisfræðinnar sjónarniiði hefði je" átí að vera alt annað en prest. ur. 'Þv.í rpddfæriu gadu ekki jtolað slíka áreynslu eftir uppskurðinn. Ef jeg hefði á unga aldii komið' til stofnunar, þar sem mönnum er leiðbeint nm það, hvaða lífsstarf þeir ættu að velja sjer, þá hefði niðurstaðan orðið hin sama. Öll störf, sem hafa í för með sjer á- reymslu á raddfærin, hefðu verið talin útilokuð fyrir mig. Þá myndu reyndir menn og fróðir hafa sagt við mig. Þú mátt ekki láta þjer detta í hug að koma í prjedik- unarstól, eða vfirleitt halda ræður. En slíkar ráðleggingarstöðvar voru ekki á mínum vegi. Og því valdi jeg. þá braut, sem vakað hafði fyr- ir mjer. frá því jeg var um ferm- ingu. , I 11 ár hafði jeg verið prestur, er jeg eitt sinn kom til Hafnar. Fann þá. sem oftar til veilu í hálsi, og fór til hins fræga sjerfræðines í hálslækningum, Myginds prófes- sors. llann tók strax eftir örinu eftir bárkaskurðinn. Spurði hann, hvor hefði verið læknir minn. Sagði jeg honum alt af ljetta. Ðáðist hann að Jónassen, og spurði síðan: Hvað er starf yðar? Jeg er prestur, svara jeg. Það er ómögulegt, segir hann. Það hlýtur þá að vera í mjög litlu prestakalli. Við dómkirkjuna í lieykjavík. Þetta er furðulegt, seg- ir hahn. Það er á móti öllum regl- um, að slíkt geti átt sjer stað. Til þess að sannfæra sig um að 'jeg vferi undantekning frá regl- unnf, ljet hann mig halda ræðu- stúf, syngja og tóna. En spurði síðan. hve lengi jeg piyndi verða um kyrt í Ilöfn, og hvort jeg gæti ekki komið til hans daglega þann tíma, sem jeg værl þar. Jeg gerði svo. Hann útvegaði mjer kenslu- konu, sein leiðbeindi mjer, hvernig jeg skyldi tala. En eftir 6 vikur gekk jeg undir próf, og var Myg- ind prófessor jirófdómandinn. .Meðan á þessu stóð höfðu kunn- ingjar mínir orð á því við mig. að þetta myndi verða alvarleg blóð- taka fyrir mig. Jeg væri daglegur gestur á lækningastofu þess manns, sem væri einn dýrasti læknir á Norðurlöndum. Þeir vissu sem var, að pyngja mín var ljett. Þegar að reikningsskilum kom, vildi Mygind prófessor sama og ekkert taka fyrir hjálp sína og umönnun. Er mjer þótti það harla lítið, sem jeg ætti að greiða, sagði hann, að rir því að jeg væri prest- ur gæti jeg þorgað fyrir mig með góðum hugsunum. Nij mátt þú ekki halda að jeg" hafi verið alheill og komist af með kensluua hjá Mygind. í ára titgi hefir það komið sjer vel fyrir mig að vera í náhýli við vin minu Ólaf Þorsteinssou lækni, og geta not- ið hans ómetanlegu hjálpar. Það væri ekki ólíklega til getið, að jeg ætti m. a. lækuishjálp hans það að þakka, að jeg hefi verið lengur prestur í Heykjavík en nokur fyr- irrennari minn. Fyrir 50 árum IIVE N-ER tókst þú þá á- kvörðun að verða prestur? — Þá er best jeg byrji með að segja þjer sögu, sem gerðist á jólum einmitt fyrir 50 árum. Það var á aðfangadagskvöld ár- ið 1894. Jeg fjekk að fara meði föður mínum í dómkirkjuna til að hlýða á aftansöng hjá sr. Jóhanni Þorkelssyni. Þá var jeg 13 ára. ' Áður en við lögðum af stað vestan frá Mýrarholti, var mjer heitið því, að þegar við kæinum til baka, skyldi jeg fá súkkulaði og jólaköku. En ekkert var látið uppi um jólagjöfina. Kirkjan var troðfull af fólki- Við sátum á litlu bekk.junum við kórþrepin. \’ar alt m.jög hátíðlegt og hrít’andi. En því verður ekki neitað, að stundum varð m.jer Kugs- að heim, til veitinganna, sem biðu okkar. Er messugerð var lokið tókust kunningjar í hendur og óskuðu hverir öðrum gleðilegra jóla. Siðan harst straumurinn út úr kirkjunni. En faðir minn sat kyr á bekknum. Jeg apurði hann hvort við færum ekki að fara heim. En hann sagði að best væri, að fólkið færi fyrst út úr kirkjunni, svo að við lentum ekki í þrengslunum. Uti var frost, sn.jór á jörð og skafrenningur. Þegar við konium út úr kirkjunni, var flest fólk hovf- ið af götunum. Gengum við tveir einir áleiðis heim. Þegar við vorum komnir á móts við Bryggjuhúsið, tók faðir minn fast í handlegg mjer, án þess að segja nokkuð. Mjer þótti þetta einkennilegt. En frainundan var Grófin, og fram- hjá henni þurftum við að fara. Hafði jeg heyrt, að þar væri stnnd- um eitt og annað éhreint á sveimi. Fór ímyndunarafl mitt nú mjög : á hreyfingu, og fannst mjer alt umhverfið mjög einkennilegt þarna í kvöldkyrðinni, en verst að sjá ekki til mannaferða. Er við höfðum enn gengið stutt- an spöl, greip faðir minn enn fast- ar í handlegg minn. Spurði jeg hann þá, hvort hann væri veikur. Ilann svaraði ekki. Enn gengum við nokkra faðma. Þegar við erum komnir rjett upp fyrir Geirsbúð, hneig hann skyndilega niður í snjóskafl án þess að mæla orð af vörum. J «

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.