Lesbók Morgunblaðsins - 08.01.1950, Side 1

Lesbók Morgunblaðsins - 08.01.1950, Side 1
Krófc 1. tölublað. JN*r0nufrl8totit0 Sunnudagur 8. janúar 1950. XXV. árgangur. FYRSTI SENDIHERRA A ISLANDI Endurminningar J. E. Böggilds JOHANNES ERHARDT BÖGGILD, fyrsti sendiherra Dana hjer á landi, var fæddur 28. mars 1878 í Ribe. Faðir hans var Börge Thorlacius Böggild, bankastjóri, sem kominn var af íslenskum ættum í móður- kyn. — Langafi hans var Skúli Thorlacíus latínuskáld, og einnig rakti hann ættir sínar til Geirs biskups Vídalíns. Böggild yngri hafði mætur á hinum íslensku for- feðrum sínum, og samdi í æsku ættartölu sína, og rakti þar kyn sitt til Snorra Sturlusonar, Þorfinns Karlsefnis, Ketils flatnefs, Half- danar hvítbeins og Ragnars loð- brókar. Af þessum sökum mun Böggild hafa langað til þess að kynnast ís- landi, og þess vegna greip hann tækifærið og slóst í hina miklu hópför danskra stúdenta til íslands árið 1900, þá 22 ára gamall. Þeir voru um 100 í þessum hóp, og var Mylius-Ericsen fararstjóri, sá er seinna varð úti í Austur-Grænlandi. Þar voru og með margir aðrir, er seinna urðu nafnkunnir, svo sem Knud Rasmussen, Arne Möller dr., Knud Berlin prófessor, N. M. Plum J. E. Böggild sendiherra. prófessor, Læssöe-Möller rithöf- undur og sagnfræðingur o. fl. Hóp- urinn kom hingað með „Botníu“ 6. ágúst og var honum fagnað eftir föngum, og fengin gisting hjá bæj- armönnum á meðan þeir dvöldust hjer. Vildi þá svo til að Böggild fekk inni hjá Sturlu Jónssyni kaup- manni. Hafa þau kynni máske vald- ið því, að þegar Böggild varð sendi- herra hjer, þá keypti hann íbúðar- hús Sturlu við Hverfisgötu, og hef- ur það síðan verið bústaður sendi- herra Dana hjer á landi. Biiggild verður sendiherra. Þegar Sambandslögin voru geng- in í gildi og Danir áttu að skipa sendiherra hjer, varð Böggild fyrir valinu. Hann var þá aðalkonsúil þeirra í London. — Böggild kom hingað í ágúst 1919 og tók þá við embætti sínu. Var hann svo hjer í rúm fjögur ár, en þá var hann gerður að sendiherra í Kanada og fluttist þangað 1924 og var þar nær fimm ár. Hinn 1. nóvember 1929 fekk hann slag, er hann var á leið til skrifstofu sinnar. Eftir það hafði

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.