Lesbók Morgunblaðsins - 24.12.1944, Side 13

Lesbók Morgunblaðsins - 24.12.1944, Side 13
LESP.ÓK MOROUNBLAÐSINS oí;) leit ]>á á mig brosandi og segir eftir uði í ílöfn í'ór jeg til Ilróarskeldu, til þess að skoða hina frægu dóm- kirkju þar. Mig hafði aldrei grun- að, að aðgangseyririnn til að skoða kirkjuna væri eins hár og hann vnr. Til þess að fara ekki erindisleysu varð jeg að láta gullpeninginn af hendi. Þá var hann farinn. En vit- anlega fjekk jeg mikið til baka. Tuttugu árum eftir að þetta skeði var jeg beðinn að halda guðs- þjónustu í 1 Iróarskeldu-dómkirkju. Áður en gengið var til kirkju, sagði jeg Martensen Larsen dómprófasti söguna um gullpeninginn. Mikill mannfjöldi var í kirkjunni. Að messugerð lokinni stóð jeg í kór og horfði hugfanginn á fólkið og kirkjuna. M var klappað á öxl- ina á mjer. Þar var dómprófastur- inn. llann segir. Nú finst mjer að þjer hafið fengið gullpeninginn yðar endurgoldinn. Á námsárum mínum í Ilöfn kynt- ist jeg mörgum ágætum kirkjunnar mönnum, sú viðkynning er mjer ó- gleymanleg og til ómetanlegs gagns í starfi mínu enn þann dag í dag. Þegar jeg átti eftir eitt ár af Garðstyrk kom jeg hingað heim, til ]>ess að spara mjer styrkinn og lesa heima í eitt ár og bæta fjár- haginn með kenslu og þessháttar. Þing kom saman rjett þá daga. Þá var hin ákjósanlegasta atvinna studenta að fá þingskriftir. Magnús Stephensen var þá nýhættur að vera landshöfðingi. Jeg barði að dyrum hjá honum daginn sem jeg kom, og bað um að fá tal af honum. Hann kom fram í forstofu og bar jeg upp erindi mitt. Hvort jeg myndi ekki geta fengið þing- skriftir. Mjer fanst hann nokkuð þungbrýnn og leist ekkert á. Sagði hann, sem von var, að eldri menn gengju fyrir. En annars rjeðu for- setar því alveg. Þá skaut jeg fram í: Það efast nú víst enginn um, að landshöfðinginn verði forseti. Ilann andartak: Eruð þjer frá Mýrar- holti? Og hafið mist föður yðar? Og eruð að læra til prests? Jeg kannaðist við það. Síðan skildum við. En fáum dögum seinna segir móðir mín við mig einn dag, er jeg kom heim. Hjer var maður með skilaboð til þín frá landshöfðingj- anum að hann vil<ii finna þig. .Teg var ekki lengi á leiðinni niður í þinghús og fjekk skriftirnar. En hve mikið varð úr námi þetta ár hjer heima, er annað mál. — Ilvenær varðst þú kandidat? — 3907. Og síðan skólastjóri við barna- og unglingaskólann á Isa- firði. Ánið 3 908 var stofnað nýtt prests embætti í Reykjavík, og varð sr. llaraldur Níelsson hjer prestur. gegndi því embætti í nokkra mán- nði. en sagði því af sjer sökum heilsubrests. Þá sótti jeg um þetta embætti. Áuk mín voru í kjöri allmargir á- gætustu menn. Jeg sendi sr. Jóni Helgasyni um- sókn mína. Við höfðum þekst frá því jeg var unglingur. Faðir hans átti part í Viðey. Faðir minn ann- aðist heyskap fyrir hann þar. Nokkru eftir að umsóknin var kom- in í hendur sr. Jóns leist mjer ekki á og hringdi til hans í síma. Þá var síminn nýlagður til lsafjarðar. Jeg bið sr. Jón að taka umsóknina aft- ur. „Jeg heyri að þú ert að prófa hvernig er að tala í síma frá ísafirði“, segir hann. Ánnað svar f.jekk jeg ekki frá honum. Og ura- sóknina tók hann ekki aftur. Jeg var á Isafirði 26. febr. 1910 þegar kosning fór frarn, og hjelt ræðu í fyrsta sinni við jajðarföb þennan dag, — 18 menn voru í einu jarðaðir frá Isafjarðarkirkju, þeir, er farist höfðu í snjóflóðinu í Ilnífsdal. ITjelt jeg þá ræðu ásamt sr. Þorvaldi Jónssyni prófasti. En seint um kvöldið frjetti jeg að jeg væri kosinn prestur í Reykjavík. Þórhallur Bjarnason var þá bisk- up. llann vígði mig. Ilann sagði m. a. í vígsluræðunni eitthvað á þessa leið: „Skrifað stendur. Eng- inn verður spámaður í sínu föður- landi. Jeg vona að það rætist ekki á þjer ungi bróðir“. Með miklum kvíða gekk jeg að starfinu. Og hafa þær áhyggjur í rauninni altaf fylgt mjer. 1 Reykjavíkur dómkirkju SÍÐAN ERU LIÐIX 3Ó ár. Eru þetta 35. prestsjól mín í Dómkirkj- unni. Ilefi jeg starfað í því þúsi Drottins að heita má daglega. Oft hefi jeg því ástæðu til að rifja upp fyrir mjer sögu þessarar kirkju. Á næsta ári eru liðin 160 ár síð- an ákveðið var að kirkjan í Reykja vík skyldi vera dómkirkja landsins. Var þá sem kunnugt er Skálholts- staður illa kominn. Þá var sóknar. kirkja Reykjavíkur í gamla kirkju- garðinum, sem menn nú helst kann- ast við undir nafninu ..Bæjarfó- getagarður“. Ákveðið hafði verið að reisa nýja kirkju og var hún reist á þeim stað, sem kirkjan er enn í dag. Var smíði hennar lokið haustið 1796 og hún vígð 6. nóv. það ár. Það gerði Markús Magnússon stiftsprófastur í Görðum. Sú kirkja kostaði á T. þfisund ríkisdali og þótti mikið. Kirkjan var stækkuð og endur- bygð á árunum 1846—48, en Ilelgi Thordersen vígði hina endurbygðu kirkju. Fyrsta prestsvígsla fór fram í Reykjavíkur-dómkirkju 13. nóv. 1796. En síðan telst mjer svo til að vígðir hafi verið þar 700 prest- ar. Fyrsti dómkirkjupresturinn var Guðmundur Þorgrímsson, langafi sr. Sigurðar Sívertsen vígslubisk- ups. Þá Geir Vídalín og síðan hver af öðrum. Margir merkir og sögulegir við- Framh. á bls. 542.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.