Lesbók Morgunblaðsins - 13.08.1950, Síða 1
30.
ó u
JlatpwMal^iitg
tbl. Sunnudagur 13. ágúst 1950. XXV. árgangur.
Á NYRSTA HJARA HEIMS
Iljcr sjást bækistöðvar leidangursins hjá Brönlundsfirði. Rannsóknarferðir
voru farnar þaðan þvert norður yfir Pearyland og eins nieð ströndum fram.
Til liægri er kort af Grænlandi til samanburðar.
NORÐUR úr Grænlandi gengur
skagi einn allmikill, sem kendur er
við Robert E. Peary heimskauta-
fara. Er hann á stærð við þriðja
hluta íslands. Norðurströnd lians
er það land, er næst liggur Norður-
heimskautinu og er það því rjett-
nefni að kalla þetla nyrsta lijara
heims.
Tvö undanfarin ár hefur leiðang-
ur danskra vísindamanna verið við
rannsóknir á þessum slóðum undir
forustu Egil Knuth greifa. Hafa
rannsóknirnar verið' f jölþaettar og
snert jarðfræði, jarðeðlisfræði,
dýrafræði, grasafræði, fornl'ræði,
veðurfræði o. s. frv. Nú er þessum
leiðangri að verða lokið í bili og
hefur órangur orðið mikill. Fundu
þeir þarna t. d. stóra fjörðu, sem
menn höfðu ekki haft hugmynd um
áður að væri til og munu athug-
anir þeirra breyta mjög landakort-
inu af þessum slóðum, eða svo
mjög, að gert er ráð fyrir því að
Geodætisk Institut geri þangað út
leiðangur innan skamms til þess að
kortleggja landið.
Um seinustu helgi komu hingað
með Catalína flugbát nokkrír af
leiðangursmönnum. — Er um 11
klukkustunda flug þaðan að riorðan
og iiingað til Reykjavíkur. Leið-
angursmenn þessir fara allir heim
til Danmerkur nema einn, Bendix
Sörensen flugliðsforingi. Hann fer
með flugvjelinni aftur norður til
Sackenberg hjá Franz Josepsfirði,
þar sem aðalbirgðastöð leiðangurs-
ins var, og verður þriðja veturinn
í Grænlandi á einhverri loftskeyta-
stöð.