Lesbók Morgunblaðsins - 24.12.1948, Blaðsíða 28

Lesbók Morgunblaðsins - 24.12.1948, Blaðsíða 28
534 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS "óð. Jeg sá kisu hvergi og sagði mömmu það og spurði hana hvort jeg mætti ekki borða pönnukökuna sjálfur. Hún hló og sagfi u5 jeg mætti að, sem jeg líka gerði. Baðs.jfan hafði öil verið sópuð og þv. 'in fyrir jólin. Meðan jeg var frammi var búið að kveikja þar tvö kertaljós auk þess sem kveikt hafði verið á olíulampanum. Loks- ins voru allir komnir inn, mamma og Inga líka. Pabbi tók bækurnar ofan af hillunni. Allir settust og pubbi las jólalesturinn, frásögnina um hina fyrstu jólanótt, um fæð- ingu Jeiúbarnsins, um ljósadýrðina á Betlehemsvöllum og um engla- sönginn, — Dýrð sje guði í upp- hæðum. Jeg hlustaði hugfanginn á þegar fólkið fór að syngja, og mjer fanst að systir mín gæti vel orðið engill, hún söng svo vel. En mikið fjarskalega kendi jeg í brjósti om Jesúbarnið, að þurfa að vera i'iti í fjárhúsi í jötu, svona lítið og ungt; vera þar í kuldanum. — Ekki hefði jeg viljað láta bróður minn, sem var nú víst lítið stærri en Jesú- barnið, vera úti í lambakofa svona kalda vetrarnóttina, jafnvel ekki þótt mamma hefði verið þar lÍKa og lofað honum að sjúga brjóstið á sjcr. Nci, jeg hefði ekki einu sinni viljað vcra þar sjálíur, þó pabbi heföi verið þar hjá mjer. — En það vai undarlegt hvað mann gat svfj- að þegar fólkið var að syngja. Aug- un í mjer duttu aítur og þó ætlaði jeg víst ekki að sofna, en jeg bara valt aftur á bak upp í rúmið hjá pabba, en jeg vaknaði við það og settist aftur upp. — Loksins var ’sálmurinn búinn. Hann var gríðarlega langur. Pabbi bauð góðar stundir og gleðileg jól. Allir þökkuðu tionum fyrir lestur- iun og buðu lionum og öllum i bað- rtofunm gleöileg 10I með hancta- bar.di eöa með kcsn Pau nabbi cg fóru s o !r2.m í fcúr o skamta jólamatmn. Innan stundar komu þær Inga og systir mín ber- andi inn stóra diska, fullhlaðna af hangikjöti og allskonar góðgæti, og ofan á öllu samar. var stci hlaði á hverjum diski af ía.lega útslcornu laufabrauði, og svo var stærðar kerti með handa hverju manns- barni. Allir settust svo við að borða. Jeg hafði bestu lyst á matn- um því jeg var orðinn fjarska svangur. En svo þurfti jeg endilega að bregða mjer fram til að sjá hvort pabbi fengi nú stóra kónga- kertið sem mamma hafði steypt á dögunum. Þá vildi svo óheppilega til, að systir mín sá mig ekki þar sem jeg stóð í myrkrinu framan við baðstofudyrnar, og datt um fót- inn á mjer. Hún var með tvo diska, og laufakökurnar og hangikjötið skoppaði í allar áttir. Systir mín varð rjúkandi vond og spurði mig því jeg stæði þarna í myrkrinu eins og draugur. Jeg sinti því engu, en sKoppaði fram í búr og þar fekk jeg að vita að pabbi fekk kónga- kertið, en jeg fekk aftur á móti þriggja Ijósa kerti. Jeg hljóp aftur inn, en þá hafði kisa náð í hanginn bringukollsbita af diskinum mín- um, svo jeg flýtti mjer að koma öllu góðgætinu niður í litla kistil- inn minn, því þar náði kisa ekki í pað. — Svo afhenti Gvendur mjer böggulinn frá Sigurði. í honnm voru spánný spil og heilmikið af gráfíkjum.' Nú kveiktu flestir á jólakertun- um sínum, svo nú varð skínandi bjart í baðstofunni okkar gömlu; svo bjart, að mjer fanst að varla liefði nú getað verið bjartara á Betlehemsvöllunum nóttina sem Jesúbarnið. fæddist. — Svo kom súkkulaði og kaffi eins og hver vildi liafa, og hverju mannsbarni var skamtaður með því s{ór diskur, fullur aí kleinum, jólabrauði, Honnukökurn 02 lunrmum. Svo n^oi petfci 1 fallegu flöskuna sins, csm hann tók stundum upp þegar sýslu- maðurinn kom, og gaf piltunum úr henni eitthvað út í kaffið. Og þeir urðu, p’ltarnir, eftir dálit’a stund, eivtlivað svo íjarska kátir og skemti lejjir af fcessu. ’Svo var farið í jólaleiki og pant- leiki og alt var í f júgandi fartinni af gleði og fjöri. Stúlkurnar hlógu svo fjarska mikið þegar piltarnir voru dæmdir til að standa á höfði, eða því um líkt, en fussuðu þegar þær voru dæmdar til að kyssa ein- Jivern þeirra. Þær gerðu það nú samt, því allir voru skyldugir til að gera það sem þeir voru dæmdir til. En þó að þær ljetust ekki vilja, bá held jeg að þær hafi nú sr.mt viljað kyssa piltana, en bara verið að látast. Og víst var um það, að Inga var ekki dæmd til að kvssa Gvend nema einn koss, en hún kyssti hann tvo, og sagði að hann væri vel rakaður. — Siggi srnali stakk upp á því að farið væri að spila Svartapjetur, en pabbi sagði: „Ekki að tala um“, — hvort Siggi vissi það ekki, að enginn mætti snerta á spilum á jólanóttina. Ef þá væri spilað, kæmu tveir tígulkóng- arnir í spilin og annar væri paurinn sjálfur. Pabbi helt að Siggi gæti spilað önnur kvöld, t. d. öll kvöldin milli jóla og nýárs. Og pabbi var fjarska alvarlegur svo Siggi varð bara sneyptur. Þegar fór að líöa á kvöldið fór jeg að verða svona einhvernveginn afllaus og þreyttur. Jeg settist á rúmið pabba. Jeg var náttúrlega ekki vitund syfjaður, en það var einhvernveginn svo undarlegt með augun í mjer, þau vildu altaf detta aftur. Nei, jeg var svo sem ekki syfjaður, það var nú meira gaman en svo þetta jólakvöld. Jeg aetlaði svo sem ekki að sofna, bara halla nijer aftur á bak stundarkorn og fara svo rjett strs:: að leika rnjer ri í tur V-I'z c íuliorðna folfcmu. _ Hn fc.v2.fc mier fsnst 12.r 2. vel um mig og hvað það var gott að lúra

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.