Lesbók Morgunblaðsins - 03.06.1945, Blaðsíða 2

Lesbók Morgunblaðsins - 03.06.1945, Blaðsíða 2
LKSr.uK MORríUNMIiAÐSINS 314 Betri son og tryggari en Jónas Hallgrímsson á ekkert land fc!œL 12),< Wcíj ^tejánuonar, ihá(di, viJ ietnimju <~Uiitamannafjint. íjiini FYRIR HÖND Bandalags ís- lenskra listainanna lysi .jeg vfir því, að á þessari stundu hefst þing Bandalagsins — Listamannaþingið. Er það í annað sinni, að slíkt þing er háð hjer á landi. Jeg leyfi mjer að bjóða velkominn forseta Islands, sem heiðrar Bandalagið með komu sinni hingað. Velkomna býð jeg einnig þingheyjendur alla og boðs- gesti. — Jeg þakka þá sæmd og það traust, sem Bandalagið hefir sýmt mjer, er það,kaus míg forseta þingsins, enda þótt jeg hefði nokkr- um vikum áður neyðst til að stíga ót fyrir vjebönd þess. En því dirf- ist jeg að mæla fyrir munn Banda- lagsins, að hugur minn til þess er óbreyttur og aðdáun mín á bók- menntum og fögrum listum söm og áður. Frá því er fyrsta þing Banda- lagsins var háð, hafa gerst miklir atburðir: Lýðveldi hefir verið stofn- að á Islandi. og forseti kjörinn. — íslensk skáld og listamenn fagna einhuga slíkum sigri. Bæði fyrr og síðai~hafa menn úr þeirra hópi bar- ist dyggilega fyrir frelsi þjóðarinn- ar — svo mun enn verða. — Undan- farna daga hefir boðskapur friðar- ins borist um heim allan. Þjóðir, sem áður voru fjötraðar, hafa hlot- ið frelsi sitt, vígvjelarnar eru að mestu þagnaðar í Evrópu. og ein- ræðisokinu ljett af álfunni. Þetta eru því í senn viðburðarík og gleði- leg tímamót — sem allt mannkyn væntir, að vei'ða megi upphaf nýrr ar og betri aldar. Yjer höfum öll fylgst með het.ju- • « » Jónas Hallgrímsson. Mynd þessi var áður í eigu Rann- veigar, systur Jónasar, en er nú eign Davíðs Stefánssonar. legri varnarbaráttu Norðmanna og Dana, — og veit jeg, að jiað er vilji alls þinglieims að lýsa fögnuði sínum yfir endurheimtu frelsi þess- ara frændþjóða vorra. Aldrei sýndu þær betur en nú manndóm sinn og frelsisvilja. <>g þó að ga-tt hafi lít- illega feyskju í limi hins norræna ættstofns, mun slíkt ekki saka. fúnu greinarnar verða höggnar af. og meiðurinn allur laufgast að nýju. Vjer vitum, hvert beina skal þakklæti voru fyrir fenginn frið; en, vjer eigum einnig skuld að g.jald i þjóð vorri og landi. íslenskir rit- höfundar og listamenn launa svo, best fóstur, að þeir leitist við að skilja köllun sína og hlutverk, leggi rækt við sínar eigin gáfur og stuðli að því, eítir megid, að sam- herjar þeirra og þjóðin öll geti not- ið krafta sinna og snilli. — Til þess er Bandalag íslenskra listamanna, stofnað. Vel má vera, að hinar ýmsu deild- ir þess hafi í upphafi opnað hlið sín um of — slíkt örlæti má bæði kenna frjálslyndi og þroskavon, enda var aldrei til þess ætlast, að allir. sem inn gengju, hefðu greitt skáldamjöðinn jafndýru verði og Óðinn alfaðir. Mistök, sem orðið hafa innan fjelagsdeilda Bandalags- ins, má því með góðum vilja afsaka og rekja til æsku þeirra og gelgju- skeiðs. — En hitt er öllum hollt að vita, að enginn verður skáld eða listamaður af því einu að ganga í fjelag, eða hljóta styrk af ríkisfje. Svo máttugur er fjelagsskapur lista- manna ekki orðinn ennþá — og því síður fjármunir ríkisins. Hins vegar hefir margt áunnist, og Bandalag- ið og deildir þess vita nú betur en í upphafi, hvað til þeirra friðar heyr- ir. hvaða skyldur ber að rækja, ekki aðeins fjelögum sínum til góðs, heldur bókmenntum og listum til vegsauka ogallri þjóðinni til þroska óg blessunar. Fvrstu starfsárin hafa því verið reynsluskóli. og þegar á unga aldri hefir Bandalagið á að skipa mörgum góðum fjelögum. — mikilhæfum og víðsýnum listamÖbn- um, sem vænta má að marki þaun< ig stefnuna, að báðir megi vel við una. listamenn þjóðarinnar og þjóð- in sjálf. Það er hvorngum aðila

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.