Lesbók Morgunblaðsins - 23.07.1950, Síða 3

Lesbók Morgunblaðsins - 23.07.1950, Síða 3
LESBÓK MOKC.UNBLAÐSINS • 359 Kirkjan í Skálholti eins og hún er nú, fúin og brotin og óhæf til guðs þjónustu ef nokkuð er að veðri. til tengdaföðurs síns, Ólafs Stephen sens á Innra-Hólmi og var þar í tvö ár. Enginn skóli var í Skálholti um veturinn eftir, en 1846 tók Hóla- vallaskóli til starfa. Saga hans var hin mesta ófremdarsaga og lagðist liann niður. Síðan var skólinn á Btssastöðum til 1846, en þá fluttur til Reykjavíkur og hefir nú starfað lijer í rúma öld. ERLENDA valdið var svo naumt á fje til byggingar biskupsseturs í Revkjavík, að Hannes Finnsson treystist ekki til þess að flytjast þangað. Hann keypti Skáiholt á uppboðinu og fluttist þangað aftur. Bygði hann þá upp staðinn að nýu og bjó þar til æviloka. Hann var* hinn seinasti biskup í Skálholti. Nú var bygt biskupssetur í Laug- arnesi, en það fór líkt um það og Hólavallaskóla. Húsið var ónýtt. Þó bjó Steingrímur biskup þar sína tíð, og Helgi Thordaren um hríð. Svo flýði hann til Reykjavíkur*) og síðan liefir ekkert biskupssetur verið til á íslandi, þangað til húsið Gimli var keypt handa núverandi biskupi. Má því segja að biskups- embættið hafi verið á sífeldum hrakningi, síðan það fluttist frá Skálholti, og er það ekki undarlegt þar sem svo illa var farið með gjöf Gissurar ísleifssonar biskups. Þegar Skálholt var selt, fekk liaupandi ekki aðeins jörð og bæar- hús, heldur einnig kirkjuna. Hún átti þá mikið af góðum gripum. En eftir daga Hannesar biskups og í rúma öld, meðan staður og kirkja er einkaeign, fækkar þessum grip- um og þeir hverfa. Hafa víst flest- ir þeirra verið seldir útlendingum. Þannig var ræktarsemin við hina fornu dómkirkju. Svo eignast ríkið jörðina. Þá er * Þegar Helgi flýði til Reykjavíkur voru liðnar rjettar 8 aldir frá því að biskupsstóll var stofnaður í Skálholti. þar alt í slíkri niðurníðslu, að menn veigra sjer við og hliðra sjer hjá því eins og unt er, að sýna útlend- ingum staðinn. Það er of veglegt að segja að menn geri þetta af sómatilíinningu. Menn skammast sín landsins vegna að svo skuli komið um þennan fornfræga stað, og vilja ekki láta gesti sjá þá for- smám. Ekkert hefir batnað við það, að rílcið varð eigandi jarðarinnar. Haft er eftir málugri kerlingu, að hún hafi sagt: „Þagað gat jeg þá með sann þegar hún Skálholtskirkja brann“. Hún hafði orðið vör við eldinn, en ekki gert aðvart. Einu sinni á æv- inni hafði henni tekist að vera þag- mælsk. Ráðamönnum þjóðarinnar hefir farið líkt og kerlingunnl. Þeir haía horft á viðurtygð eyðíleggingarinn- ar færast yfir Skálholt, og þagað. En þegar svo er, verða þegnar þjóð- fjelagsins sjálfir að hefjast handa, til þess að sýna að þjóðin vill ekki þessa þögn og kæruleysi. Þess vegna er Skálholtsfjelagið stofnað. Tilgangur þess er að brýna háa og lága til meðvitundar um það að vjer eigum heilaga skyldu að rækja við fortíðina. Vjer eigum skyldu að rækja við Gissur biskup, sem gaf hinni íslensku kirkju Skálholts- stað. Kirkjan þáði gjöfina og Al- þingi setti þau lög, að þar skyldi ávalt vera biskupssetur. Nú er kirkja og ríki eitt, og böndin berast því að Alþingi og ríkisstjórn um það að virða fornar gjörðir. En það er ekki nóg. Alþjóð verður að rísa upp og þvo af þjóðinni þann smán- arblett, sem meðferð hennar á Skálholti er. Og nú er heppilegur tími til þess. Árið 1956 er 9 alda afmæli biskupsstóls í Skálholti. Fyrir þann tíma verður þjóðin að bæta fyrir það, sem hún hefir af- brotið við Skálholt, þetta höfuðból kristni og andlegrar rnenningar um sjö alda skeið. Skálholtsfjelagið ætlar að vinna að endurreisn Skálholts. Því er það fvllilega ljóst, að í því hugtaki felst annað og meira en það, að koma þar á fót “búnaðarskóla. í því felst það, að Skálholtsstaður og kirkja

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.