Lesbók Morgunblaðsins - 04.09.1949, Síða 6
386
LESBOK MORG UNBLAÐSINS
Skottulyf og sjálfslækningar
Á HVERJU. ari: eyða Bandaríkja-
menn alt að hálfri biljón dollara í
allskonar skottulyf og sjálfslækn-
ingar. Og á liveýj u ári verða þessi
hrf JJerri eðá færri mönnum að
bana. Aðra gera þau að lieilsulaus-
um aumingjum. Um þau er ekkert
gott að segja annað en það, að sum
þeirra kunni að vera meinlaus, eða
meinlítil.
Ef þú ert hneigður fyhir það að
reyna að lækna sjálfan þig með
undralyfjum og skottulyfjum, þá er
rjett áð minna þig á þetta: í hvert
skifti sem læknir lætur úti meðul,
gerir hánn það að vandlega íhug-
uðu ráði, og veit hver áhrif þau
hafa. Og hann tekur líka á sig
ábyrgð. Hann veit, að meðalið hef-
ur ekki aðeins þau áhrif að lækna
sjúkleikann, heldur getur það haft
áhrif á annan hátt. En hann hiknr
þó ekki við að gefa þjer meðal, sem
læknar lungnabólgu, þótt hann viti
að þjer geti orðið ilt í höfðinu af
því. Hann telur það líka rjett að
gefa meðal við hjartveiki, þótt það
kunni að hafa þau áhrif á sjúkling-
inn að hann svimi, og jafnvel líði
j'fir hann,
En þú veist ekkert hvaða áhrif
þau meðul kunna að hafa, sem þú
ert sjálfur að sulla í þig.
Læknar telja þó ekki rjett að
mönnum sje bannað að hafa heim-
ilislyf. Og læknafjelagið ameríska
(The American Medical Associa-
tion) hefur látið gera skrá um l>au
lyf, sem gott sje aðhafa á heimilum
til hjálpar í viðlögum. En það hefur
látið þeim lista fylgja þessar ráð-
leggingar:
— Menn eiga ekki að taka inn
meðal við höfuðveiki, verkeyðandi
meðul, hreinsandi meðul, nje önn-
ur innvortis meðul, nema með lækn
isráði. Þessi meðul geta verið hættu
leg; það er ávalt illsviti að venja
sig á þau. Neysla þcirra kemur
auk þess í veg fyrir að sjúkdómur
sje tekinn rjettum tökum í byrj-
un. — —
Hreinsandi meðul eru einna mest
notuð í heimahúsum. Það er vegna
þess að í skrumauglýsingum um
þessi lyf er fólki talin trú um, að
þaö þjáist af meltingarteppu. En
það er hreinasta fjarstæða. Melt-
ingarteppa kemur örsjaldan fyrir
þegar menn eru á fótum. Hún get-
ur komið fyrir þegar menn liggja,
en þá á læknir að greiða úr því.
Hins vegar er þcss að gæta, að
hreir.sandi meðul eru oft „verri en
gagnslaus“, og dæmi eru til þess
að menn hafa hreirn og beint stytt
sjer aldur með því að treysta á þau,
þegar um alt annan sjúkdóm en
hægðateppu var að ræða.
Mörg hægðalyf eru auglýst þann-
ig að þau sje „algjörlega óskaðleg“.
En ekkert hægðalyf er með öllu ó-
skaðlegt. Öll hafa þau þann eigin-
leika að valda truflun á melting-
unni — truílun, sem oft er hvorki
til gagns nje æskileg. Þar til má
telja „hreinsandi konfekt“. Lækn-
ar vara alvarlega við því, vegna
þess að börn eru sólgin í það, og
liala dáið af neyslu þess, eða orðið
aumingjar alla ævi. •
Þá koma „vitaminin“ — fjörefn-
in, sem hinir og aðrir framleiða.
— Ætíð verður að fara varlega í
neyslu tilbúinna fjörefna. Ef menn
hafa heilsusamlegt fæði eiga þeir
að fá úr því nóg fjörefni handa
líkamanum. Það er ekki óyggjandi
sönnun um fjörefnaskort, þótt
menn sje niðurdregnir, máttlitlir,
gangi illa að sofa o. s. frv. Það get-
ur stafað af öðru, svo sem ofþreytu,
taugaveiklun, heimilisáhygg j um
eða fjárhagsáhyggjum. Fjörefni
eiga menn því ekki að nota nema
með læknisráði.
Ótal tegundir af „vitamin-pill-
um“ hafa verið á markaðnum í
Ameríku. En af einhverjum ástæð-
um lór eftirspurn að þeim að
minka. Þá fundu framleiðendur
upp á því að auglýsa að þær væri
ágætar handa þeim, sem vildu
megra sig. í auglýsingunum voru
birtar myndir af ungum og grönn-
um stúlkum og neðan við stóð eitt-
hvað á þá leið að þær notuðu altaf
ákveðnar „vitamin-pillur“, og sum-
ar hefði ljest um 7 pund á viku!
Ur þessu varð megnasti faraldur
og það þýddi lítt þótt læknar segðu
að fólk mætti ekki ljettast um
meira en 2Vz pund á viku.
Lang algengasta megrunarlyfið
er þó „thyreoiden", sem framleitt
er úr skjaldkirtilssaía. Það hefur
komið fyrir, og þó mjög sjaldan
að læknar hafa komist að raun um
að menn holdgast óeðilega, eí trufl
un er á starfi skjaldkirtilsins. Þeir
nota þá þetta meðal, og þó mtð
mestu varkárni, og ekki ef viðkom-
andi er haldinn einhverjum sjúk-
dómi, svo sem hjartabilun, sykur-
sýki, berklaveiki o.s.frv. En að taka
„thyreoiden“ inn án læknisráðs er
bein tilraun til sjálfsmorðs. „Það
væri betra fyrir þann, sem þykist
of feitur, að skera hreint og beint
fituna utan af sjer, heldur en nota
thyreoiden“, segir einn læknir,
„því að það brennir hreint og beint
líkamann og eyðileggur líffærin.“
En samt sem áður eru þessi lyf
búin til og seld í stórum stíl, aðal-
lega fáfróðum konum, sem endi-
lega vilja megra sig.
Til eru einnig lyf sem eiga að
draga úr matarlyst, svo sem „ben-
zedrine“ og „balladonna" og enn-
fremur alls konar megrunar pillur
og megrunar sælgæti. Eini munur-