Lesbók Morgunblaðsins - 06.02.1949, Qupperneq 7
r
51
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ' * '
HÆGT
LÆKNAFJELAG Reykjavíkur
kaus í haust nefnd til að hafa for-
göngu um stofnun fjelagsskapar
til að hefja baráttu gegn krabba-
meini. Hafa slík fjelög fyrir löngu
verið stofnuð í flestum menning-
arlöndum og gert mikið gagn.
Hjer er enginn slíkur fjelagsskap
ur til og er tími til kominn að
hefja framkvæmdir um stofnun
hans, og það þótt fyrr hefði ver-
ið. Krabbameinið er, eins og allir
vita, algengur sjúkdómur hjer á
landi og er smám saman að færa
si£ upp á skaftið, þannig að það
er nú aílra sjúkdóma skæðast sem
dánarorsök. Af hverjum 1000
manns, sem dóu árið 1944 en það
er síðasta árið sem. heilbrigðis-
skýrslur ná yfir, dóu.146 úr krabba-
meini, en það svarar til þess, að
nálægt því 7. hver maður deyi nú
úr krabbameini. Árið 1929 dóu 121
af 1000 úr krabbameini, eða 8.—9.
hver maður, svo að aukningin er
greinileg á tæpum tveim áratug-
um. Að vísu er mannsæfin að
lengjast, svo að fíeiri komast á
krabbameinsaldurinn, sem telja ma
að sje aðallega milli 50—70, en
krabbamein er engan vegin sjald-
gæft á fimmtugsaldri og svo lítur
út sem það sje heldur að þokast
niður á við eftir aldursfiokkunum,
því að fyrir tæpum tveim áratug-
um var það aígengást hjá fólki vfir
mega aldrei koma í bág við stefnu
nje grundvallaratriði Sameinuðu
þjóðanna.
30. Ekkert í þessari yfirlýsingu
má túlka þannig að það heimili
einhverju ríki, flokk eða einstakl-
ing að gera eitt eða neitt í þá átt
að hefta það frelsi og þau rjett-
indi, sem hjer hefir verið lýst.
ER AÐ LÆKNA
KRABBAMEIN
Fyrirhugað fjelag styður að
þvj að svo verði
*—■—-----------------------------
LÆKNAFJELAG Reyk.iavíkur
hefur gengist fyrir því, að hafinn
er undirbúningur að fjelagnstofn-
un, til þess að efla varnir gegn
krabbameini. Forgangsmennirnir
’ efndu til fundar þ. 1. þ. m.. þar
sem verkefni hins væntanlega
fjelags var rætt. Niels Dungal pró-
fessor var frummælandi á fundi
þessum. Hjer birtist ræða hans,
er fjallar um það, hvernig megi
með víðtækum samtökum og
skipulögðu starfi, vinna að þvi, að
almenningur komi við vörnum, og
njóti meiri varna gegn bessum
sjúkdómi í framtíðinni, en hing-
að til hefir verið.
+■
+
I
Niels Dungal prófessor.
i
;
— -----------------———+
60 ára, en nú sjáum við flest tilfell-
in hjá fólki á sextugsaldri.
Oft hægt aft lækna
krabbamein.
Hjer á landi deyja nú um 180
manns á ári úr krabbameini. O-
hætt er að fullyrða, að þetta er
óþarflega há dánartala og að margt
af þessu fólki gæti verið á lífi, ef
allt hefði verið gert sem unnt er
að gera nú á tímum til bess að
varna krabbameini og lækna það.
í augum margra er krabbamein
ólæknandi sjúkdómur, sem lækn-
arnir ráða ekkert við. Þessi hug-
mynd er algjörlega röng. í byrjun
er krabbameinið lítil og takmörk-
uð meinsemd, sem oft er auðvelt
að nema burtu, svo að sjúkiingur-
inn fær fulla lækningu, en því leng
ur sem hann gengur með sjúkdóm-
inn, því erfiðara verður að lækna
hann.
Það er með öðrum orðum ekki
nema að tiltölulega litiu leyti und-
ir lækninum og hans getu komið,
hvort það tekst að lækna sjúkling
af krabbameini. Það er fyrst og
fremst undir því komið, að sjúkl-