Lesbók Morgunblaðsins - 03.06.1945, Síða 6

Lesbók Morgunblaðsins - 03.06.1945, Síða 6
LESBÖK MORGUNBLAÐSINS NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN JÓNAS HALLGRÍMSSON Þú tók -Jónas sjer fyrir hendur að safna til sögu og lýsingar ís- lenskra eldfjalla Mun Það bæði hafa verið vegna Islands lýsingarinnar, og einnig ætlaði hann að gefa vit sjerstaka bók um j>að efni, en mun ekki hafa fengið útgefanda. Eld- fjallaritgerð hans er um 100 Idað- síður, og er þar miklu lætur nieð efni farið en áður hafði gert verið af þeim, er rituðu um íslensk eld- fjöll. Ilefir hann sýnilega varið tiL hennar mikilli vinnu, og var þetta raunar eiua yfirlitsritið að gagni um þetta efni, þangað til Þorvaldur Thoroddsen gaf út eldfjallasögu sína. Eu ritgerðin lá geymd og graf in með öðrum handritum Jónasar, svo að fræðimenn höfðu hennar ekki not. Einnig hefir hann ritað stutt yfirlit um landskjálfta Áður hefir verið getið ritgerðar Jónasar um útselinn, en ýmislegt annað dýrafjræðilegs efnis er í rit- um hans víða í dagbókum og at- hugagreinum. Þar eru ýmsar mæl- ingar á dýrum og auðsætt er að bann hefir gert nokkrar líffræði- legar athuganir, og varið til þess alllmiklum tíma. Til Ilafnar sendi hann beinagrindur, fuglahami ^>g dýr í vínanda. En einkum hefir þann þó fengist við rannsókn hrygg dýranna. YafaLaust hafa fuglarnir verið sá flokkur dýra, sem honum var hugleiknastur. Þegar snemma á námsárum sínum flutti hann erindi um fuglana á íslandi á fundi ts- lendinga í Kaupmannahöfn, og var það síðar prentað í Fjölni. Ári síð- ar en hann flutti erindi þetta, eða 1836, bauð hann Bókmentafjelaginu að semja fvrir það íslen.ska fugla- fræði, en úr því varð ekki, og Síðari grein strandaði það á mótspyrnu Reykja- víkurdeildarinnar, henni til lítillar sæmdar. í Islandslýsingarbrotunum er stutt yfirlit yfir íslenska fugla, er það nokkru fyllra en hið fyrra fuglatal hans. Alls er þar getið 101 tegundar fugla, er sjest hafi á Is- landi, og sumum þeirra lýst að nokkru. í brotum þessum er einnig al- mennur inngangur að spendýra- fræði, og skrá um íslensk spendýr, auk þess nokkuð um seli og hvali,. sem þó mun þýtt að mestu. Einnig hefir Jónas samið íslenskt fiskatal og er þar getið 66 fiska- tegunda, en nokkrar þeirra eru að vísu tilbrigði af sömu tegund. Jó- r.as sendi ýmsum mönnum spurning ar um i'iska og fiskveiðar og hefir vafalaust dregið saman allmikið um ]>að efni, enda var ]>að eitt þeirra viðfangsefna, sem hann eink- um hafði ásett sjer að rnnnsaka. Geta má þess í þessu sambandi, að hann varð fyrstur náttúrufræðinga til þess að veita blágómunni athygli sem sjerstakri tegund, en Steen- strup lýsti henni vísindalega. Þá eru til eftir hann tvær skrár um íslensk lindýr, og nokkrar smágrein ir dýrafræðilegs efnis. Grasafræðin er sú grein náttúru- fræðinnar, sem Jónas hefir minst sint. Má vera að rekja megi það til þess, að grasafræðikennslan fór fram í læknadeiid en ekki í heim- spékideildinni, þar sem Jónas stund aði nám. Vekur ]>að raunverulega nokkra furðu, að skáldið, sem orti um „smávini fagra“ skuli hafa veitt gróðri landsins jafn LitLa athygli og raun ber vitni um. Varla er hægt að segja, að nokkurs staðar sje minst á gróður í dagbókum hans, liema skóg á tveimur eða þremur stöðum. Ekki verður heldur sjeð, að hann hafi safnað plöntum, og getur hann þó mða um hluti þá er hann safnaði. ITið eina, sem jeg liefi tekið eftir í því efni, er að Jiann í brjefinu fræga um alþing segist hafa farið að safna mosum fyrir Salomon Dreyer. Til er að vísu íslenskt grasatal eftir Jónas, er það aðeins upptalning á plönt- um með laíneskum og íslenskum heitum. Flest hinna íslensku nafna finnast í eldri ritum svo sem grasa- fræði Odds Hjaltalíns og Grasnytj- um síra Björns Halldórssonar, en nokkrar þeirra liygg jeg að Jónas hafi sjálíur smíðað. Af ýmsu má ráða það, að þekking hans á grasa- fræði hefir verið takmörkuð. Á einum stað kvartar hann um það í brjefi, að sig skorti hjálpargögn til að rannsaka gróður, og til er brjef frá honum til Schous prófes- sors, hins ágæta danska grasafræð- ings, þar sem Jónas fer þess á leit, að hann semji yfirlit um flóru Is- lands handa Islands lýsingunni, og bendir honum meðal annars á grasa- söfn Steenstrups. Sennilegt er, að hann hefði getið þess, ef hann hefði sjálfur haft eitthvað 1 þá átt. Það má því telja nokkurn veginn \dst, að hann hefir lítið eða ekkert gert

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.