Lesbók Morgunblaðsins - 16.04.1950, Side 8

Lesbók Morgunblaðsins - 16.04.1950, Side 8
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 010 MlM Keisarahöllin í Addis Abeba. til þess að vera borgarstjóri í höí- uðborginni Addis Abeba, Þjóðverja til þess að kenna nýtísku landbún- að og verslun með landbúnaðaraf- urðir, Englending til þess að vera dómstjóri í hæstarjetti og Svía til þess að stjórna lífverðinum. Ethiopia er stórt land og fyrir fáum árum var það ósnortið af menningu hvítra manna. En nú hefur þjóðin íengið hug á þvi að komast upp úr ómenningunni. Og í staðinn fyrir höfðingjastjórn, reynir keisarinn nú að koma þar a lyðræðislegri stjórn. Ráðherrar hans eru ekki lengur kynflokka hofðingjar, heldur eru þeir valdir með tilliti til hæfileika sinna. Sjálf- ur hefur keisarinn tekið að sjer mentamálaráðuneytið. Honum hef- ur tekist að vekja þekkingarþorsta hjá þjóð sinni. Hann leitaði til British Council um aðstoð og bað það að senda sjer 50 kennara. Það var ekkx hægt "Þá var folkið hvatt til sjálfsnáms. Sendimenn British Council segja að þeir hafi engan frið á götum úti fyrir börnum. Þau eru ekki að biðja um peninga eða sælgæti, eins og börn i Evrópu, þau eru að biðja um bækur. Ekki er hægt að segja að Ethiopia hafi farið alveg varhlula af hjálp eftir stríðið. Hún fekk lán bæði í Bandaríkjunum og Sviþjóð er námu 3,7 miljónum dollara. Og svo á hún von á að fá 25 miljón dollara hernaðarskaðabætur hjá ítölum. — Utanríkisverslunin er um 20 nulj. dollara á ári, en gæti þó verið meiri, því að þeir hafa meira af nautgrip- um og landbúnaðarafurðum en þeir geta selt. Og svo er þar ein auðlind. Það er olía. Olíulindir eru nú eftirsóttari en gullnámur, og gráðugir útlend- ingar bjóða miljónir i olíulinclirnar. Haile Selassie er akveðmn i þvi hvað hann á að gera við þær mrl- jcnir. Hann ætlar að reisa sjúkra- hús, heilsuhæli, skóla, ná í lækna og kennara, og umfram alt að koma upp prcntsmiðjum tii þess að prenta kcnslubækur handa öllum. ^W ^W ^W -W 'Jkí BERNARD SHAW EINU SINNI kom amerískur kvik- nryndajöfur nokkur til Shaw og mælti með þessum gorgeir og sjálí byrgingskap, sem einkennir suma menn: — Herra Shaw, jeg ætla að íilma nokkur leikrit yðar. Jeg þekki þau og þau liæfa okkur, því að hið besta er ekki of gott fyrir okkur. Það skiftir en£u máli hvað það kostar. Sliaw svaraði: — Herra minn, jeg sje að þjer eruð mikill lista- maður, en jeg er aðeins rjettur og sljettur h\ersdagsmaður. Það er því slikt regindjúp staðfest úkkar í milli að við munum aldrei skilja hvor annan.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.