Lesbók Morgunblaðsins - 28.08.1949, Blaðsíða 1

Lesbók Morgunblaðsins - 28.08.1949, Blaðsíða 1
32. tölublað JHoYBtuiMftto iijsg Sunnudagur 28. ágúst 1949 XXIV. árgangur. GRJÓTI BREYTT I ULL NYR IÐNAÐUR HJER Á LANDI Hjer sjest lnáeínið: ljósa hrúgan er grágrýtismulningur, hitt gjallhrauii Á HÆÐINNI neðan við Geitháls í Mosfellssveit, og rjett við þjóðveg- inn austur yfir fjall reisti ameríski herinn á sínum tíma stórt kvik- myndahús. Var það að mestu með hcrskálalagi, og á stærð við birgða- skemmur hersins, en betur frá því gcngið að öllu leyti. Og mjög bar það af, bröggunum" þar umhverfis svo að allir sem um veginn fóru hlutu að veita því sjerstaka athvgli. Nú er horfið herskálahverfið, sem þarna var, en þessi bvgging stendur eftir. Og enn mun vegfar- endum verða starsýnt á hana. og þeir munu brjóta heilann um það til hvers hún muni vera notuð. — Nokkurri svipbreytingu hefur hún tekið hið ytra. Eru komnir á haria sex strompar og reykháfur, sem þyrlar úr sjer kolsvörtum reykjar- mekki, en hingað og þangað sjest gufu bregða fyrir. Al' þessu hvoru tveggja má draga þá ályktun að lijer sje rekinn einhver iðnaður, máske vjelsmiðja eða steypusmiðja. Onei, ekki er það svo, en iðnaður er hjer haíinn, iðnaður, sem ekki á sinn líka á landinu. Hjer er verið að vinna ull úr grjóti. Hjer er íslensku grjóti, gjall- hrauni úr Rauðhólum og grágrýti breytt í mjúka og voðíelda ullar- i'lóka. Jeg býst við að einhvcrjir relu upp stór augu þegar þeir lesa þetta og segi sem svo, að margt megi nú bjóða manni, en ekki slíka fjar- stæðu sem þá, að hægt sje að breyta grjóti í ull. Þetta er þó hverju orði sannara, og munu menn brátt fá að þreifa á þvi, þegar íarið verð- ur að nota ullina um alt land. En hún er notuð til einangrunar í hús- um og alls staðar, þar sem einangr- unar er þörf. VERKSMIÐJA þessi hefur ekki farið á stað með brauki' og bramli, eins og sum fyrirtæki. Það hefur verið hljótt um hana, enda er þessi iðnaður enn á tilraunastigi, og svo vildi til það óhapp í vor, að eldur varð laus í húsinu og olli riokkrum

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.