Lesbók Morgunblaðsins - 14.08.1949, Blaðsíða 1
30. lölublaö
Sunnudagur 14. ág'úst 1949
XXIV árgangui
- í VESTURHÓPI
M I L L I Vatnsnesíjallanna, Viði-
dalsár og Hópsins heitir Vestur-
hóp. Það er mjög fögur sveit, og
líklega einhver hin fríðasta í allri
Húnavatnssýslu. Landslagi er svo
háttað að grösugur dalur gengur
norður með Vatnsnesfjöllunum að
austan og er ’nann svo víður, að
ágælt útsýni er frá flestum bæun-
um. Um nriðjan dalinn er stórt
vath, sem heitir Vesturhópsvatn,
og cr í því talsverð silungsveiði.
Nvrst í dalnurn er annað vatn, sem
kallast Sigríðarstaðavatn og hefur
það ós til sjávar vestur við fjöllin.
Fyrir austan það eru talsverðir
sandar. Nefnist þar Sigríðarstaða-
sandur og nær austur að Bjargaós
þar sem er útfall Hópsins til
sjávar. En fyrir austan þann ós tek-
ur svo við Þingeýrasandur.
Líklegt þykir mjer að Sigríðar-
staðavatn lnifi i öndvcrðu verið
kallað Hóp, þvi að það hefur cll
þ:>u P'nkentii. cr slíkri nafngifl
ráða. Úr því fellur ós til sjávar og
með llóði gengur sjór inn í ósinn
og verður því flóð og fjara í vatn-
inu. En vegna þess að Hópin voru
tvö, og svo skamt á milli, hafi
menn greint á milli þeirra með því
að kalla fyrst Hóp hið vestra, en
það hafi síðan breyst í Vesturhóp.
Má og draga þá ályktun af orðum
Landnámu: „Haraldur hringur hjet
maður ættstór. Hann kom skipi
sínu í Vesturhóp, og sat hinn fyrsta
vetur þar nær sem hann hafði lent
og nú heita Hringstaðir.“ Af þessu
virðist mega ráða, að hann hafi lagt
skipi sínu inn í vatnið, enda kemur
það vel heirn við það hvar Hring-
staðir voru, en þeir eru nú eigi
lengur bygðir og mun langt síðan
þeir fóru í eyði.
Af nafni vatnsins hefur svo bygð-
arlagið fengið nafn, en við það aft-
ur kent Vesturhópsvatn, því að það
vatn getur ekki dregið nafn sitt af
hópinu, þar sem ekkert afrensli er
úr Vesturhópsvatni út í hitt vatnið.
En fyrir löngu heíur verið fariö að
kenna hópið við bæinn Sigríðar-
staði, sem átti land út með að aust-
an, alla leið til sjávar. Rekann mun
sú jörð líka hafa átt fyrrum, en ein-
hver geíið hann í guðsþakka skyni,
því að hann er eign kirkjunnar á
Breiðabólstað.
EFTIR endlangri svéitinni að aust-
an ganga hálsaranar, með miklum
klctlabeltum og klettaborgum og
skamt á milii. Fremsti hálsinn cr
kallaöur Björg og nær sá hlutinn
frá því á móts við Þóreyariiúp
norður undir syori cnda Vestur-
hópsvatns. Um miðbik bjarganna
er í þeim hellir, og í þcim helli
ljet Óspakur, frændi Grettis, lífið
forðum í útlegð, eins og segir í
Bandamanna sögu.
Sunnarlega úr Vesturhópsvatni
fellur lækur austur í Víðidalsá og
heitir hann Faxalækur. Er sá læk-
ur frægur fyrir það, að þar Ijet