Lesbók Morgunblaðsins - 14.08.1949, Blaðsíða 1

Lesbók Morgunblaðsins - 14.08.1949, Blaðsíða 1
30. lölublaö Sunnudagur 14. ág'úst 1949 XXIV árgangui - í VESTURHÓPI M I L L I Vatnsnesíjallanna, Viði- dalsár og Hópsins heitir Vestur- hóp. Það er mjög fögur sveit, og líklega einhver hin fríðasta í allri Húnavatnssýslu. Landslagi er svo háttað að grösugur dalur gengur norður með Vatnsnesfjöllunum að austan og er ’nann svo víður, að ágælt útsýni er frá flestum bæun- um. Um nriðjan dalinn er stórt vath, sem heitir Vesturhópsvatn, og cr í því talsverð silungsveiði. Nvrst í dalnurn er annað vatn, sem kallast Sigríðarstaðavatn og hefur það ós til sjávar vestur við fjöllin. Fyrir austan það eru talsverðir sandar. Nefnist þar Sigríðarstaða- sandur og nær austur að Bjargaós þar sem er útfall Hópsins til sjávar. En fyrir austan þann ós tek- ur svo við Þingeýrasandur. Líklegt þykir mjer að Sigríðar- staðavatn lnifi i öndvcrðu verið kallað Hóp, þvi að það hefur cll þ:>u P'nkentii. cr slíkri nafngifl ráða. Úr því fellur ós til sjávar og með llóði gengur sjór inn í ósinn og verður því flóð og fjara í vatn- inu. En vegna þess að Hópin voru tvö, og svo skamt á milli, hafi menn greint á milli þeirra með því að kalla fyrst Hóp hið vestra, en það hafi síðan breyst í Vesturhóp. Má og draga þá ályktun af orðum Landnámu: „Haraldur hringur hjet maður ættstór. Hann kom skipi sínu í Vesturhóp, og sat hinn fyrsta vetur þar nær sem hann hafði lent og nú heita Hringstaðir.“ Af þessu virðist mega ráða, að hann hafi lagt skipi sínu inn í vatnið, enda kemur það vel heirn við það hvar Hring- staðir voru, en þeir eru nú eigi lengur bygðir og mun langt síðan þeir fóru í eyði. Af nafni vatnsins hefur svo bygð- arlagið fengið nafn, en við það aft- ur kent Vesturhópsvatn, því að það vatn getur ekki dregið nafn sitt af hópinu, þar sem ekkert afrensli er úr Vesturhópsvatni út í hitt vatnið. En fyrir löngu heíur verið fariö að kenna hópið við bæinn Sigríðar- staði, sem átti land út með að aust- an, alla leið til sjávar. Rekann mun sú jörð líka hafa átt fyrrum, en ein- hver geíið hann í guðsþakka skyni, því að hann er eign kirkjunnar á Breiðabólstað. EFTIR endlangri svéitinni að aust- an ganga hálsaranar, með miklum klctlabeltum og klettaborgum og skamt á milii. Fremsti hálsinn cr kallaöur Björg og nær sá hlutinn frá því á móts við Þóreyariiúp norður undir syori cnda Vestur- hópsvatns. Um miðbik bjarganna er í þeim hellir, og í þcim helli ljet Óspakur, frændi Grettis, lífið forðum í útlegð, eins og segir í Bandamanna sögu. Sunnarlega úr Vesturhópsvatni fellur lækur austur í Víðidalsá og heitir hann Faxalækur. Er sá læk- ur frægur fyrir það, að þar Ijet

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.