Lesbók Morgunblaðsins - 16.01.1949, Qupperneq 11
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
19
gengasti sjúkdómur mannkynsins.
Hún drepur árlega milljónir manna
og á móti hverjum manni, sem hún
drepur, gerir hún 100 óverkhæfa •
um lengri eða skemri tíma.
WHO hóf baráttu sína gegn
malaríu í Grikklandi. Hún geisaði
þar jafnhliða borgarastyrjöldinni.
Það kostaði mikla fyrirhöfn að
koma grísku stjórninni í skilning
um það, að malarían væri hættu-
legri óvinur heldur en uppreisnar-
menn. Þó hafði veikin á sumum
stöðum lagst á 85% íbúanna. Af
því leiddi aftur sult og seiru. Fólk-
ið var svo lasburða að það gat ekki
unnið að jarðrækt, sáningu og upp-
skeru. Og af því varð brestur á
matvælum.
WHO sendi flugvjelar til Grikk-
lands og ljet þær dreifa „D. D. T.“
yfir votlendi, þar sem mest bar á
malaríu. Stundum voru flugvjelar
þessar að verki á -þeim slóðum þar
scm uppreisnarmenn og stjórnar-
lierinn voru að berjast, cn aldrei
var þeim gert neitt mein. Hvorir
tveggja vissu að hjer var um björg-
unarstarf öð ræða. Og árangurinn
varð sá, að malaría hvarf svo að
segja á sumum stöðum og þar hef-
ur framleiðslan nú aukist um 60%.
í Abyssiníu eru um 14 milljónir
íbúa. Mcnn, sem sendir voru til að
athuga hcilsufar þar í landi, kom-
ust að þcirri niðurstöðu að 11 millj-
ónir manna væri með kynsjúkdóma
(annað hvort syfilis eða lekanda,
cða hvort tveggja). Aðrir sjúkdóm-
ar, svo sem malaría, berklaveiki og
húðsjúkdómar, voru svo algengir,
að ekki varð neinni tölu komið á
sjúklingana.
Heilbrigðis ráðstafanir voru eftir
þessu. Þar var aðeins einn viður-
kendur læknir, ein hjúkrunarkona
og einn hcilbrigðisfulltrúi. Voru nú
þegar scndir þangað sjerfræðingar
frá Grikklandi, Kanada, Bretlaudi
og Bandarikjunum. Byrjuðu ,þeir a
því að kcma uv'd h1
skóla og fá stjórnina til að setja lög
um almenna heilsuvernd, þrifnað
og íbúðir. Gert er ráð fyrir því að
undirbúningsstarfið muni standa í
10 ár áður en hægt verður að byrja
á því fyrir alvöru að útrýma sjúk-
dómunum.
Yfirleitt má segja að alt starf
WHO fram að þessu sje undirbún-
ingsstarf, eins og að líkum lætur.
Þótt það hafi þegar gert út leið-
angra til að stöðva drepsóttir í
Egyptalandi og Grikklandi, þá horí
ir það lengra fram í tímann í þeirri
von að ekki þurfi til þess að grípa
að gera út slíka leiðangra þegar
stundir líða. Aðalforstjóri þess, dr.
Chisholm, hefur gert starfsáætlun
fyrir þetta ár, og fyrir næsta aldar-
fjórðung. Þar er gert ráð fyrir því
að mönnum sje gert auðveldara en
áður að flytjast úr einum stað í
annan, að einnig sje hugsað um
andlega heilbrigði, sem getur haft
víðtækar afleiðingar fyrir samskifti
þjóða, og að kapp sje lagt á að
kenna mönnum heilbrigt mataræði
og þrifnað, og bætt sje húsakynni
og vinnuskilyrði um allan heim.
(Útdráttur úr greinum í „To-
morrow“ í New York, „United
Nations World“, í New York og
„New York Herald Tribune").
>w >w >w >w
~S>hyn,dimijn d
í meðlæti framtak sitt maöur eykur.
cn mús lcggur undir flatt,
kálfuriuii dausar, kötturiun leikur
— en konan nær sjer i hatt.
Vonsvikum maður í víni drekkir,
vindlaust Iijól gerist flatt,
á ritunni svangur kjói klekkir
— cn konan nær sjer i hatt.
í atvinnuleysi ógnar manni
útsvar að greiða og skatt,
kolin randyr, kóiaar • ramu
t- akfitíí c tzti.
^Jdeótuíia
(BRAGRAUN)
Rauðleitur reiðgoti óður,
rjett þrifur þjettstífur sprettinn,
ákafur, ósvífinn hófum,
óð hrestur, góðhestur bestur.
Jór fríður, frár, greiður, þorinn,
fjörlipur, kjörgripur svip ör. —
Lýsa með ljóskvikum blysum
lappir, þá klappirnar stappa.
PÁLL IIJÁLMST.
;W ;W W ^W W
RÁÐNING
Á VERÐLAUNAKROSSGÁTU
LESBÓKARINNAR
1948
Lárjett: 1 ginningarfíflin — 13 áanna
— 14 útsjó — 15 14 — 17 mn — 18 íat —
20 te — 21 óð — 22 las — 24 malurta
— 27 ætu — 28 inntak — 30 úðaðar —
32 naust — 33 ýta — 35 aðall — 36 ró
— 37 úrari — 28 ar — 39 arð — 42 ani
— 44 nóg — 46 rausar — 48 boraði —
50 gumum — 51 hyl — 53 rýran — 54 jð
— 55 matarafli — 58 ug — 59 ara —
61 na — 62 já — 63 óða — 64 fiski-
mannakonur — 69 ni — 70 innar — 71
ra — 72 reiðinn — 73 matfrír.
Lóðrjett: 1 gyllingargjafir — 2 ná —
3 nam — 4 inrunat — a nn — 6 gafl —
7 Rútr — 8 ft — 9 ístaða — 10 fje — 11
ló — 12 niðurlægingarár — 16 áana —
19 austanbyrinn — 21 ótal — 23 snurð-
um — 25 ak — 26 tú — 27 æðarnar —
29 tsó — 31 aða — 33 ýra — 34 ari —
40 rauðri — 41 gamani — 43 Þorlák —
45 óðauðu — 47 sum — 49 rýi — 51 ha
— 52 la — 56 tamin — 57 fjara — 60
asni — 63 ónar — 65 kið — 66 ann —
67 nam — 68 orf.
Alls bárust 85 ráðningar. 37 þeirra
reyndust rjettar, en 48 rangar. Dregið
var um verðlaunin.
1. verðlaun hlaut Páll Theodórsson,
Sjaínargötu 11, Reykjavík.
2. verðlaun: Gunnar Hermannssoíi,
Mentaskólanum á Akureyri.
3. verðlaun: Páll Helgason c/o Gef jun
Akureyrj.