Lesbók Morgunblaðsins - 12.06.1949, Síða 1
u
XXIV. árgangui.
21. tölublað.
mpgmiÞIatoisi*
Sunnudagur 12. júní 1919.
ívar G^ðmundsson:
SUNNUDAGSMORGUN
í „PETTICOAT LANE“
Nokkur hluti af Petticoat Lane.
I PETTICOAT LANE fæst alt milli
himins og jarðar, frjálst, eða stoikY
nýtt og gamalt, heilt og gallað. —
Petticoat Lane er markaður í aust-
urhluta Lundúnaborgar, þar sem
hundruð smákaupmanna bjóða vör-
ur sínar á sunnudagsmorgnum, frá
kl. 8—2, þegar flestir sannkristnir
menn hlýða messu og halda hvíld-
ardaginn heilagan.
Þúsundir manna fylla strætið,
þar sem Petticoat Lane markaður-
inn er. Án efa koma margir í þeirri
von, að þeir muni gera þar góð
kaup, en fleiri munu leggja leið
sína þangað af forvitni. ti! þess að
kynnast af eigin raun þessum ein-
kennilega inarkaði í London hlusta
á kaupmenn bjóða vörur sínar með
skrækum, eða dimmum röddum,
alt eflir því hvernig hverjum og
einum liggur rómur, horfa á hinar
ei nkenni legu J ækningaaðger ðir,
iáta spá fyrir sjer, eða skoða hina
mörgu skrítnu karla, sem þar eru
og bjóða vörur eða hlusta á holl
ráð um hestaveðhlaup. — Það er
líf í tuskunum í Petticoat Lane og
nóg er af tuskunum. Jeg ákvað að
skreppa þaugað eiuu sunnudags-
morgun í vor, eftir að kunningi
minn hafði sagt mjer frá fatakaup-
unum, sem hann liaíði gert þar.
Fatakaupin.
Það var áður en fataskömtun var
afnumin i Biellandi. Sögumaðuv