Lesbók Morgunblaðsins - 25.01.1948, Síða 9
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
37
í SLENDIN GUR Á KÍN
VERSKU VARÐSKIPI
UNGUR REYKVÍKINGUR stundar
um þessar mundir tollgæslu á kín-
versku varðskipi við strendur Kína.
Hann heitir Guðmundur Sívertsen,
sonur frú Hildar og Jóns heit. Sivert-
sen. Hann er 2. stýrimaður á skipinu
og er starf hans, ásamt skipherra,
sem er Breti og 1. stýrimanns, sem er
Ungverji, að æfa kínversk sjóliðsfor-
ingjaefni í því að taka síðar að sjer
stjórn skipsins.
Guðmundur Sívertsen er 28 ára. —
Hann lauk prófi í farmannafræði við
Sjómannaskólann hjer 1943, en fór ár-
ið eftir í siglingar og hefur síðan farið
víða um heim, lengstum sem stýrim.
á norskum og amerískum skipum og
lokið prófi í loftsiglingafræði við
skóla í Hollywood í Kaliforníu. Guð-
mundur fjekk snemma óhuga fyrir
sjómennsku og var lengi á
varðskipunum íslensku, áður en
hann fóf í Stýrimannaskólann. Guð-
mundur hefur með dugnaði og ástund
un brotið sjer braut meðal framandi
þjóða og starfar nú á slóðum þar sen'
fáir íslendingar hafa áður stundað
sjómennsku. Hefur Guðmundur að
vonum frá mörgu að segja af ferðum
sínum í framandi löndum.
Á fyrsta skipi, sem komi til \
Stavanger eftir stríð
Guðmundur rjeðist hjer í Reykja-
vík háseti á „Nova“, sem lengi sigldi
hingað til lands og fór með henni til
Leiyi í Skotlandi 1944. — Þar lá
skipið í mánaðartíma og hjelt síðan
til Aberdeen. Þar afskráðist hann og
hjelt til Glasgow og fjekk rúm á
norska olíuflutningaskipinu „Presi-
dent de Vogue“. Það sigldi milli Bret-
lands og New York, þar til í styrjald-
arlok, að það fór til Noregs. Var það
fyrsta skipið, sem kom til Stavanger
eftir að friður komst á og urðu heldur
en ekki fagnaðarfundir milli norsku
skipshafnarinnar og Norðmanna
Guömundur Sívertsen
heima. Norðmenn voru þá illa staddir
með matvæli og fatnað og komu þeir
í stórhópum um borð. Var talið að
3—4 þúsund manns hafi komið um
borð meðan skipið lá í höfn. En skip-
verjar ljetu allt af hendi við lands-
menn, sem þeir gátu við sig losað.
Frá Noregi hjelt „President de
Vogue“ til Puerto de Cruz, sem er
smábær í Suður-Ameríkuríkinu Vene-
zuela. Þar fór Guðmundur af skipinu,
ásamt fimm skipsfjelögum sínum.
Eftir nokkur ævintýri og erfiðleika
í þessu framandi landi, tókst þeim
f jelögum að komast á breskt skip, sem
fór til hollensku nýlendunnar Curacao.
Eftir nokkurn tíma rjeðist Guðmund-
ur þar á eitt af stærstu olíufutninga-
skipum Norðmanna, mótorskipið „Ho-
eg Hood“, sem er 15,000 smálestir að
stærð. Var hann þar þriðji stýrimað-
ur. Hiti er mikill á þessum slóðum og
erfiður EVrópumönnum. Moskito-
fluga ásælin og ýmislegt andstj'eymi
fyrir hvita menn, sem ekki eru vanir
veðurfari* hitabeltislandanna. Neyslu-
vatn er ekki til á eyjum þessum og
verður að flytja það inn frá Banda-
ríkjunum.
«* ' * - o
Kenslustund í Ioftsiglmgaskólanum
I
v