Lesbók Morgunblaðsins - 30.04.1950, Side 1
16. tölublað.
Sunnudagur 30. apríl 1950.
XXV. árgangur.
Frjáls verklýðssamtök
í frjálsu þjóðfjelagi
í TILEFNI af hátíðisdegi verkalýðssamtakanna 1. maí, birtast hjer grein-
ar og viðtöl við nokkra forustumenn samtakanna, þar sem þeir gera
grein fyrir afstöðu sinni til vmissa mála er varða verkalýðssamtökin og
þjóðina í heild.
í MARGA áratugi hafa launþegar
í flestum löndum heims haldið 1.
maí hátíðlegan. Þennan dag hafa
verkalýðssamtökin í lýðræðisríkj-
unum borið fram óskir sínar og
kröfur og minnt þjóðirnar á þýð-
ingu starfa sinna og samtakamátt.
Frjáls eða ófrjáls
verkalýðssamtök.
En því miður er ekki um frjáls
verkalýðssamtök að ræða í mörg-
um löndum heimsins. í þeim
ríkjum, sem kommúnistar hafa
brotist til valda, hefur frelsi verka-
lýðsins verið með öllu afnumið. í
stjórnarskrá forusturíkis kommún-
ista, Sovjetríkjunum, er svo kveðið
á, að kommúnistum einum sje
leyfilegt að mynda verkalýðsfjelög
og að þeir skuli skipa allar trúnað-
arstöður fjelaganna. — í ríkjum
kommúnista eru verkalýðssamtök-
in áróðurstæki í höndum ríkisvalds
ins og 1. maí er gerður að hersýn-
ingardegi, líkt og nasistarnir gerðu
á sínum tíma í Þýskalandi.
í lýðræðisríkjunum er verkalýðs-
hreyfingin aftur á móti ekki ein-
ungis frjáls, heldur er hún lögvernd
uð. Launþegar semja sjálfir um
kaup sitt og kjör, og samtökin eru
beinlínis studd af ríkisvaldinu. Það
hljómar því dálítið einkennilega,
þegar kommúnistar, sem reynst
hafa böðlar verkalýðsins, skuli í
lýðræðisríkjunum stöðugt hrópa
hæst um það, hversu einlægir
verkalýðssinnar þeir sjeu, og skora
á launþega að veita sjer fulltingi í
stjórnmálabaráttunni. Þeir laun-
þegar, sem hlýða því kalli komm-
únista, eru því sjálfir að festa á sig
hlekkina.
Barátta kommúnista
gegn lýðræði.
í lýðræðisríkjunum er verkalýðs-
hreyfingin yfirleitt mjög öflug og
sterk og þeim mönnum, er fara með
stjórn samtakanna er fengið mikið
vald í hendur. Þetta hafa komm-
únistar gert sjer ljóst og þess vegna
lagt á það sjerstaka áherslu að
skapa sjer áhrif og völd í launþega-
samtökunum. Tilgangur kommún-
ista með þessu hefur einungis ver-
ið sá að fá aðstöðu til að nota fje-
lögin pólitískt til áróðurs fyrir
stefnu sína og til þess að skapa
upplausn í þjóðfjelaginu og þannig
að veikja lýðræðisþjóðirnar, svo að
hinum kommúnistisku ofbeldis-
mönnum verði auðveldara að yfir-
stíga þær, er til átaka dregur.
Það er mjög athyglisvert, hvern-
ig kommúnistar vinna að því að
ná völdum í launþegasamtökum.
Þeir láta flugumenn sína smeygja
sjer inn í verkalýðsfjelögin. — Með
leynd eru þeir látnir mynda „sell-
ur“ og skipuleggja áróður. Komm-
únistarnir mæta allir á öllum fund-
um og standa saman sem einn mað-
ur í öllum kosningum. Vegna af-
skiptaleysis annarra í fjelögunum
tekst oft litlum hóp kommúnista að
ná völdum, án þess að meginþorri
meðlimanna átti íig á því hvað
gerst hafi, fyrr en eftir á.