Lesbók Morgunblaðsins - 15.07.1945, Síða 5
LESBÖK MORGUNBLAÐSINS
við rjeðumst í, að taka þátt í Eim-
skipaf j ela gsstofnuninni'4.
Starf Ásmundar fyrir
þ j óðræknismálin.
ITJER hefir aðeis lítillega verið
drepið á störf Ásmundar Jóhanns-
sonar fyrir eitt mesta þjóðþrifa-
mál íslendinga heima. En hann
hefir látið önnur þýðigarmikil mál
t.il sín taka. Er þá eftilvill fyrst
að minnast á starf hans í þágu
þjóðræknismálanna, sem Yestur-Is-
lendingar hafa betri skilning á, en
flest okkar heima.
Einhver mesti og besti Jmtturinn,
sem Ásmunur hefir átt í þjóðrækn-
ismálum Vestur-Islendinga eru af-
skifti hans af fjármálum Lögbergs.
Jeg veit að hann vill, sem minst
um þetta tala og síst opinberlega.
En íslendingar meg vel vita af því,
að er útlit var fyrir, að blaðið yrði
að leggjast niður sökuni fjárskorts,
hljóp hann undir bagga og rjetti
við fjárhaginn. En fari svo, að
íslensku blöðin í Vesturheimi legg-
ist niður, þá er um leið úti um
íslenska kynstofninn hvað þjóð-
rækni snertir. Það vissi Ásmundur.
Þá hefir Ásmundur stutt kirkjumál
safnaðarins vel og dyggilega sem,
önnur mál, sem hann hefir haft af-
skifti af.
O'rð hans eru gulls ígildi.
OKKUR verður tíðræðnast um
Ásmund P. Jóhannsson fyrir giftu-
samleg afskifti hans af sameigin-
legum áhugamálum okkar Islend-
inga austan hafs og vestan. En þó
Ásmundur hefði aldrei til Islands
komið eftir að hann fór í „kynnis-
förina“ til Ameríku fyrir 45 árum,
hefði Island samt notið góðs af
vesturför hans.
Ásmundur er vel kvirtur meðal
samborgara sinna í Kanada. Það
er eins og háttsettur embættismað-
JTJ
ur sagði við mig, er talið barst að
Ásmundi:
„Hann hefir gert landi sínu sóma
með því að vera eins og hann er.
Ábyggilegur og góður borgari. Orð
hans eru gulls ígildi. Það, sem Ás-
mundur Jóhannsson hefir einu sinni
sagt, er hægt að reiða sig á. Iíann
er vissulega nýtur og góður þegn,
sem nýtur virðingar og trausts
þeirra, er hann þekkja, og það eru
margir“.
Jeg sem þessar línur rita, hefi
ekki þekt Ásmund lengi, nema af
afspurn. En sú stutta viðkynning,
sem jeg hefi af honum haft. liefir
verið mjer mikils virði, því þar
sem Ásmundnr er, fer íslendingur,
sem gert hefir garðinn frægan og
aukið mikið hróður íslands og ís-
lendinga.
íslendingurinn.
ÁÐUR en jeg kvaddi Ásnnmd,
spurði jeg hann hvort hann hugs-
aði til heimferðar bráðlega.
„Kaupmaður vill sigla, en byr
hlýtur að ráða“, var svarið. „Jeg
hefi farið 10 sinnum til Islands og
31 sinnum til Kanada frá Islandi.
I hvert sinn, sem jeg hefi komið
um borð í íslenskt skip, ^hefir mjer
fundist jeg vera kominn heim. Það
er mín mesta tilhlökkun að komast
um borð í skipin okkar íslensku,
þá veit jeg að jeg er kominn á leið
heim og þá byrja jeg að hlaupa í
spik“/
Ásmundur er enn ungur í anda
og við íslendingar eigum eftir að
heyra frá lionum. Vinir hans bjóða
hann velkominn heim og vonast
til að það verði, sem fyrst. En sjálf-
ur hafði hann yfir þessa vísu er
jeg kvaddi hann:
Kyrjaðu tröllum kveðjurnar,
klettahöllum, sölum,
heilsaðu öllum heima þar,
hálsum, fjöllum, dölum.
★
ÁSMUNDUR býr að 910 Palmers-
ton Avenue í "Winnipeg. Hann
misti fyrri konu sína, frú Sigríði
1934. Þau eignuðust þrjá efnilega
pilta, Jónas Valdimar, kvikmynda-
hússeiganda í Pine Falls, Kára Vil-
helm, búsettur í Winnipeg og Grett-
ir Leo, ræðismann fslendinga og
Dana í Winnipeg.
Seinni kona Ásmundar er Guð-
rún Eiríksdóttir.
Ásmundur Jóhannsson hefir að
verðleikum verið sæmdur Stðr-
riddarakrossi Fálkaorðunnar með
stjömu og ennfremur gullmerki Al-
þingishátíðarinnar 1930.
Vinir Ásmundar á Islandi munu
senda honum hlýjar kveðjur á sjö^
tugsafmælinu, en þeir mega líka
vita, að hugur afmælisbarnsins verð
ur heima á Islandi þann dag sem
flesta aðra daga.
I. Q.
Símskejdi: Kæra tengdamóðir!
Hulda eignaðist tvíbura í morg-
un. Meira seinna.
★
■— Hvenær ætla þau að gjfta sig?
— Jeg er hræddur um, að það
verði seint
— Hvers vegna
— Vegna þess, að hún vill ekki
giftast honum, fyrr en hann hefir
greitt skuldir sínar, og hann getur
ekki greitt þær, fyrr en þau eru
gift,
★
— Ilvað gerir leigjandinn þirin ?
— Hann er hugvitsmaður. -
— Og hvað finnur hann upp?
— Nýjar og nýjar afsakanir fyrir
því að geta ekki borgað húsaleig-
una.