Lesbók Morgunblaðsins - 27.02.1949, Síða 1
Frönsk kynni á fyrri öld II
NAPOLEON PRINS
TIL REYKJAVÍKUR
KEMUR
Herksipið „la Reine Hortenze“.
VORIÐ 1856 frjettist það að Reykja
vík ætti von á merkilegri heimsókn
þá um sumarið. Jerome Napoleon
prins, bræðrungur Loðvíks Napo-
leons III. Frakkakeisara væri vænt-
anlegur um Jónsmessuleytið ásamt
fríðu föruneyti, og mundi dveljast
hjer um skeið. Hafði Danastjórn
mælt svo fyrir að prinsinum yrði
sýndur hjer allur sómi og tekið svo
vel á móti honum sem kostur
væri á.
Þetta þóttu ekki lítil tíðindi, að
konungleg heimsókn væri í vænd-
um. Menn urðu þegar kengbognir
af aðdáun á því lítillæti hins
franska prins, að hann skyldi vilja
sýna höfuðstaðnum og landinu
þann óverðskuldaða sóma að líta á
það. Varð uppi fjöður og fit í bæn-
um og var öllum höfðingjum ljúft
að verða við þeim fyrirmælum
dönsku stjórnarinnar að búa alt
sem best undir, svo að móttökurnar
gæti orðið svo göfugum gesti sam-
boðnar.
Fyrsti forboði heimsóknarinnar
var sá, að 2. júní kom til Reykja-
víkur þrísiglt franskt skip, mikið
bákn og fallbyssum búið. Var það
drekkhlaðið af kolum og vistum
handa leiðangri prinsins. Tók nú
eftirvænting manna mjög að auk-
ast, og enn jókst hún þegar hingað
komu nokkru síðar tvö ensk gufu-
skip, hlaðin kolum og vistum handa
leiðangrinum. Mátti á þessum
mikla viðbúnaði sjá hve mikils hátt
ar viðburður var í vændum.
★
OG SVO rann upp hin mikla stund.
Hinn 30. júní brunuðu tvö frönsk
herskip hjer inn á höfnina. Voru
það gufuskip og hjetu „la Reine
Hortenze" og „la Carco“, en þriðja
franska herskipið, „Artemise", sem
hjer var fyrir, fagnaði þeim með
21 fallbyssuskoti, svo undir tók í
Esjunni og fellunum í Mosfells-
sveit.
Helstu menn Reykjavíkur brugðu