Lesbók Morgunblaðsins - 20.02.1949, Page 1

Lesbók Morgunblaðsins - 20.02.1949, Page 1
Frönsk kynni á fyrri öld. I. FRAKKAR VILJA STOFNA FISKI- MANNANÝLENDUR í DÝRAFIRÐI MEÐAN einokunarverslun var hjer á landi, fylgdi danska stiórnin ávalt þeirri reglu, að láta þá sem verslunina höfðu tekið á leigu, hvort sem það voru einstaklingar eða verslunarfjelög, hafa fiskveið- arnar við ísland í sínum höndum. Þegar verslunin var gefin frjáls við alla þegna Danakonungs 1786, var þeim einnig áskilinn rjettur til fiskveiðanna, en öllum útlending- um bannað að fiska í landhelgi. Þessi ákvæði voru ítrekuð í til- skipun 13. júní árið eftir og er þar meðal annars komist svo að orði að „það skuli harðlega vera bannað skipum allra útlendra þjóða, nema í nauðsyn, að sigla inn á firði, víkur og hafnir landsins, þar eð þau ella verði gerð upptæk, og megi engir utanríkismenn dirfast að fiska und ir landinu, eða verka fisk sinn, ann að hvort á landi eða á þeim eyum og skerjum, sem hjá landinu liggja“. Með tilskipun 11. september 1816, sem leyfði utanríkismönnum með vissum skilyrðum að versla hjer a landi, var engin breyting gerð á þeim ákvörðunum, og eigi heldur í lögunum 1854 um verslun á ís- ÞETTA mun hafa verið ástæðan til þess, að B. Demas, skipherra á franska herskipinu „la Bayonn- aise“ og „yfirmaður hinna frönsku skipa er liggja undir íslandi“ sendi Alþingi 1855 erindi um það, að Frakkar fengi leyfi til þess að stofna nokkurs konar nýlendu í Dýrafirði, fiskverkunarstöð, þar fi'au kttdo landi, sem þó heimiluðu útlendum fiskimönnum að fara inn á sjerstak- ar hafnir og kaupa þar nauðsynjar sínar, en bönnuðu að utanríkis- menn mætti reisa skúra, tjöld eða byggingar á landi. En með þeim lögum var útlend- ingum leyft að setjast hjer að og reka verslun og fiskveiðar og vinna sjer borgararjett hjer á landi. sem yrðu á að giska 400—500 manns, í þessari umsókn segir fyrst frá því að langt sje síðan að kaupmenn í Dunkerque í Frakklandi hafi farið að hugsa um að koma á fót þess konar stofnun á íslandi. „En með

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.