Lesbók Morgunblaðsins - 26.06.1949, Síða 1

Lesbók Morgunblaðsins - 26.06.1949, Síða 1
XXIV. árgangm. 23. tölublað Sunnudagur 26. júní 1949 Poul Uttenreitter NORRÆNA LISTSÝNINGIN Eftirfarandi grein hefur höf. Poul Uttenreitter ritað fyrir Lesbók. Kaupmannahöfn í júní 1949. HIN stóra norræna listsýning, með öllum hinum venjulegu opinberu hátíðahöldum, var haldin í Kaup- mannahöfn í maí og júní. Stóð Nor- ræna listabandalagið að henni. En hlutverk þess er, sem kunnugt er, að halda sameiginlega norræna listsýningu á hverju ári, og vinna með því að margvíslegu lista- og menningarsambandi Norðurlanda- þjóðanna. Þessar sameiginlegu listsýningar eru haldnar til skiptis í höfuðborg- um Norðurlanda. Sú fyrsta var haldin í Oslo 1946, sú næsta í Stokk- hólmi ’47, í Reykjavík í fyrra. Og nú var komin röðin að Kaupmanna höfn. Hjer voru tekin í notkun sal- arkynni bæði Charlottenborgar og „Frjálsu sýningarinnar.“ Mikið um að vera. Sýningin vakti mikla athvgli meðal almennings, eftir aðsókninni að dæma. En undirtektir blaðanna voru ekki góðar, eða öllu heldur afleitar. Rjett er þó að taka það fram, að þrátt fyrir ljelega blaða- dóma og áberandi galla á sýning- unni, gaf hún mönnum einstakt og ánægjulegt tækifæri til að sjá mörg merkileg listaverk, sem annars hefðu ekki komið fyrir almennings- sjónir. En það er fullkomlega aug- ljóst mál, að ef þessar samsýning- ar eiga að halda áfram, þá verður að vanda mun meira til þeirra en gert hefur verið. Samsafn sem þetta getur ekki notið sín. Það er komið á daginn, að slíkar sýningar verða ofraun, ef halda á uppteknum hætti, og hafa þær á hverju ári. Annað hvort eða þriðja hver ár myndi verða hentugra, því þá væri hægt að safna kröftum og vanda betur til þeirra. Samkvæmt lögum Listabanda- lagsins á þarna aðeins að vera sýnt úrval af list þeirri, sem sköpuð hefur verið síðustu fimm ár, og þá einkum meðal yngri kynslóðarinn- ar. Seinna var þó gerð sú breyting á, að einnig ætti þarna að koma fram úrval af list eldri manna. Varð þetta til þess að í ár voru sýnd verk eftir ýmsa merka látna lista- menn, svo sem Gallen Kallela Magnus Enckell, Edv. Munch Eugen prins, Carl Wilhelmson og Niels Larsen Stevns. En þarna var ófullnægjandi úrval af verkum þeirra og þeim illa fyrir komið á sýningunni, svo þau nutu sín ekki sem vera bar. Myndir þeirra hefðu vitaskuld átt að vera á sjerstökum heiðursstað. ★ Jeg get ekki gert list hvers ein- staks lands að ýtarlegu umtalsefni, nú eftir að sýningunni er lokið En jeg var undir þeim áhrifum, að Svíar hefðu vandað svo til þátt- töku sinnar, sem frekast rnátti verða, og sent þangað eins vandað og fjölskrúðugt úrval og frekast var unt. Jeg nefni, til þess að taka nokkur áberandi dæmi, Sven Erix- on: „Melodier ved Torvet“. frum- drættma að hinu Ijómandi lutg- myndaríku veggteppi í hljómleíka- höll Gautaborgar. Auk þess voru þarna mörg af ágætum málverkum hans, hafnarmyndir l'rá Norður- landi og Portúgal meðal annars. Þá er rjett að nefna Hilding Linn- qvist, er sýndi frumdrættina að hinu skrautlega veggteppi í bæjar- bókasafni Stokkhólms. í list hans gætir persneskra áhrifa. Sýnd var hin málaða lágmynd úr trje eftir

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.